Hefði getað orðið stórbruni 14. desember 2004 00:01
Minnstu mátti muna að stórbruni yrði í 150 ára gömlu húsi á horni Lækjargötu og Austurstrætis þegar eldur kviknaði þar út frá eldunartækjum í Kebab-húsinu á neðri hæðinni um klukkan hálfníu í gærkvöldi. Allt tiltækt slökkvilið af höfuðborgarsvæðinu var sent á vettvang og segja kunnugir að það hafi verið fyrir snarræði slökkviliðsmanna að ekki fór verr þar sem þeir áttuðu sig strax á gangi mála. Eldurinn hafði teygt sig eftir loftræstistokki og alveg upp í þakskegg. Slökkviliðsmenn náðu að rjúfa stokkinn og slökkva eldinn og utanfrá var slökkt í þakskegginu. Þá hafði reykur borist inn á Kaffi Óperu á efri hæðinni og var um tíma óttast að þar logaði líka, en svo reyndist ekki vera. Húsið er úr timbri og einangrað með ýmsum efnum og sumum eldfimum. Engan sem í húsinu var sakaði og reykræsti slökkviliðið það að slökkvistarfi loknu. Vakt var höfð í húsinu fram eftir nóttu
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Sjá meira