Slæmi bankinn skilar hagnaði en sá góði er rekinn með tapi 3. ágúst 2010 09:31
Slæmi hlutinn af breska bankanum Northern Rock hefur skilað töluverðum hagnaði á fyrrihluta ársins á meðan að góði hluti bankans hefur skilað tapi. Hrun bankans árið 2008 markaði upphafið að fjármálakreppunni í Bretlandi. Eftir hrunið var bankanum skipt upp í slæman og góðan banka þar sem skuldir og léleg lán voru skilin eftir í slæma bankanum en ríkissjóður tók yfir góða hlutann þar sem innlánin voru til staðar. Það sem gerst hefur er að lánin í slæma bankanum hafa skilað sér að mestu í hús, 90% þeirra eru í skilum. Þetta hefur þýtt hagnað upp á 350 milljónir punda eða rúmlega 65 milljarða kr.á fyrstu sex mánuðum ársins. Hinsvegar hefur góði bankinn tapað rúmlega 140 milljónum punda eða um 26 milljarða kr. á því að greiða meiri vexti af innlánunum en hann hefur aflað með vaxtatekjum af útlánum bankans, að því er segir í frétt í Telegraph.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira