Hraðlest úr Perlu til Keflavíkur 10. mars 2005 00:01 Sælir. Ég hef mikið hugsað útí þennan flugvöll sem er þarna í Vatnsmýrinni. Sumir vilja hann burt og aðrir ekki. Mér finnst eins og fólk hugsi of mikið um þær lausnir sem til eru í dag í staðinn fyrir að skipuleggja framtíðina með framtíðarlausnir fyrir augum. Ég vil að flugvöllurinn fari, og þá segja menn að það taki of langan tíma fyrir Reykvíkinga að fljúga út á land. Reykvíkingar eru bara hluti af umferð um völlinn. Það er til fólk sem vill komast utanað landi í flug til Keflavíkur og áfram til útlanda o.s.frv. Ef hægt væri að selja allt land sem er undir flugvellinum núna á metverði fyrir ýmsa starfsemi og þétta íbúabyggð og einnig spara rekstur flugvallarins þá skapast miklir peningar. Við gætum þá sett á laggirnar lest sem knúin er af rafmagni eða vetni og það hefur lengi verið til tækni þar sem lestar fara á yfir 200km hraða. Þessi lest kæmist á innan við 15 mínútum frá Reykjavík og beint upp á Keflavíkurflugvöll. Hafa þyrfti 3 stk. lestar í umferð þannig að alltaf væri ein tilbúin að fara frá einum stað til annars. Ein alsherjar umferðarmiðstöð yrði reist við Perluna og yrði hún mjög stór en samt hagkvæm. Undir þaki yrðu bílastæði á mörgum hæðum við stöðina. Þarna yrðu undir einu þaki rútumiðstöð, strætómiðstöð, leigubílar, ferðaskrifstofuútibú, verslanir og lestin. Þarna myndu Reykvíkingar og aðrir koma þegar þeir ætla að fljúga innanlands eða utanlands og leggja bílunum sínum í bílastæðishús og ganga þaðan inn í umferðarmiðstöðina og skrá sig í flug. Þegar ég tala um að skrá sig í flug þá meina ég að þeir ganga að afgreiðsluborði eins og þeir væru staddir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og skrái sig í flug og fái afhendan flugseðil, afhenda farangur og fara í gegnum skoðun. Þá geta þeir gengið beint að lestinni sem fer á 15 min. fresti og sest inn og beðið spenntir eftir skemmtilegri lestarferð. Allur farangur og frakt fer inn í tölvuskráningarkerfi og er settur í sérstaka kassa sem fljótt er settur um borð í fraktvagna lestarinnar. Kassarnir eru síðan teknir á nokkrum sekúndum úr lestinni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þarna sleppa Reykvíkingar við að keyra Reykjanesbrautina þegar þeir fara í flug til útlanda og geta í raun tekið taxa niður í Umferðarmiðstöðina og verið komnir út á völl á mettíma. Þannig að þegar fólk síðan kemur með lestinni að Flugstöð Leifs Eiríkssonar þá stoppar lestin við flugstöðina þannig að farþegar í utanlandsflug ganga beint inn í biðsal fyrir útlandsfarþega og farþegar fyrir innanlandsflug ganga beint inn í biðsal fyrir innanlandsfarþega. Þegar hinsvegar útlendingar ( og Íslendingar) koma til Íslands þá fara þeir um borð í lestina og ferðast til Reykjavíkur og þegar þeir koma að Öskjuhlíðinni þá fara þeir inn í göng og koma út norðaustan við Perluna og fara öfugan hring um Perluna og þá opnast þeim stórkostleg sýn þar sem þeir horfa yfir nýja hverfið í Vatnsmýrinni og miðborgina og svo fer lestin inn í Umferðarmiðstöðina þar sem fólkið nær í farangurinn og fer í gegnum tollskoðun og svo út og velur þar nákvæmlega þann ferðamáta sem það vill. Fólk sem býr úti á landi flýgur auðvitað beint til Keflavíkur og svo beint áfram til útlanda. Sala á Vatnsmýrinni, sparnaður á rekstri Reykjavíkurflugvallar og lest sem yrði knúin áfram af íslensku afli ásamt því að umferð á Reykjanesbraut myndi minnka og slysum fækka gerir þetta verkefni þjóðhagslega hagkvæmt. Tíminn sem fer í ferðir Reykvíkinga með flugi út á land myndi ekki aukast. Komandi tölvutækni og ýmis önnur tækni gerir þetta kleift. Allir græða. Gaman væri ef þið mynduð skoða þennan möguleika af allvöru og fá botn í það hvort þetta eru draumar, eða draumar sem geta orðið að veruleika. Og það er ekki sama við hvern er talað í svona máli. Með bestu kveðju, Vilmundur Sigurðsson. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Silfur Egils Silfur-Bréf Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar