Viðskipti innlent
125 126 127 128 129 130 131 132 133 … 334 ›
Kvikmyndarisar bíði eftir aukinni endurgreiðslu Leifur B. Dagfinnsson, stofnandi og formaður stjórnar kvikmyndaframleiðandans True North segir að stór kvikmyndaver séu að bíða eftir því að endurgreiðsla stærri kvikmyndaverkefna verði 35 prósent hér á landi. Mikil tækifæri felist í slíkri endurgreiðslu fyrir íslensk framleiðslufyrirtæki en stjórnvöld hafa þegar lagt fram frumvarp þess efnis. Viðskipti innlent 24.5.2022 15:27
Laun verkafólks og starfsfólks í veitinga- og gististarfsemi hækka mest Launavísitalan hækkaði um 1,6% milli mars og apríl samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar sem er óvenjuleg mikil hækkun milli mánaða. Skýrist það af stærstum hluta af hagvaxtarauka sem virkjaðist hjá launafólki þann 1. apríl. Viðskipti innlent 24.5.2022 13:48
Ná ekki að breyta enskuskotnum umbúðum Nóa kropps Sælgætisframleiðandinn Nói Síríus nær ekki að breyta enskuskotnum umbúðum á sumarútgáfu af Nóa kroppi þar sem búið er að dreifa nánast öllu takmörkuðu upplagi þess í verslanir. Málfræðingur við Háskóla Íslands gerði athugasemd við að umbúðirnar væru að hluta á ensku. Viðskipti innlent 24.5.2022 12:05
Fá 220 milljónir til að efla netöryggi hjá erlendum fyrirtækjum Íslenska netöryggisfyrirtækið Nanitor hefur tryggt sér 220 milljóna króna fjármögnun frá Brunni með þátttöku einkafjárfesta. Stendur til að nýta fjármagnið til stækkunar á erlendum mörkuðum. Viðskipti innlent 24.5.2022 10:22
Cocoa Puffs snýr aftur í verslanir Cocoa Puffs er væntanlegt aftur í verslanir á næstu dögum en morgunkornið hvarf af íslenskum markaði í byrjun seinasta árs. Uppskrift súkkulaðikúlnanna hefur nú verið breytt og er fyrsta sendingin þegar komin til landsins að sögn umboðsaðila. Viðskipti innlent 24.5.2022 09:07
Hagnaður OR nam 6,8 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Tekjur samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022 jukust um 14% frá fyrra ári og er helsta skýringin auknar tekjur Orku náttúrunnar af raforkusölu til stóriðju. Þetta kemur fram í uppgjöri OR sem gefið var út í dag. Viðskipti innlent 23.5.2022 17:05
Perla Ösp nýr framkvæmdastjóri Eflingar Perla Ösp Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eflingar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu. Perla Ösp á að baki ellefu ár sem framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Landsbankanum en sagði upp störfum hjá bankanum fyrir ári. Viðskipti innlent 23.5.2022 15:25
Pálmi nýr forstjóri Wedo og Anna Jóna tekur við stöðu fjármálastjóra Pálmi Jónsson, sem fyrr í vetur tók við stöðu rekstrarstjóra Wedo ehf. hefur tekið við sem forstjóri Wedo ehf. Þá hefur Anna Jóna Aðalsteinsdóttir tekið við starfi fjármálstjóra félagsins. Wedo ehf er eigandi Heimkaupa, Hópkaupa og Blands. Viðskipti innlent 23.5.2022 12:39
Sögu Pizza Hut í Smáralind lokið Veitingastað Pizza Hut í Smáralind var lokað þann 15. maí og hefur keðjan til skoðunar að hefja rekstur á nýjum stað. Leigusamningur Pizza Hut endaði í mánuðinum og tóku stjórnendur ákvörðun um að framlengja hann ekki. Viðskipti innlent 23.5.2022 12:13
Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup Rapyd á Valitor Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt samruna ísraelska fjártæknifyrirtækisins Rapyd og íslenska greiðslumiðlunarfyrirtækisins Valitor. Tilkynnt var í byrjun júlí 2021 að Rapyd vildi kaupa allt hlutafé í félaginu af Arion banka fyrir 100 milljónir bandaríkjadala eða um 12,3 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 23.5.2022 09:21
Ríkið þarf að greiða olíufélögum rúmlega hálfan milljarð Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða Skeljungi 448 milljónir króna í dómsmáli sem snerist um endurgreiðslu flutningsjöfnungargjalds. Ríkið þarf jafn framt að greiða Atlantsolíu 86 milljónir vegna sambærilegs máls. Viðskipti innlent 20.5.2022 15:50
Bein útsending: Viðskiptaþing sett með áherslu á sviptivinda á vinnumarkaði Viðskiptaþing 2022 fer fram á Hilton Reykjavík Nordica í dag en yfirskrift þingsins að þessu sinni er Tímarnir breytast og vinnan með - Vatnaskil á vinnumarkaði. Hefst dagskráin klukkan 13:30 en þingsetning, ávarp forsætisráðherra og ávarp formanns Mannauðs verða send út í opnu streymi. Viðskipti innlent 20.5.2022 13:01
Nýjar hugmyndir og nýir frumkvöðlar í nýrri hringrás Leitinni að áhugaverðustu nýsköpunarhugmynd Norðurlands á sviði matar, vatns og orku lýkur í kvöld þegar dómnefnd sker úr um hvaða ein af sex hugmyndum þykir skara fram úr. Hugmyndasamkeppnin nú er þó bara upphafið á annarri hringrás nýsköpunarstarfs á Norðurlandi. Viðskipti innlent 20.5.2022 12:59
Miklar lækkanir í Kauphöll ekki í samræmi við raunveruleikann Miklar verðlækkanir hafa sést í Kauphöllinni frá því í byrjun maí samhliða lækkunum á mörkuðum í Evrópu og Bandaríkjunum. Greinandi furðar sig á þessari þróun og segir engar forsendur vera fyrir álíka lækkunum hér í ljósi þess að horfur séu mun betri á flesta mælikvarða. Viðskipti innlent 20.5.2022 11:18
Edda Björk, Heiða og Ólafur Einar til Carbfix Edda Björk Ragnarsdóttir, Ólafur Einar Jóhannsson og Heiða Aðalsteinsdóttir hafa öll verið ráðin til Carbfix. Viðskipti innlent 20.5.2022 10:25
Loka fyrir allar símgreiðslur til Rússlands Arion banki hefur ákveðið að loka fyrir allar símgreiðslur til Rússlands, óháð því hvort að móttakandi sé á lista yfir þvingunaraðgerðir eða ekki. Viðskipti innlent 20.5.2022 10:07
Tvöfalda fiskeldi Samherja í Öxarfirði Samherji stendur nú að stækkun Silfurstjörnunnar, landeldisstöðvar sinnar í Öxarfirði. Stefnt er að því að tvöfalda eldisrými og framleiðslu þannig að framleiðslan verði um þrjú þúsund tonn á ári. Viðskipti innlent 20.5.2022 09:52
Mariam ráðin markaðsstjóri fjölmiðla hjá Stöð 2 og Vodafone Mariam Laperashvili hefur verið ráðin markaðsstjóri fjölmiðla hjá Stöð 2 og Vodafone. Viðskipti innlent 20.5.2022 09:47
Nauðsynlegt að ríki og sveitarfélög spýti í lófana: „Þetta er ekki eitthvað sem gerist á núll einni“ Byggja þarf 35 þúsund íbúðir á næstu tíu árum til að stuðla að stöðugleika á húsnæðismarkaði að mati starfshóps Þjóðhagsráðs. Formaður hópsins segir taka tíma að skipuleggja og byggja og því þurfi að spýta í lófana. Bjartari tímar eru þó fram undan. Viðskipti innlent 19.5.2022 23:00
Breytt fjármögnun lækkaði tilboð í Hornafjörð um 2,2 milljarða króna Lægsta boð í lagningu nýs hringvegar um Hornafjörð lækkaði um 2,2 milljarða króna við það að langtímafjármögnun var undanskilin. Þrátt fyrir hökt í þessu fyrsta útboði verkefna í einkafjármögnun telur innviðaráðherra að annað verk í ferlinu, ný Ölfusárbrú, verði á áætlun og tilbúin árið 2025. Viðskipti innlent 19.5.2022 21:25
