Með þrjá Pólverja ólöglega í vinnu 30. mars 2005 00:01
Íslendingur, sem var með þrjá Pólverja ólöglega í vinnu, verður ákærður í dag eða á morgun fyrir brot á útlendingalögum. Það er sýslumaðurinn í Árnessýslu sem ákærir en lögregluyfirvöld í Árnessýslu höfðu uppi á Pólverjunum rétt fyrir páska. Voru þeir ákærðir og strax dæmdir í eins mánaðar fangelsi, skilorðsbundið. Þar sem þeir eru borgarar í evrópska efnahagssvæðinu mega þeir vera áfram í landinu en ekki vinna gegn gjaldi, nema með atvinnuleyfi, samkvæmt bráðabirgðaákvæði þar um sem gildir þar til í maí á næsta ári. Eftir þann tíma geta borgarar af EES-svæðinu komið hingað til vinnu án atvinnuleyfis líkt og Íslendingar geta unnið hvar sem er á svæðinu án þess háttar leyfis. Málið hófst með því að Selfosslögreglan stöðvaði bíl vegna hraðaksturs og var einn Pólverjanna í honum sem leiddi til þess að hinir tveir fundust. Var einn þeirra hér í fjórða sinn, annar í annað en sá þriðji í fyrstu Íslandsferðinni. Allir játuðu þeir að hafa verið að vinna fyrir launum hjá verktakanum sem nú verður ákærður.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira