Björguðu skíðamönnum úr lífsháska 6. apríl 2005 00:01
Fjölmennt lið björgunarsveitarmanna kom með tvo skíðamenn til Reykjavíkur í morgun sem þeir höfðu bjargað úr lífsháska við Hlöðufell á hálendinu í morgunsárið. Björgunarsveitarmenn brutust áfram í illviðri og við erfiðar aðstæður í alla nótt í átt að Hlöðufelli í grennd við Skjaldbreið og fundu mennina rétt fyrir klukkan sex í morgun, hrakta og kalda. Þeir höfðu ætlað að komast í ferðaskála við Hlöðufell þegar óveðrið skall á í gær en þegar þeir voru orðnir þreyttir og hraktir varð þeim ljóst að það tækist ekki og bjuggu þeir þá um sig í hraungjótu og kölluðu á hjálp. Björgunarmenn á vélsleðum komu fyrst að þeim og voru þeir fyrst fluttir í ferðafélagsskálann við Hlöðufell til að hlýja þeim og þar skoðaði læknir sem var í för með björgunarmönnum þá. Um það bil 60 björgunarsveitarmenn tóku þátt í leiðangrinum og flugvél Flugmálastjórnar flaug yfir leitarsvæðið til að halda uppi fjarskiptasambandi við leitarmenn. Einnig var búið að láta Landhelgisgæsluna vita, sem hafði sett þyrlu í viðbragðsstöðu ef eftir henni yrði óskað. Að sögn björgunarmanna munu mennirnir ná sér að fullu.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira