
Lög og regla

Eyrún segir sig úr VG vegna breytinga á lögum um hatursorðræðu
Eyrún Eyþórsdóttir hatursglæpalögregluþjónn er ósátt við fyrirhugaðar breytingar á lögum um hatursorðræðu.

Tekist á um skepnuna sem gleymir engu
Tekist var á um birtingu dóma á netinu og nafnleynd í sakamálum á málþingi dómara og lögmanna í dag.

Skemmdir unnar á bát í Vogum
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú skemmdarverk sem unnin voru á bát sem stóð á landi í Vogum á Vatnsleysuströnd.

Lögregla varar við svikapóstum þar sem fólk er boðað í skýrslutöku
Lögreglan rannsakar nú vel skipulagða svikapósta sem sendir eru á fólk og það boðað í skýrskutöku.

Hegningarlagabrotum fjölgaði um sex prósent
Tilraunir til manndráps voru átta á síðasta ári sem eru fleiri slík brot en síðastliðinn sextán ár.

Ferðamenn festust í Gróttu eftir að flæddi að
Lögregla þurfti að hafa afskipti af fjölda ökumanna sem óku undir áhrifum áfengis eða fíkniefna í gærkvöldi og nótt.

Var fluttur meðvitundarlaus á slysadeild eftir árás þriggja manna
Einn maður var handtekinn en tveir komust undan.

Neitaði að borga leigubílinn og rotaðist eftir að hafa hoppað út á ferð
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu þurfti að hafa afskipti af manni sem hafði rotast eftir að hafa hoppað úr leigubíl á ferð á horni Kleppsvegar og Laugarnesvegar í nótt.

Réðst á leigubílstjóra og stal af honum síma
Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt og eru allar fangageymslur nú fullar bæði í Reykjavík og Hafnarfirði.

Lögreglan fær 237 milljónir króna aukalega á ári til að efla málsmeðferð kynferðisbrota
Lagt til að fjölga rannsóknarlögreglumönnum í kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um fjóra.

Veittust að lögreglumönnum eftir líkamsárás í heimahúsi
Mikill erill var hjá lögreglu á höfuðborginni í gærkvöldi og í nótt, þar sem fjölmargar tilkynningar bárust um eld í gámum, bílum, ruslagámum, blaðagámum og fleira.

Fundu fíkniefni við húsleit
Lögregla á Suðurnesjum fundu það sem talið er vera amfetamín og kannabisefni við húsleit í húsnæði í umdæminu sínu í fyrrinótt.

Réðust á dyraverði í miðborginni
Sparkað var í dyravörð á skemmtistað í Reykjavík í nótt og hann sleginn í andlit.

Tveir lögreglumenn urðu fyrir meiðslum
Alls komu rúmlega 150 mál inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðasta hálfa sólarhringinn.

Tveimur vörubrettum af flugeldum stolið af skátum
Brotist var inn í læstan gám við Skátaheimilið í Sólheimum 21a.

Indverskum gúrú kennt um hávaða í Breiðholti
Lögregla var kölluð út vegna mikils hávaða sem barst úr íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti upp úr klukkan 6:30 í morgun.

Vísað út af slysadeild vegna leiðinda
Lögreglan brást við tilkynningu um öskrandi karlmann sem stóð úti á götu í Austurborginni á öðrum tímanum í nótt.

Kölluðu út liðsauka vegna heimilsofbeldis
Lögreglumenn í Kópavogi þurftu að kalla út liðsauka eftir að tilkynning barst um að kona væri að beita sambýlismann sinn ofbeldi.

Slógust harkalega á Ingólfstorgi
Lögregla skarst í leikinn þar sem karl og kona slógust harkalega á Ingólfstorgi upp úr klukkan eitt í nótt.

Sektir vegna notkunar farsíma undir stýri hækka verulega
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið vinnur nú að því að endurskoða sektir vegna farsímanotkunar undir stýri.

Kastaði þvagi á dyr Stjórnarráðshússins
Þvagið barst inn í anddyri hússins og var maðurinn kærður fyrir brot á lögreglusamþykkt.

Málningu skvett á bíla og bifhjól
Lögreglunni á Suðurnesjum barst í gærkvöldi tilkynning þess efnis að búið væri að skvetta málningu á tvær bifreiðar og bifhjól í Vogunum. Þegar á vettvang var komið mátti sjá málningu víða á farartækjunum sem öll eru í eigu sama einstaklings
Horfnir vélsleðar fundust við bóndabæ
Lögregla hefur fundið tvo vélsleða af Yamaha gerð sem hurfu frá Frostagötu á Akureyri seint í janúar. Þeir fundust við bóndabæ í Húnavatnssýslu. Tveir menn hafa játað að hafa tekið sleðana og farið með þá vestur í Húnavatnssýslu.

Hátt í 300 myndaðir við hraðakstur á viku
Nærri þrjú hundruð ökumenn voru myndaðir í myndavélabílum lögreglunnar við Stekkjarbakka í Reykjavík og í Hvalfjarðargöngum í þessari viku þar sem þeir óku of hratt. Frá þessu er greint á vef lögreglunnar.

Einn grunaður um íkveikju í húsi í Þorlákshöfn
Bráðabirgðarannsókn lögreglunnar á Selfossi á brunanum í Þorlákshöfn um síðustu helgi hefur leitt í ljós að notaður hafi verið eldfimur vökvi til þess að kveikja í húsinu. Ein maður er grunaður um íkveikjuna og situr hann enn í gæsluvarðhaldi vegna málsins en það rennur út þann 5. febrúar.

Netperri áreitir unglingsstúlkur á Vestfjörðum
Lögreglan á Ísafirði rannsakar nú mál þar sem ókunnur aðili eða aðilar hafa beðið um leyfi til þess að eiga samtal við unglingsstúlkur í gegnum Netið og hafa síðan jafnvel berað sig í vefmyndavél sem birtist óvænt á tölvuskjá viðkomandi stúlkna. Bendir lögregla á að slíkt geti geti varðað við kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga.

Flatskjá stolið úr símaveri Glitnis á Ísafirði
Brotist var inn í símaver Glitnis á Ísafirði um helgina og þaða stolið flatskjá. Eftir því sem fram kemur í frétt frá lögreglunni á Ísafirði var tilkynnt um innbrotið í gærkvöld en hurð á verslunar- og skrifstofuhúsnæði við Hafnarstræti hafði verið spennt upp.

Fjögur fíkniefnamál á höfuðborgarsvæðinu í gær
Fjögur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær eftir því sem segir í frétt frá lögreglunni. Um miðjan dag voru tveir karlmenn handteknir í Kópavogi en þeir eru grunaðir um fíkniefnamisferli.

Stálu tómum gosdrykkjaumbúðum
Áfengi, greiðslukort og tómar gosdrykkjaumbúðir voru meðal þess stolið var á ýmsum stöðum í borginni í gær. Áfengi var stolið úr samkomuhúsi í miðborginni og þar skammt frá hvarf hjól úr bílageymslu.

Innbrotahrina á höfuðborgarsvæðinu
Þrír menn voru í gær úrskurðaðir í viku gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að fjölda innbrota og þjófnaða, bæði í fyrirtæki og heimili á höfuðborgarsvæðinu og þá voru tveir menn handteknir í morgun á Vesturlandsvegi með þýfi í bíl sínum. Segir lögregla að innbrotahrina hafi verið á svæðinu.