Alþýðuhreyfing gegn auðvaldinu 20. apríl 2005 00:01 Það er dauði og djöfuls nauð þá dyggðasnauðir fantar safna auð með augun rauð en aðra brauðið vantar! Ég man hvað mér þótti þessi vísa alveg firnalega góð þegar ég heyrði hana fyrst enda eftir eitt af stórskáldum þjóðarinnar. Og hef margreynt það síðan að vilji maður verða almennilega sótillur og uppfullur af réttlátri reiði er nóg að hafa vísukorn þetta yfir nokkrum sinnum. Hún segir eiginlega allt sem segja þarf og á eins og Passíusálmarnir alltaf við. Er semsagt aldrei of oft kveðin. Og það var eitthvað í þessa veru sem ég las út úr merkilegri yfirlýsingu Agnesar Bragadóttur nú í síðustu viku. Aftur og aftur tekst Björgúlfum þessa lands að sölsa undir sameiginlegar eigur þjóðarinnar fyrir smánarpening og gera úr þeim stórfé. Græða óhugnanlega. En nú skal endi bundinn þar á. Alþýðan skal fá að græða næst. Sundruð erum við ekkert en sameinuð getum við myndað einn Björgúlfinn til. Og það var þetta sem hitti í mark hjá þrautpíndri og langsvekktri alþýðu þessa lands. Er nema von að ég og allir hinir bestvisserar blaðanna verðum svolítið spældir. Aldrei hefur mér tekist að virkja svo upphlaupsnáttúru Íslendinga. Það er stundum vafamál að nokkur taki eftir þessum pistlum mínum nema þá gamlir Tungnamenn sem finnst þeir merkilegir miðað við það hvað ég var nú óstýrilátur sem barn! Ég ætlast þessvegna ekki almennilega til að neinn taki mark á þessu nöldri en stendur nú annað upp á gamlan maóista en að vera á móti alþýðuhreyfingu sem tekst það sem okkur tókst aldrei í dreggjum '68 kynslóðarinnar að skaða efnahagslífið. Það klókasta í Agnesarupphlaupinu er einmitt að þar hefur kapítalískum blaðamanni á kapítalísku blaði tekist að virkja andstöðuna við hinn harða markaðskapítalisma markaðskapítalismanum einum í hag. Allavega ef allt gengur upp. Ef að Agnesi tekst það sem hún leggur upp með í grein sinni 11. apríl að safna saman nógu mörgum alþýðufjárfestum sem síðan styðja einn kjölfestufjárfesti til þess að eignast Símann. Ef þessu nýja fjárfestingafélagi tekst að gera það sama og Björgúlfar þessa lands hafa marggert og mér skilst á þessum sama pistli að hafi svikið ríkisfyrirtæki út úr ríkinu fyrir smánarverð,- þá græðir ekki bara þessi stofnfjárfestir heldur líka einhverjir 1000 eða 10 þúsund íslenskir alþýðumenn. Og þar með er réttlætinu fullnægt! Þetta er að vísu ekki réttlæti sem gagnast mikið fátækum einstæðum mæðrum sem eiga varla 250 þúsund í rassvasanum. En það er skárra fyrir þær að vita sig hafa verið rændar af alþýðuhreyfingu og einum björgúlfi heldur en tómum björgúlfum. Þetta er líklega í anda þess slagorðs amerískra framsóknarmanna, if jú kant bít þem, djóin þem. Ef þú getur ekki sigrað þá, gakktu þá til liðs við þá! En hinu er alveg ósvarað í öllu upphlaupi hvort eitthvert kapítalískt vit sé í þessu. Eru til dæmis líkur á því að alþýðuhreyfing Agnesar hafi sambærilegt vit á bísnes og björgúlfarnir? Hafi vit á hvenær á að kaupa og hvenær ekki? Hvenær ríkið er að selja á undirverði og hvenær á yfirverði? Undanfarin misseri hafa allir sem vettlingi geta valdið sameinast um að tala upp verð símans enda vilja menn síst að ríkið gefi fleiri ríkisfyrirtæki. En kannski er það einmitt við slíkar aðstæður sem björgúlfarnir halda sig til hlés, vita að nú er betra að sleppa því að kaupa og kaupa kannski frekar síma einhversstaðar austan við tjald. Og ekki megum við gleyma að mest af hinum svívirðilega gróða björgúlfanna er vegna væntinga sem markaðurinn hefur gagnvart fyrirtækjum þeirra þegar þau detta inn í kauphöllina. Alþýðumennirnir sem þar versla eru nefnilega þannig innréttaðir að þeir trúa á mátt og megin hins frjálsa ófyrirleitna kapítalisma sem svífst einskis í gróðafíkn sinni og hefur enga meiningu aðra en að græða meira. En ég er ekki eins viss um að þessi sami kauphallarmarkaður hafi sömu trú og sömu væntingar gagnvart fyrirtæki sem er í eigu alþýðuhreyfingar þar sem þátttakendur eru þekktastir fyrir að vera á móti hinum harða ófyrirleitna kapítalisma. Eða getur nokkur grætt á því sem hann vill ekki vera með í! Og þann dag öfunda ég Agnesi ekki þegar píslarvottar símabyltingarinnar geysast fram á ritvöllinn út af töpuðu hlutafé. Því auðvitað bregðast byltingar ekki. Þær éta alltaf börnin sín! Bjarni Harðarson Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Silfur Egils Silfur-Bréf Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar