Segja ríkið bera ábyrgðina 29. júní 2005 00:01
Stjórnendur Landsbankans telja bankann enga ábyrgð bera á hækkun lífeyrisskuldbindinga Lífeyrissjóðs bankamanna vegna launahækkana eftir einkavæðingu bankans. Eðlilegt sé að krafan um bakábyrgð beinist að ríkinu en ekki Landsbankanum. Í yfirlýsingu bankans segir að samið hafi verið um fullnaðaruppgjör Landsbankans við sjóðinn árið 1997, áður en Landsbankinn var einkavæddur. Þegar gengið hafi verið frá þessu samkomulagi hafi bakábyrgð bankans á skuldbindingum lífeyrissjóðsins fallið niður og Lífeyrissjóður bankamanna eigi ekki lengur lögvarða kröfu á hendur Landsbankanum. "Ástæður þess að eigur Lífeyrissjóðs bankamanna nú nægja ekki að fullu fyrir metnum skuldbindingum sjóðsins eru meðal annars þær að laun hafa hækkað og kaupmáttur aukist meira en forsendur sjóðsins gerðu ráð fyrir," segir í yfirlýsingunni. "Þá hefur sú ánægjulega þróun átt sér stað að lífaldur fólks fer hækkandi og fólk kýs að hætta vinnu fyrr og þar með verða lífeyrisár sjóðfélaga fleiri en áður var reiknað með. Þessar ástæður eru almennar og eiga við fleiri lífeyrissjóði."
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Atvinnulíf Stærðin skiptir ekki máli Atvinnulíf Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen Atvinnulíf Megi troða „singles day“ upp í greiðslugáttirnar á sér Neytendur „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Atvinnulíf Óábyrgt að afskrifa kílómetragjaldið Neytendur Máttu rukka íslenska konu um 1,2 milljónir fyrir dvöl á spítalanum Neytendur Kílómetragjaldið mögulega fórnarlamb stjórnarslita Neytendur Engin endurgreiðsla þrátt fyrir rifbeinsbrot Neytendur Brá sér frá í sauðburð og kvíðinn ferðamaður flúði Neytendur Fleiri fréttir Deildarstjóri, lögfræðingur og viðskiptastjóri ráðin til Mílu Nýr flugrekstrarstjóri Icelandair Skúli og félagar sýknaðir en þrotabúið fær 750 milljónir Hafna ásökunum um smánarlaun Segja gjald á nikótínpúða leiða til aukinna reykinga „Þið hafið efni á þessari kauphækkun, borgið hana núna“ Staðfesta dóm héraðsdóms en lækka bætur til Vinnslustöðvar Þrír nýir stjórnendur hjá Wisefish Nebraska heyrir sögunni til Smána Bakkavararbræður fyrir greiðslu „fátæktarlauna“ Stækka gagnaverin á Akureyri og í Reykjanesbæ Í beinni: Kosningafundur atvinnulífsins Sætanýtingin aldrei verið betri í október ECIT AS kaupir meirihluta í Bókað frá KPMG Manneskja með von á bakvið hverja einustu umsókn Aukning í ferðalögum til landsins Breytingar í framkvæmdastjórn Origo Linda ráðin framkvæmdastjóri háttsemiseftirlits Ráðinn framkvæmdastjóri Marel Fish Daði og Hrefna nýir deildarstjórar hjá Veitum Skipti máli fyrir rekstur iðnfyrirtækja að lækka vexti og verðbólgu Um 550 milljónum deilt til 27 einkarekinna fjölmiðla Byggja hótel og 1.500 fermetra baðlón í Vestmannaeyjum Eybjörg Helga ráðin forstjóri Eirar, Skjóls og Hamra Akademias tekur yfir rekstur Avia Fjögur ráðin í stjórnendastöður hjá Íslandsbanka Lyfjastofnun Evrópu tekur umsókn Alvotech til umsagnar Spá auknu atvinnuleysi og hagvexti Snúrunni lokað fyrir fullt og allt Misboðið hvernig staðið var að uppsögnum hjá nýjum eiganda Sjá meira