Dýrast að borga í stöðumæli í Kaupmannahöfn 6. ágúst 2010 07:28
Kaupmannahöfn er orðin sú borg í heiminum þar sem dýrast er að borga bílastæðagjöld. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Colliers International hefur gert um hvað það kosti að borga í bílastæðagjöld í ýmsum borgum heimsins en miðað var við sólarhringslanga notkun á bílastæðum. Á dýrasta svæðinu í miðborg Kaupmannahafnar, svokölluðu rauðu svæði, kostar það tæplega 8.300 krónur að geyma bílinn sinn. Í öðru sæti er Abu Dhabi en þar kostar bílastæðið 6.500 krónur á sólarhring og í þriðja sæti koma svo Osló og Tókýó þar sem stæðin kosta 6.400 krónur. Til samanburðar má nefna að miðsvæðis á Manhattan í New York kostar stæðið 4.7öö krónur. Miðað við listann sem Colliers birtir er mjög hagstætt að láta bíl standa við stöðumæli, eða í bílskýli, í Reykjavík en gjaldið hér í borg er 1.230 krónur fyrir sólarhringinn. Ódýrasta bílastæðagjaldið er í borginni Chenni á Indlandi en þar kostar sólarhringurinn aðeins 115 krónur.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira