Rafíþróttir

Aron Þormar hársbreidd frá titlinum: Spilaði tvo leiki með Covid-19
Klukkan 19.15 í kvöld sýnir Stöð 2 E-Sport beint frá úrvalsdeildinni í eFótbolta. Allar líkur eru á því að Aron Þormar Lárusson í Fylki landi titlinum en hann er hársbreidd frá því. Vísir tók stöðuna á Aroni í gærkvöld.

Úrvalsdeildin í Efótbolta í beinni: Alexander Aron þarf sigur til að eiga möguleika á efsta sætinu
Úrvalsdeildina í efótbolta í samstarfi við Rafíþróttasamtök Íslands heldur áfram í kvöld. Leikirnir verða að venju sýndir beint á Twitch-rás KSÍ. Finna má streymi á leiki kvöldsins neðst í fréttinni.

Dusty Stórmeistarar
Stálin stinn mættust í úrslitaleik Stórmeistaramóts Vodafonedeildarinnar. Þar tókust á lið Dusty og Hafsins í hörkuspennandi viðureign. Eftir að Dusty hafði betur í Vertigo sem var þeirra kortaval var leiðinni haldið í Dust2, val Hafsins.

Í beinni : Úrslit Stórmeistaramótsins | Dusty gegn Hafinu
Úrslit Stórmeistaramóts Vodafonedeildarinnar ráðast í viðureign kvöldsins. Þar mætast Dusty og Hafið en þessi lið hafa eldað grátt silfur undarfarin misseri. Dagskrá hefst kl 18:00 en viðureignin sjálf kl 20:00.

Úrslitin ráðast í stærstu rafíþróttakeppni landsins í dag
Úrslitin ráðast í dag er Dusty og HaFiÐ mætast í úrslitaleik Stórmeistaramótsins í Counter-Strike: Global Offensive. Upphitun fyrir leikinn byrjar klukkan 18:00 á opinni dagskrá á Stöð2 eSports, hér á Vísi og á twitch rás Rafíþróttasamtakana twitch.tv/rafithrottir.

Keppendur hituðu upp fyrir stórmeistaramót með því að gefa hvor öðrum skrýtnar pizzur
Það er stór helgi framundan í rafíþróttaheiminum á Íslandi þar sem úrslitin í Vodafone deildinni munu ráðast

Uppgjör kynslóðanna í úrslitaleik Vodafone-deildarinnar
Ungt lið Dusty ætlar sér sigur á reynsluboltunum í Hafinu í úrslitaleik Vodafone-deildarinnar í CS:GO á sunnudaginn.

Hafið yfir allan vafa hverjir vinni: „Meira eins og Liverpool og Millwall“
„Ég held að við eigum eftir að taka þetta lið frekar létt, eins og alltaf,“ segir Sverrir Hjaltested, leikmaður Hafsins, fyrir úrslitaleikinn við Dusty í Vodafone-deildinni í tölvuleiknum CS:GO.

„Þetta er El Clásico“
Það dregur til tíðinda á sunnudagskvöldið er úrslitaleikurinn í Vodafone-deildinni í CS:GO fer fram. Þar mætast Dusty og Hafið.

Hafið tók KR
Undanúrslitaleikur Stórmeistaramóts Vodafonedeildarinnar í CS:GO fór fram í gærkvöldi. Það voru stórveldi KR og lið Hafsins sem tókust á um sæti í úrslitunum.

Hafið viðstöðulaust í undanúrslit
Stórmeistaramót Vodafonedeildarinnar í CS:GO heldur áfram. Önnur viðureign dagsins var Hafið gegn Viðstöðunni.

KR komnir í úrslit
Stórmeistaramót Vodafonedeildarinnar eru í fullu fjöri. Hófst dagurinn á viðureign stórveldisins KR gegn ellismellunum og reynsluboltunum í VALLEA. KR-ingar unnu sér sæti á mótinu með frábærri frammistöðunni í Vodafonedeildinni. En VALLEA komst inn í gegnum áskorendamótið.

Í beinni: Stórmeistaramótið heldur áfram | KR mætir áskorendaliði VALLEA í fyrsta leik
Hörkuspennandi viðureignir eru í vændum á stórmeistaramóti Vodafonedeildardarinnar í CS:GO. Munu þær leiða í ljós hverjir spila til úrslita gegn Dusty sem tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum með frábærri frammistöðu í gær.