Hagnaður Landsvirkjunar tæpir fimmtán milljarðar Landsvirkjun hagnaðist um 14,7 milljarða króna á fyrsta fjórðungi ársins og tæplega fjórfaldaðist á milli ára. Meðalverð til stórnotenda rafmagns hefur aldrei verið hærra á einum ársfjórðungi í sögu fyrirtækisins. Viðskipti innlent 19.5.2022 17:35
Stór skref þurfi til að kæla eftispurnina á húsnæðismarkaði Íbúðaverð heldur áfram að hækka töluvert en forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans gerir ráð fyrir rólegri þróun á næstunni samhliða vaxtahækkunum og frekari uppbyggingu. Starfshópur á vegum forsætisráðherra mun í dag kynna tillögur að aðgerðum til að bæta stöðuna á húsnæðismarkaði. Viðskipti innlent 19.5.2022 13:00
Tekur við stöðu forstöðumanns Símenntunar HA Stefán Guðnason hefur verið ráðinn forstöðumaður Símenntunar Háskólans á Akureyri. Viðskipti innlent 19.5.2022 10:44
Gætu náð 260 megavöttum í viðbót úr virkjunum í Þjórsá og Tungnaá Landsvirkjun telur unnt að auka orkuvinnslugetu núverandi virkjana á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu um 260 megavött, bæði með endurbótum á vél- og rafbúnaði og með fjölgun aflvéla til að nýta vaxandi jöklabráðnun. Viðskipti innlent 19.5.2022 10:05
Verðbólga átta prósent á þessu ári og sex prósent stýrivextir Verðbólga mun ná hámarki í haust þegar hún verður rúmlega 8% en lækka síðan aftur, ef marka má nýja hagspá Hagfræðideildar Landsbankans. Þá muni stýrivextir halda áfram að hækka og ná 6% í lok þessa árs. Gert er ráð fyrir því að hagvöxtur verði töluverður og atvinnuleysi haldi áfram að minnka samhliða því. Viðskipti innlent 19.5.2022 10:01
Íslandsbanki hækkar vexti óverðtryggðra húsnæðislána síðastur bankanna Íslandsbanki hyggst hækka vexti óverðtryggðra húsnæðislána um 0,70 til 1 prósentustig, en þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum í dag. Viðskipti innlent 18.5.2022 16:53
Félag fréttamanna og Blaðamannafélag Íslands sameinast Félagar í Blaðamannafélagi Íslands og félagar í Félagi fréttamanna, stéttarfélagi fréttamanna á Ríkisútvarpinu, hafa samþykkt að sameina félögin undir merkjum Blaðamannafélags Íslands. Viðskipti innlent 18.5.2022 13:40
Harpa nýr fjármálastjóri Norvik Harpa Vífilsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Norvik, móðurfélag BYKO. Hún tekur við starfinu af Brynju Halldórsdóttur sem hefur ákveðið að hætta störfum. Viðskipti innlent 18.5.2022 09:54
Tryggja sér 300 milljónir króna til að koma jafnréttislausn á alþjóðamarkað Íslenska fyrirtækið Empower hefur tryggt sér 300 milljóna króna fjármögnun frá Frumtaki og Tennin til að styðja við þróun og markaðssetningu á hugbúnaðarlausninni Empower NOW. Greint var frá þessu í morgun en stefnt er að því að hugbúnaðarlausnin fari á alþjóðlegan markað á næsta ári. Viðskipti innlent 18.5.2022 07:00
Spá öflugum hagvexti og allt að sex prósent stýrivöxtum í lok árs Greining Íslandsbanka spáir 5,0% hagvexti á þessu ári sem yrði hraðasti vöxtur frá árinu 2016. Gert er ráð fyrir 2,7% vexti á næsta ári og 2,6% árið 2024. Viðskipti innlent 18.5.2022 06:00