

Gjaldeyrismarkaðurinn reiknar með að gengi evrunnar muni falla ennfrekar en orðið er. Vogunarsjóðir og spákaupmenn taka nú stöðu gegn evrunni á þessum markaði í töluverðum mæli.
Gríska ríkisstjórnin samþykkti í dag að ganga að skilmálum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og evruríkjanna um efnahagsaðstoð af svipaðri stærðargráðu og Íslendingar hafa fengið frá AGS og nokkrum þjóðríkjum. Forsætisráðherra landsins boðar sársaukafullan niðurskurð á ríkisútgjöldum.
George Papandreou forsætisráðherra Grikklands greindi frá því í morgun að samkomulag hafi tekist við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Evrópusambandið um risavaxna efnahagsaðstoð við landið.
Danskir hagfræðingar hafa reiknað út að heildarkostnaður evruríkjanna við að koma evrunni til bjargar gæti farið upp í 600 milljarða evra, ef Grikkland tekur Portúgal, Spán og Írland með sér í fallinu.
Risavaxinn auglýsingasamningur sem sjónvarpsdrottningin Oprah Winfrey hefur gert við Procter & Gamble stærsta kaupenda auglýsinga í heiminum hefur vakið furðu margra. Samningurinn er til þriggja ára og hljóðar upp á 100 milljónir dollara eða um 12,8 milljarða kr.
Saksóknari á Manhattan í New York hefur fyrirskipað lögreglurannsókn á starfsháttum fjárfestingabankans Goldman Sachs.
Sérfræðingar telja nú að það versta sé yfirstaðið í gríska harmleiknum sem heimurinn hefur fylgst með undanfarna daga og vikur. Erlendir fjölmiðlar segja að samningum grískra stjórnvalda við ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn muni ljúka á allra næstu dögum og að fjárhagsaðstoðin til Grikkja muni nema yfir 100 milljörðum evra eða yfir 17.000 milljörðum kr. á næstu þremur árum.
Hagfræðiprófessorinn Nouriel Roubini, auknefndur dr. Doom, segir að Grikkland sé nú á leið þráðbeint í gjaldþrot. Þetta kom fram í máli Roubini í viðtali við CNBC sjónvarpsstöðina í gærkvöldi.
Þannig hljómar fyrirsögnin á Timesonline um ársuppgjör tískuverslanakeðjunnar All Saints fyrir síðasta reikningsár sem lauk í lok janúar s.l. Salan á vörum All Saints hefur rokið upp sem og hagnaður keðjunnar.
"Grundvöllurinn undir evrunni hefur hefur orðið fyrir varanlegum skaða," segir John Hydeskov gjaldmiðlasérfræðingur Danske Bank í samtali við börsen.dk og á þar við ástandið sem nú ríkir í löndunum í sunnanverðri Evrópu, einkum Grikklandi.
Gjaldeyrisbrask fjármálafyrirtækis í Portúgal með íslenskar krónur skömmu fyrir hrunið haustið 2008 er nú liður í rannsókn danska fjármálaeftirlitsins á viðskiptaháttum fjárfestingabankans Saxo Bank.
Samkvæmt mælingum gagnaveitunnar CMA hefur óttinn við þjóðargjaldþrot Grikklands, Portúgals og Spánar aldrei verið meiri meðal fjárfesta. Skuldatryggingaálag þessarar þjóða hefur aldrei verið hærra en það er í dag.
Lækkanir urðu á hlutabréfamörkuðum heimsins í kjölfar þess að Standard & Poors settu skuldabréf Grikklands í ruslflokk. Á mörkuðum er ótti um að Grikkland stefni í gjaldþrot. Grikkir eru fyrsta þjóðin á evrusvæðinu til þess að fá á sig ruslflokks stimpilinn. Portúgölsk skuldabréf voru einnig lækkuð í dag og jók það enn á lækkanir á mörkuðum og fall evrunnar.
Royal Unibrew, næststærstu bruggverksmiðjur Danmerkur, skiluðu betra uppgjöri eftir fyrsta ársfjórðung ársins en vænst var. Fjórðungurinn er yfirleitt sá lélegasti á árinu hvað ölsölu varðar en Unbrew tókst að auka veltuna aðeins m.v. sama tímabil í fyrra.
Askan frá eldgosinu í Eyjafjallajökli hefur kostað ESB um 2,5 milljarða evra eða um 430 milljarða kr. Þetta kemur fram í mati frá Siim Kalas samgöngumálastjóra framkvæmdanefndar ESB sem birt var í dag.
Íslandsvinurinn Willem Buiter aðalhagfræðingur Citigroup segir að Grikkland fari líklega í þjóðargjaldþrot eða skapi eigendum ríkisskuldabréfa sinna verulegt tjón nema landið fái betri kjör á fyrirhuguð björgunarpakka ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS).
Stærsta fasteignafélag Danmörkur, Sjælsö Gruppen, tilkynnti í morgun að félagið hefði yfirtekið rekstur og byggingu á 16 íbúðablokkum í Óðinsvéum á Fjóni.
Hagnaður Deutsche Bank á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 1,76 milljörðum evra eða rúmlega 300 milljörðum kr. Þetta er 48% meiri hagnaður en á sama tímabili í fyrra og langt umfram væntingar sérfræðinga.
Tölvuþrjóturinn Kirllos hefur stolið 1,5 milljón persónusíðna af Facebook og selur þær nú í 1.000 síðna skömmtum. Þetta samsvarar því að fyrir hverjar 300 persónusíður á Facebook hefur Kirllos stolið einni þeirra.
Söguhetjan Harry Potter hefur fram til þessa töfrað fram auðæfi upp á yfir 600 milljónir punda, eða 120 milljarða kr., fyrir höfund sinn og þær kvikmyndastjörnur sem leikið hafa í myndunum um kappann.
Fleiri og fleiri Danir velja nú að vinna í hlutastarfi. Alls eru 690.000 Danir nú sem ekki vinna fullan vinnudag en þetta er fjórðungur af vinnuafli landsins. Fjöldinn jókst um 17.000 manns á síðasta ári.
Demantar vara að eilífu en það sama gildir ekki um demantanámur. Af þeim sökum hefur De Beers, stærsti framleiðandi á hrádemöntum í heiminum, ákveðið að skera niður framleiðslu sina. Framboðið er ekki nægt til að sinna eftirspurninni.
Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka í dag og er tunnan af Brent olíu á markaðinum í London nú komin í 87,50 dollara. Hefur verðið á henni ekki verið hærra undanfarna 18 mánuði. Það er nýjar hagtölur í Bandaríkjunum sem valda hækkunum á olíunni nú.
Bandaríska hagkerfið tapaði 813 milljón dollara eða ríflega 100 milljörðum kr. vegna öskunnar frá Eyjafjallajökli. Hér er átt við fyrstu sex dagana sem gosið stóð og lamaði meir og minna flugsamgöngur í norðurhluta Evrópu.
Rekstraraðilar breskra flugstöðva hafa beðið stjórnvöld um aðstoð eftir að hafa tapað 80 milljónum sterlingspunda vegna röskunar á flugi sem varð vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
Grikkir hafa aðeins rétt tæpan mánuð til að komast að samkomulagi við Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um lánafyrirgreiðslur til að forða ríkinu frá greiðslufalli. Sérfræðingar óttast að sá björgunarpakki sem nú er til umræðu dugi hins vegar ekki til bjarga Grikkjum.
Eignir ríkustu manna í Bretlandi eru að aukast á ný eftir ósköpin sem dundu yfir hagkerfi alheimsins árin 2008 og 2009. Hlutabréfaverð er að hækka, bankarnir eru að hagnast á ný og sjálfstraust fjárfesta eykst. Eignir 1000 milljarðamæringa á lista breska blaðsins Sunday Times yfir ríkustu menn árið 2010 hafa því aukist um tæp 30% frá því árið á undan og er það mesta hækkun á ársgrundvelli í 22 ár.
Aðstæður í Grikklandi eru einstakar og ástandið mun ekki breiðast út til annarra ríkja, t.d. Spánar, segir Jean Claude Trichet, seðlabankastjóri Evrópu.
Spyker fyrirtækið, sem hefur nýlega keypt Saab bílaframleiðsluna, vill breyta nafni Saab. Stjórnendur Spyker vilja að Saab og Spyker nöfnunum verði skeytt saman.
Mikil ofsahræðsla greip um sig meðal fjárfesta á alþjóðamörkuðum í gærdag vegna stöðunnar í Grikklandi. Vextir á 2ja ára ríkisskuldabréfum Grikkja fóru yfir 10% og vextir á bréfum til 10 ár fóru yfir 9%. Fáir fást til að kaupa þessi bréf en allir vilja kaupa tryggingar á þau.