Elta engar tískubylgjur í fjárfestingum 15. nóvember 2006 10:00 John J. Brennan, stjórnarformaður og forstjóri Vanguard, annars stærsta eignastýringarbanka heims. Rekstur vísitölusjóða er kjarnahæfni Vanguard og af mörgum talinn lykillinn að árangri félagsins. Markaðurinn/GVA MYND/GVA
John J. Brennan, forstjóri Vanguard, hefur stundum verið nefndur sem einn af áhrifamestu mönnum á bandarískum fjármálamarkaði. Sjálfur gefur hann lítið fyrir sín persónulegu völd. Segir hann þó að þar sem Vanguard hafi gríðarlegt fjármagn í eignastýringu, yfir 950 milljarða bandaríkjadala, hafi fyrirtækið eðli málsins samkvæmt nokkuð mikil áhrif. Vanguard er að öllu leyti í eigu fjárfesta í sjóðum fyrirtækisins, sem þýðir að rekstrarhagnaður rennur beint til sjóðsbréfaeigenda. Þetta rekstrarform er einsdæmi meðal eignastýringarfélaga í Bandaríkjunum og þakkar Brennan því mikinn vöxt fyrirtækisins undanfarin ár. Sérstök áhersla er góða þjónustu og lágan kostnað, sem hefur gengið vel eftir en á meðan kostnaður sjóða í Bandaríkjunum hefur farið hækkandi hefur kostnaður hjá Vanguard farið lækkandi.Vísitölusjóðir lykillinn að árangriRekstur vísitölusjóða er kjarnahæfni Vanguard og af mörgum talinn lykillinn að árangri félagsins. Vísitölusjóðir beita hlutlausri eignastýringu sem þýðir að sjóðirnir eiga hlutabréf í því sem næst sömu hlutföllum og eru í þeirri vísitölu sem miðað er við. Rekstur vísitölusjóða fellur vel að hugmyndum Vanguard um að fjárfesta til lengri tíma, bæði sem fyrirtæki og eins í fjárfestingum. Fyrirtækið býður líka aðra fjárfestingasjóði en hefur þá leitað til annarra fyrirtækja með að reka þá. Hvernig svo sem sjóðirnir eru upp byggðir segir Brennan þá alla rekna á mjög agaðan hátt, enda sé mikilvægt að leita eftir jafnvægi og dreifingu í fjárfestingum til að hafa stjórn á áhættu.„Ein algengustu mistök við fjárfestingar er að elta tískubylgjur, sem er ekki góð leið til að græða peninga. Við hugsum til lengri tíma, oft til fimm eða tíu ára, ekki í mánuðum eða jafnvel árum. Markaðir rísa og falla, það er bara þannig. Það eru fjölmargir hlutabréfamarkaðir í heiminum þar sem enginn hefur grætt neitt undanfarin sex ár og þar vill enginn fjárfesta í hlutabréfum núna. Annars staðar, eins og hér, hafa markaðir verið á blússandi siglingu og skyndilega vilja allir fjárfesta í hlutabréfum. Ein af ástæðunum fyrir því að við erum virt fyrirtæki er að þegar þrengir að segjum við „þetta verður ekki alltaf svona" en þegar markaðir eru á siglingu segjum við það sama.Tækifærin liggja í alþjóðavæðingunniUm það hvar tækifærin liggja í framtíðinni segir Brennan að fjárfestar séu að verða alþjóðlegri í stefnu sinni. „Fyrir tíu árum voru fjárfestar smeykir við nýju markaðina, eins og Indland, Kína og Austur-Evrópu. Núna eru fjárfestar farnir að átta sig á að alþjóðlegar fjárfestingar eru frekar leið til að minnka áhættu en öfugt." Hann telur að alþjóðavæðingin muni hafa góð áhrif á alla markaði þar sem fyrirtæki neyðast til að gerast samkeppnsihæf á alþjóðlegum vettvangi sem muni hafa í för með sér betri arðsemi fyrir fjárfesta.
Erlent Birtist í Fréttablaðinu Fréttir Héðan og þaðan Viðskipti Mest lesið Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Atvinnulíf Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Thule lækkar í prósentu Neytendur Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sjá meira