Stórsigur sjíta-múslima 13. febrúar 2005 00:01
Flokkabandalag sjíta-múslima vann stórsigur í þingkosningunum í Írak. Það gerðu Kúrdar einnig en súnní-múslimar eru úti í kuldanum. Það gæti valdið miklum vandræðum. Kosningaþátttaka var tæplega sextíu prósent sem út af fyrir sig var stórsigur fyrir þjóðina alla sem nú gekk til frjálsra kosninga í fyrsta skipti í hálfa öld. Flokkabandalag sjíta-múslima fékk 47 prósent atkvæða og vantaði aðeins sjö þingmenn til þess að ná hreinum meirihluta á þinginu. Á því eru 275 sæti. Kúrdar voru númer tvö með 25 prósent atkvæða og í þriðja sæti var flokkur Iyads Allawis sem er bráðabirgða forsætisráðherra landsins. Mikil hrossakaup eru þegar hafin milli flokka sem eru að reyna að tryggja völd sín með því að komast í samsteypustjórn. Fáir súnní-múslimar tóku þátt í kosningunum og þeir fengu aðeins örfáa menn kjörna á þing. Það gæti valdið vandræðum. Súnní-múslimar réðu lögum og lofum í landinu undir stjórn Saddams Husseins og þeir taka því illa að hafa misst áhrif sín. Hryðjuverkamennirnir sem hafa herjað í Írak undanfarin misseri eru einmitt súnní múslimar sem reyna að tryggja sér völd með ofbeldi þar sem þeir eru orðnir vita valdalausir í pólitíkinni.
Erlent Fréttir Írak Stj.mál Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira