Viðskipti
233 234 235 236 237 238 239 240 241 … 334 ›
Telur galið að stóru fjölmiðlarnir fái ríkisstyrki Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Vodafone og Stöð 2 segir að sér finnist það galið að fyrirtæki á borð við Sýn og Árvakur, sem reki stóra fjölmiðla, njóti sérstaks ríkisstuðnings. Taka þurfi á fyrirferð RÚV á auglýsingamarkaði og erlendra aðila sem starfi samkvæmt öðrum leikreglum en innlend fyrirtæki á auglýsingamarkaði. Viðskipti innlent 3.9.2021 15:57
Ráðin sérfræðingar hjá Expectus Giovanna Steinvör Cuda, Hafdís Mist Bergsteinsdóttir og Ottó Rafn Halldórsson hafa verið ráðin sérfræðingar hjá ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtækinu Expectus. Viðskipti innlent 3.9.2021 14:26
Gervigreind byltir byggingabransanum Upplýsingar um styrk og hita berast í rauntíma frá þráðlausum nemum sem settir eru út í steypuna. Samstarf 3.9.2021 08:46
Magnús reyndist sannspár og áskriftin að Viaplay hækkar um 69 prósent Viaplay hefur hækkað verðið á heildarpakka sínum úr 1.599 krónum í 2.699 krónur og nemur hækkunin 69 prósentum. Í tilkynningu Viaplay til viðskiptavina sinna kemur fram að aukið framboð á efni þýði að verð á áskrift komi til með að hækka. Viaplay býður einnig upp á ódýrari áskriftarleið sem inniheldur ekki íþróttaefni. Viðskipti innlent 3.9.2021 08:00
Arion hækkar vexti eftir ákvörðun Seðlabankans Inn- og útlánavextir hjá Arionbanka hækka í dag eftir að Seðlabankinn hækkaði nýlega stýrivexti. Bankinn er annar stóru bankanna sem hækkar vexti í kjölfar stýrivaxtahækkunarinnar en Landsbankinn reið á vaðið í fyrradag. Viðskipti innlent 3.9.2021 07:41
Leiðir til að lokka starfsfólk aftur á vinnustaðinn Sitt sýnist hverjum um ágæti fjarvinnu. Sumir hreinlega elska þessa nýju veröld á meðan aðrir óska þess heitast að allt verði eins og það var fyrir Covid. Þá sérstaklega eru vinnuveitendur margir sagðir uggandi yfir því hversu áhugalaust fólk er um að mæta aftur til vinnu á vinnustaðinn sjálfan! Atvinnulíf 3.9.2021 07:01
Neytendastofa bannar auglýsingu Heimkaupa Auglýsingar Heimkaupa um fría heimsendingu voru villandi þar sem kaupandi þurfti að vera staddur á höfuðborgarsvæðinu og kaupa vörur fyrir lágmarksupphæð. Þetta kemur fram í nýlegri ákvörðun Neytendastofu sem segir Heimkaup hafa brotið gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Neytendur 2.9.2021 16:42
Bílatryggingar hækka mjög á meðan slysum fækkar Bílatryggingar hafa hækkað mjög á síðustu árum á sama tíma og bæði umferðarslysum og slösuðum einstaklingum í umferðinni fækkar. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) gagnrýnir tryggingarfélögin, lífeyrissjóðina og fjármálaeftirlitið fyrir að leyfa þessari þróun að viðgangast. Neytendur 2.9.2021 14:41
Meistaradeildin á Viaplay Viaplay mun sýna frá sextíu leikjum í Meistaradeild Evrópu á hverju ári. Samstarf 2.9.2021 12:31
FÍ og Heimsferðir leggja fram nýjar tillögur til að greiða fyrir samruna Ferðaskrifstofa Íslands hefur afturkallað samrunatilkynningu sína er varðar fyrirhuguð kaup á Heimsferðum. Samkeppniseftirlitið hefur haft mögulegan samruna til rannsóknar en lætur nú málinu lokið. Viðskipti innlent 2.9.2021 12:09
Selja hlut sinn í P/F Magn fyrir tíu milljarða króna Stjórn Skeljungs tekið ákvörðun um að hefja einkaviðræður við Sp/f Orkufelagið um sölu á öllu hlutafé í P/F Magn, dótturfélagi Skeljungs á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs Sp/f Orkufelagið. Viðskipti innlent 2.9.2021 11:32
Framleiðandi Oxycontins leystur upp og eigandinn greiðir milljarða Skiptaréttur í Bandaríkjunum lagði blessun sína yfir sátt sem lyfjafyrirtækið Purdue Pharma gerði við hóp ríkja og sveitarfélaga. Sáttin felur í sér að Sackler-fjölskyldan sem auðgaðist á ópíóíðafaraldrinum lætur af eignarhaldi sínu og greiðir milljarða til að glíma við faraldurinn. Viðskipti erlent 2.9.2021 10:07
Fish and chips í búðir Norðanfiskur kynnir splunkunýja vöru í verslanir í dag. Samstarf 2.9.2021 08:46
Giggstörfum fjölgar: Hafa frelsið til að velja sér lífstíl „Nú er svo komið að mestur vöxtur er í slíkum störfum og atvinnurekendur segjast oft ekki fá fólk í ákveðin störf nema tímabundið og þeir sem gigga velja sér lífsstíl út frá verkefnum sínum,“ segir Árelía Eydís Guðmundsdóttir dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands um þá þróun að sífellt fleira fólk kýs að starfa sjálfstætt á verktakasamningum, frekar en að ráða sig sem launþega. Árelía segir helsta gallann við giggið felast í því að fólk upplifir oft, sérstaklega í byrjun, meiri óvissu um tekjur. ,,Hins vegar sagði einn giggari í rannsókninni að „það að vera launþegi er fullkomið óöryggi.“ Atvinnulíf 2.9.2021 07:01
N1, Olís, Sky Lagoon og KFC vinsæl meðal handhafa ferðagjafarinnar Alls hafa 128.892 Íslendingar sótt svokallaða ferðagjöf en 85.079 hafa verið notaðar og 70.778 fullnýttar. Samkvæmt mælaborði ferðaþjónustunnar nemur upphæð notaðra gjafa 411 milljónum króna. Viðskipti innlent 2.9.2021 07:01
Tap Sýnar tvöfaldaðist á öðrum ársfjórðungi Sýn tapaði 117 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi samanborið við 60 milljónir á sama tímabili í fyrra. Ef horft er til fyrri helmings 2021 dregst tap saman milli ára og fer úr 410 milljónum í 348 milljónir. Viðskipti innlent 1.9.2021 17:52
Pétur Jakob Pétursson ráðinn til HPP, prótínverksmiðju Héðins Pétur Jakob Pétursson hefur verið ráðinn markaðs- og sölustjóri hjá HPP, en HPP er háþróuð prótínverksmiðja sem hönnuð var frá grunni og smíðuð hjá Héðni. Með HPP geta sjávarútvegsfyrirtæki fullnýtt aflann hundrað prósent með framleiðslu á lýsi og fiskmjöli, jafnt á landi sem um borð í skipum. Viðskipti innlent 1.9.2021 12:10
Karl Eskil ráðinn til að stýra heimasíðu og miðlum Samherja Karl Eskil Pálsson fjölmiðlamaður hefur verið ráðinn til Samherja og mun hann miðla fréttum á heimasíðu og samfélagsmiðlum félagsins, auk þess sem hann mun sinna innri vef Samherja þar sem upplýsingum og fræðsluefni er komið til starfsfólks. Viðskipti innlent 1.9.2021 11:39
Ársreikningum skilað fyrr og betur Alls hafði 16.290 ársreikningum verið skilað til ársreikningaskrár fyrir reikningsárið 2020 á fimmtudaginn í síðustu viku. Á sama tíma á síðasta ári hafði 15.504 ársreikningum skilað til ársreikningaskrár og jafngildir þetta því fjölgun á skiluðum ársreikningum um fimm prósent milli ára. Viðskipti innlent 1.9.2021 11:34
Grímuskyldan afnumin í Bónus Frá og með deginum í dag verður ekki grímuskylda í verslunum Bónus. Framkvæmdastjóri Bónus segist finna fyrir mikilli grímuþreytu meðal almennings. Viðskipti innlent 1.9.2021 11:28
Aríel tekur við formennsku í Sjómannadagsráði Aríel Pétursson, varaformaður Sjómannadagsráðs höfuðborgarsvæðisins frá síðasta aðalfundi sem fram fór í vor, tók í dag við formennsku í ráðinu af Hálfdani Henrýssyni. Hálfdán hefur starfað með Sjómannadagsráði óslitið í 34 ár. Viðskipti innlent 1.9.2021 11:08
Einbeita sér að áfangastöðum þar sem eftirspurn er sterk Icelandair mun fljúga til 25 áfangastaða í vetraráætlun flugfélagsins sem nær frá 1. október til 31. mars. Félagið gerir hlé á flugi áfangastaða á borð við Helsinki og Glasgow þar sem eftirspurn hefur ekki náð sér á strik. Viðskipti innlent 1.9.2021 08:55
Bein útsending: Ársfjórðungsuppgjör Play Play mun birta uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung á opnum kynningarfundi sem hefst klukkan 8:30. Viðskipti innlent 1.9.2021 08:02
Starfsmenn framtíðarinnar: Vinna sjálfstætt og fjölgar hratt nú þegar „Þau störf sem við teljum að muni vera hvað mest áberandi í sjálfstæðum rekstri eru allar tegundir ráðgjafa og sérfræðinga. Sviðið getur spannað allt frá forriturum til listamanna og viðskiptafræðinga, lykillinn hér er sérhæfing,“ segir Lilja Hallbjörnsdóttir, sem ásamt dóttur sinni, Fanneyju Sigurðardóttur, mun standa fyrir vinnustofu í október fyrir sjálfstætt starfandi fólk. „Fjölgun sjálfstætt starfandi mun að endingu marka endalok skipuritsins. Þar sem þú ert með sérfræðinga sem koma inn og taka við stoðþjónustunni eða öðru sem hægt er að úthýsa,“ segir Fanney. Atvinnulíf 1.9.2021 07:00
Krónan afnemur grímuskyldu Krónan mun afnema grímuskyldu í verslunum sínum á morgun, 1. september. Telja forsvarsmenn keðjunnar að viðskiptavinum og starfsfólki sé nú treystandi til að meta sjálft hvort þörf sé á grímu. Viðskipti innlent 31.8.2021 19:49
Sjóðsstaða sterkari en áætlað var þrátt fyrir fjórðu bylgjuna Handbært fé frá rekstri flugfélagsins Play er meira en áætlanir gerðu ráð fyrir eftir fyrri árshelming. Þá er sjóðsstaða sterkari og eftirspurn eftir flugi sögð vaxandi. Viðskipti innlent 31.8.2021 19:18
Landsbankinn ríður á vaðið og hækkar vexti Landsbankinn hefur ákveðið að hækka breytilega vexti á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,20 prósentustig. Tæp vika er liðin frá stýrivaxtahækkun Seðlabankans og er Landsbankinn fyrstur stóru viðskiptabankanna til að tilkynna vaxtabreytingar í kjölfarið. Viðskipti innlent 31.8.2021 17:42
Frosti nýr framkvæmdastjóri Olís Frosti Ólafsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Olíuverzlunar Íslands ehf. og mun hefja störf föstudaginn 3. september. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Högum. Viðskipti innlent 31.8.2021 16:33
Nýjasta leik CCP tekið vel í Kína Á þremur vikum hafa þrjár milljónir manna spilað nýjasta leik CCP í Kína. Fyrirtækið segir viðtökurnar við símaleiknum EVE Echoes frábærar. Viðskipti innlent 31.8.2021 16:05
Ragnheiður Erlingsdóttir nýr framkvæmdastjóri Zik Zak Ragnheiður Erlingsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri kvikmyndaframleiðslufyrirtækisins Zik Zak. Hún tekur við starfinu af Skúla Malmquist, sem var ráðinn framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins í júlí. Viðskipti innlent 31.8.2021 15:47