Viðskipti erlent
164 165 166 167 168 169 170 171 172 … 334 ›
Nettengd fjarskiptatæki sjö milljarðar árið 2015 Gert er ráð fyrir að um 7.1 milljarður fjarskiptatækja sem tengst geta veraldarvefnum verði í umferð árið 2015. Þetta kemur fram í skýrslu Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti á dögunum. Viðskipti erlent 4.9.2012 11:16
Lufthansa aflýsir 190 flugferðum vegna verkfalls Þýska flugfélagið Lufthansa hefur aflýst 190 af flugferðum sínum í morgun vegna yfirstandandi verkfalls flugliða hjá félaginu. Nær allar þessar flugferðir voru áætlaðar frá alþjóðaflugvellinum í Frankfurt. Viðskipti erlent 4.9.2012 09:41
Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar nokkuð Nokkur hækkun hefur orðið á heimsmarkaðsverði á olíu undanfarin sólarhing eða um og yfir 1%. Viðskipti erlent 4.9.2012 07:37
Andalúsía biður um fjárhagsaðstoð frá Madrid Andalúsía á Spáni hefur nú bæst í hóp þeirra héraða landsins sem farið hafa fram á fjárhagsaðstoð frá stjórnvöldum í Madrid. Viðskipti erlent 4.9.2012 06:57
Moody´s setur lánshæfiseinkunn ESB á neikvæðar horfur Matsfyrirtækið Moody´s hefur sett topplánshæfiseinkunn Evrópusambandsins á athugunarlista sinn með neikvæðum horfum. Viðskipti erlent 4.9.2012 06:47
Norðmenn ætla ekki að bora í Norðurpólinn Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, hefur sett ofan í við einn af ráðherrum sínum, sjálfan olíu- og orkumálaráðherrann Ola Borten Moe, vegna yfirlýsingar hans um að Noregur gæti leitað að olíu og gasi alla leið á Norðurskautið. Norðmenn leyfa nú þegar boranir í Barentshafi, langt norðan heimskautsbaugs, og var olíumálaráðherrann, sem situr fyrir Miðflokkinn í þriggja flokka rauðgrænni ríkisstjórn Noregs, spurður í Stafangri í síðustu viku, í tengslum við ráðstefnu olíuiðnaðarins, hve langt norður á bóginn ætti að sækja. Olíumálaráðherrann svaraði að engin ástæða væri til að hætta núna enda næði lögsaga Noregs nánast alla leið á Norðurpólinn. Viðskipti erlent 4.9.2012 05:00
Draghi ýjar að fjárinnspýtingu Mario Draghi, bankastjóri Seðlabanka Evrópu, ýjaði að því á lokuðum fundi í Evrópuþinginu í dag að bankinn gæti þurft að koma þjóðríkjum í vanda til hjálpar með frekari kaupum á ríkisskuldabréfum. Frá þessu greindi Wall Street Journal á vef sínum í kvöld. Draghi var til svara á fundi í Evrópuþinginu, en mánaðarlegur peningastefnufundur Seðlabanka Evrópu fer fram á fimmtudaginn. Viðskipti erlent 3.9.2012 21:16
Þjóðverjar vilja Grikki úr evrusamstarfinu Aðeins fjórðungur Þjóðverja telur að Grikkir eiga að vera áfram í evrusamstarfinu og þiggja frekari fjárhagsaðstoð frá hinum evruríkjunum, samkvæmt nýrri skoðanankönnun sem Financial Times gerði í Þýskalandi. Viðskipti erlent 3.9.2012 18:02
Apple vill banna Galaxy S3 í Bandaríkjunum Apple krefst þess nú að lögbann verði sett á sölu Galaxy S3 snjallsímans í Bandaríkjunum. Síminn er flaggskip suður-kóreska raftækjaframleiðandans Samsung en fyrirtækið er helsti samkeppnisaðili Apple. Viðskipti erlent 3.9.2012 12:32
Aðdáendur endurgera Half-Life Bandaríski tölvuleikjaframleiðandinn Valve tilkynnti um helgina að uppfærð útgáfa af tölvuleiknum Half-Life væri væntanlega í þessum mánuði. Síðustu átta ár hafa aðdáendur Half-Life unnið að uppfærslunni en Valve gaf út sérstök forrit sem einstaklingar gátu notað til að endurforrita leikinn. Viðskipti erlent 3.9.2012 12:05
Iceland Foods ræður nýjan viðskiptastjóra Breska verslunarkeðjan Iceland Foods hefur ráðið fyrrverandi sölustjóra Aldi, Paul Foley, sem alþjóðlegan viðskiptastjóra fyrirtækisins. Foley mun sjá um útflutningsþjónustu Iceland Foods, ITEX, ásamt því að hafa umsjá með verslunum fyrirtækisins í Tékklandi. Viðskipti erlent 3.9.2012 11:40
Atvinnuleysi eykst enn á evrusvæðinu Atvinnuástandið á evrusvæðinu heldur áfram að versna og enn eitt metið í fjölda atvinnulausra var slegið á svæðinu í júlímánuði. Viðskipti erlent 3.9.2012 09:37
Samskiptavefurinn Instagram að breytast í klámvef Samskiptavefurinn Instagram er að breytast í klámvef. Þar sem áður voru huggulegar myndir af kaffibollum, matarboðum og tísku eru nú myndir af nöktu fólki í ýmiskonar stellingum. Viðskipti erlent 3.9.2012 07:06
Kallar eftir ótvíræðum aðgerðum til að leysa fjármálakreppuna Marianno Rajoy, forsætisráðherra Spánar, segir að leiðtogar ríkjanna á evrusvæðinu verði að finna varanlega lausn á skuldavandanum sem ógni tilvist evrunnar. Framkvæmdastjóri Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD tekur undir og gagnrýnir Seðlabanka Evrópu fyrir að gera ekki nóg vegna fjármalakrísunnar og til að treysta stoðir evrunnar sem gjaldmiðils. Viðskipti erlent 2.9.2012 12:17
Seðlabanki Evrópu þarf að gera meira til að leysa skuldavandann Angel Gurria, framkvæmdastjóri Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, segir að Seðlabanki Evrópu verði að gera meira til að leysa skuldavandann á evrusvæðinu og treysta á stoðir evrunnar sem myntar. Viðskipti erlent 2.9.2012 09:46
Um 35 milljarða hagnaður á hálfu ári - Enn óvissa í kortunum Mikill hagnaður einkenndi rekstur bankanna á fyrri helmingi ársins en samanlagður hagnaður þeirra nam nálægt fjörutíu milljörðum króna. Bankastjóri Landsbankans segir þó enn töluverða óvissu í kortunum. Viðskipti erlent 31.8.2012 20:00
iPhone 5 væntanlegur á næstu dögum Sá orðrómur er nú í hámæli að Apple hyggist sleppa frá sér nýrri útgáfu af iPhone 12. september og "iPad mini" - smækkaðri gerð af spjaldtölvunni vinsælu - einhvern tíma í október. Viðskipti erlent 31.8.2012 16:52
Auðkýfingar takast á - Abramovich sigraði Berezovsky Rússneski auðkýfingurinn Boris Berezovsky, sem búið hefur í útlegð í Lundúnum síðustu ár, tapaði í dag dómsmáli gegn Roman Abramovich, eiganda breska fótboltaliðsins Chelsea FC. Viðskipti erlent 31.8.2012 13:06
Apple og Google leggja niður vopn í einkaleyfadeilu Talið er að tæknirisarnir Apple og Google hafi nú samið um vopnahlé en stjórnarformenn og aðrir hátt settir stjórnendur fyrirtækjanna hafa fundað síðustu daga um hönnun snjallsíma og vernd hugverka. Viðskipti erlent 31.8.2012 11:38
Kínverjar kaupa Airbus vélar fyrir 420 milljarða Kínversk stjórnvöld hafa gengið frá samningi við flugvélaframleiðandann Airbus um kaup á 50 flugvélum fyrir um 3,5 milljarða dala, eða sem nemur um 420 milljörðum krónum. Gengið var frá kaupunum á fundi sem skipulagður var í tengslum við opinbera tveggja daga heimsókn Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, til Kína. Viðskipti erlent 31.8.2012 08:44
Matvælaverð hækkaði um 10% á heimsvísu í júlí Verð á matvælum hækkaði að meðaltali um 10% á heimsvísu í síðasta mánuði. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Alþjóðabankanum. Viðskipti erlent 31.8.2012 07:25
Eiffel turninn er verðmætasta mannvirki Evrópu Mannvirki sem trekkja að ferðamenn geta verið fjárhagslega mikils virði sem slík. Ítalskir talnaspekúlantar tóku sig til á dögunum og reiknuðu út fjárhagslegt virði nokkurra helstu mannvirkja heims. Þar trónir Eiffel turninn á toppnum, en turninn er 67 billjóna króna virði miðað við frétt Túrista.is. Viðskipti erlent 30.8.2012 16:47
Amazon kynnir nýja spjaldtölvu í næstu viku Vefverslunin og tæknifyrirtækið Amazon tilkynnti í dag að spjaldtölva félagsins, Kindle Fire, væri ekki lengur fáanleg. Talið er að Amazon hafi nú hætt allri framleiðslu á spjaldtölvunni. Viðskipti erlent 30.8.2012 16:43
Meðstofnandi Facebook losar sig við hlutabréf Dustin Moskovitz, meðstofnandi Facebook og fyrrverandi herbergisfélagi Mark Zuckerberg, seldi í dag 450 þúsund bréf í samskiptamiðlinum. Moskovitz fékk 8.7 milljónir dollara í sinn hlut fyrir bréfin eða það sem nemur tæplega 1.1 milljarði íslenskra króna. Viðskipti erlent 30.8.2012 16:18
Antony Jenkins ráðinn forstjóri Barclays Antony Jenkins hefur verið ráðinn nýr forstjóri breska bankans Barclays. Bob Daimond, fyrrum forstjóri bankans, sagði starfi sínu lausu eftir að bankinn viðurkenndi stórfelld lögbrot sem snéru að fölsun vaxtaálags á skuldir bankans. Bankinn greiddi 290 milljónir punda, tæplega 56 milljarða króna, í sekt til breska fjármálaeftirlitsins vegna málsins. Viðskipti erlent 30.8.2012 13:45
Sony reynir á ný við spjaldtölvumarkaðinn Tækniráðstefnan IFA í Berlín stendur nú sem hæst. Raftækjaframleiðandinn Sony kynnti í gær nýja vörulínu en þar á meðal er vatnsheld spjaldtölva og þrír spánýir snjallsímar. Viðskipti erlent 30.8.2012 11:57
Samsung gefur ekkert eftir - kynnir nýja vörulínu Suður-Kóreski raftækjaframleiðandinn Samsung kynnti nýjustu vörulínu sína á IFA tækniráðstefnunni í Berlín í gær. Enginn uppgjafartónn er í Samsung, þrátt fyrir slæma niðurstöðu í dómsmáli gegn Apple á dögunum. Viðskipti erlent 30.8.2012 11:02
Obama einblínir á samskiptamiðla - heimsótti Reddit Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sat óvænt fyrir svörum á vefsíðunni Reddit í gær. Nokkur þúsund spurninga bárust frá notendum síðunnar en forsetinn sá sér ekki annað fært en að svara aðeins tíu af þeim. Viðskipti erlent 30.8.2012 10:36
Stefnir í mesta hagnað bandarískra bænda í sögunni Allt útlit er fyrir að hreinn hagnaður hjá bandariskum bændum í ár verði sá mesti í sögunni. Og það þrátt fyrir uppskerubrest í nokkrum ríkjum landsins vegna mikilla þurrka í vor og sumar. Viðskipti erlent 30.8.2012 06:34
Eyjafjallajökull? - Google skilur nú íslensku Íslensku hefur nú verið bætt við raddleit tæknirisans Google. Háskólinn í Reykjavík og Máltæknisetur hafa unnið að verkefninu síðustu ár og það í samstarfi við Google. Notendur geta nú nýtt sér þessa þjónustu. Trausti Kristjánsson, athafnarmaður og starfsmaður Google, segir tæknina bjóða upp á margskonar möguleika. Viðskipti erlent 29.8.2012 13:36