Kaupendur Símans reki hann einnig 18. apríl 2005 00:01
Davíð Oddsson utanríkisráðherra er ánægður með þann áhuga sem almenningur sýnir á kaupum í Símanum. Hann vill sjá að þeir fjárfestar sem koma til með að kaupa Símann muni einnig reka fyrirtækið í framtíðinni, en selji það ekki í von um skjótfenginn gróða. Þá segir Davíð að nýja fjölmiðlaskýrslan sé bitlítil. Davíð fagnar látunum í kringum sölu Símans því almennt séð sé þeim betra, því meiri spenningur sem sé í kringum málið, talandi fyrir söluaðilann. Varðandi áhuga almennings segir Davíð að það sé mjög gott að það sé svona vakandi áhugi á meðal fólks og segir fyrirkomulagið sem einkavæðingarnefnd hafi lagt til auðveldi kaup almennings í Símanum. Davíð varar við spákaupmennsku. Óvíst sé að Síminn vaxi að verðgildi eftir sölu. Sumir geti líka sagt að ekki eigi að ota almenningi í „spekúlasjónir“. Davíð segir líka óvarlegt að segja að verðgildi eigi eftir að þrefaldast eða þaðan af meira þannig að almenningur fari að taka lán fyrir kaupunum. Davíð vill helst að kaupendur Símans ætli sér að eiga hann til lengri tíma, þó ekki sué nein slík skilyrði til staðar. Davíð, sem var í aðalhlutverki í fjölmiðlamálinu í fyrra, hefur ekki áður lýst skoðun sinni opinberlega á skýrslu fjölmiðlanefndarinnar sem hefur verið kynnt sem pólitísk sáttagjörð. Auðheyrt er að hann vill ganga lengra því hann segir skýrsluna ekki mjög bitmikla.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Innlent Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Milljónir ekki komið til Íslands þótt þær gætu það Innlent Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Erlent Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Innlent Rússar segja til hvers annars líkt og á tímum Stalíns Erlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Næstu mánuðir skipta sköpum Erlent Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent „Ég er ekkert búin að læra“ Innlent Fleiri fréttir Milljónir ekki komið til Íslands þótt þær gætu það Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð „Ég er ekkert búin að læra“ Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Rýnt í kannanir og tendrun jólatrés í Hafnarfirði Alma verði heilbrigðisráðherra í stjórn Kristrúnar Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Sjá meira