Flutti kókaín inn fyrir samfanga 20. desember 2004 00:01
Sigurður Rúnar Gunnarsson var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir innflutning á tæpu kílói af kókaíni og tæpu kílói af amfetamíni. Sigurður Rúnar var handtekinn með fíkniefnin á Keflavíkurflugvelli í maí. Hann var að koma með flugi frá Kaupmannahöfn en þangað hafði hann komið frá Amsterdam. Sigurður játaði innflutninginn og viðurkenndi að hann hefði gert sér grein fyrir að efnin ættu að fara í sölu hér á landi. Segist hann hafa verið nauðbeygður til að flytja fíkniefnin inn þar sem hann hafi ekki getað borgað lán sem hann skuldaði. Lánið hefði hann fengið hjá manni sem hefði verið inni á Vernd á sama tíma og hann. Hann hefði verið í slæmum málum og því þegið lánið þegar honum hefði boðist það. Færslur á bankareikningi Sigurðar sýna innlagnir upp á tvær og hálfa milljón króna. Þótti dómnum skýringar Sigurðar ekki trúverðugar og því sannað að innflutningurinn hefði verið í hagnaðarskyni. Sigurður hefur áður hlotið tvo refsidóma, þar á meðal fimmtán mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt og skjalafals. Til frádráttar dómnum kemur gæsluvarðhald frá 25. maí síðastliðnum
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira