Spáð hækkandi bensínverði 19. ágúst 2004 00:01
Áhrifa hærra olíuverðs gætir hér á landi sem annars staðar og er spáð hækkun bensínverðs á næstunni, auknum viðskiptahalla og verðbólgu. Bensín og olía hefur ekki verið dýrari hér í meira en áratug. Bensín- og olíuinnflutningur jókst um á annan milljarð króna fyrstu sex mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra, samkvæmt Morgunkorni Íslandsbanka, en alls var flutt inn fyrir 8 milljarða króna. Megnið er vegna sjávarútvegs en hærra olíuverð kemur sérstaklega illa niður á sjávarútvegi sem og flutningastarfsemi. Áhrifin eiga eftir að koma betur í ljós þar sem mikið er um framvirka samninga um eldsneytiskaup. Ljóst er einnig að bifreiðaeigendur eiga eftir að finna fyrir þessu ástandi og spá sérfræðingar Íslandsbanka frekari verðhækkunum á bensíni á næstunni. Það sem af er þessu ári hefur bensín hækkað á Íslandi um 12% og er nú hærra en það hefur verið í meira en áratug. Sérfræðingarnir segja að í heildina sé hærra heimsmarkaðsverð á bensíni til þess fallið að draga úr hagvexti á Íslandi, auka viðskiptahallann sem og verðbólgu og hækkunin sé því slæm tíðindi fyrir íslenskt efnahagslíf.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Sjá meira