Dusty komnir í úrslit
Deildarmeistarar Dusty og stórveldið Þór Akureyri tókust á í undanúrslitaleik stórmeistaramóts Vodafonedeildarinnar. Voru þetta hnífjafnir leikir þar sem sigur liðið þurfti að hafa fyrir hverri einustu lotu.

Þór sló Fylkir út
Stórmeistaramótið í CS:GO hélt áfram með frábærri viðureign Þórs og Fylkis. Liðin spiluðu bæði í úrvalsdeildinni og mættust þar tvisvar þar sem Fylkir bar sigur úr bítum í bæði skiptin. En í viðureign kvöldsins kom í ljós hvort liðið hefur verið duglegra að brýna hnífana.

Dusty losaði sig við Samviskuna
Stórmeistaramótið var opnað með viðureign Dusty og Samviskunnar. Liðin tókust á í kortunum Nuke og Train. Eru sigurvegararnir komnir í undanúrslit.

Í beinni: Stórmeistaramótið hefst í dag | Dusty mætir spútnik lið Samviskunnar í fyrsta leik
Stórmeistaramót Vodafonedeildarinnar í CS:GO hefst í dag. Áskorendamótinu lauk síðustu helgi og eru áskorendurnir mættir í Stórmeistaramótið til að skora á fjögur bestu lið landsins.

Þakkar Counter-Strike fyrir að koma sér upp úr sínum dýpsta dal
Ólafur Barði Guðmundsson segir að Counter-Strike hafi hjálpað honum gífurlega á sínum tíma. Hann hefur verið einn besti leikmaður Íslands undanfarin ár og gæti nú mætt bróður sínum á Stórmeistaramóti Vodafonedeildarinnar.

„Erum búnir að vinna England og erum að fara að mæta Frakklandi“
Spútniklið Samviskunnar mætir stórliði Dusty í fyrsta leik stórmeistaramótsins í CounterStrike. Leiðtogi Samviskunnar segir sigurlíkurnar engar en liðið muni fagna öllum áföngum sem nást.

Bein útsending frá GTS Iceland: Tier 1
GTS Iceland er fyrsta og eina íslenska mótaröðin í Gran Turismo Sport og var jafnframt fyrsta skipulagða hermikappakstursmótaröðin á Íslandi þegar hún fór af stað í upphafi árs 2018.

Í beinni: Tveir hörkuleikir í úrvalsdeildinni í eFótbolta
Knattspyrnusamband Ísland hefur stofnað úrvalsdeildina í efótbolta í samstarfi við Rafíþróttasamtök Íslands. Leikir kvöldsins verða sýndir beint á Twitch-rás KSÍ.

Fylkir í fjórða
Úrvalslið XY mætti Fylki í loka leik Vodafonedeildarinnar í CS:GO. Þrátt fyrir að hafa verið á heimavelli áttu liðsmenn XY erfitt uppdráttar.

Þórsarar harðir á heimavelli
Þór tók á móti GOAT á heimavelli í Vodafonedeildinni. Var þetta lokaumferð deildarinnar og var kortið Train spilað.

KR gerði sér lítið fyrir og sendi Exile heim
Úrvalsliðin KR og Exile áttu fyrsta leikinn í lokaumferð Vodafonedeildarinnar í CS:GO. Lið KR bauð Exile á heimavöll og var kortið Inferno spilað.

Í beinni: Vodafonedeildin í CS:GO, viðureign erkifjanda
Fjórtánda umferð í Vodafonedeildinni í CS:GO fer fram í kvöld. Þrusu leikir eru á dagskránni í kvöld. Toppliðin Hafið og Dusty munu mætast í millileik kvöldsins. Fylgstu með í beinni á Stöð 2 esport og hér á Vísi.

Mikið í húfi í lokaumferðinni í kvöld
Þrjú lið eiga enn á hættu að fylgja Exile niður úr Vodafonedeildinni í Counter-Strike en lokaumferðin fer fram í kvöld.

Hafið braut Þór
Úrvalslið Hafsins mætti stórveldi Þórs í Vodafonedeildinni í CS:GO. Þór sem var á heimavelli valdi kortið Dust2 og mættu þeir vel undirbúnir til leiks.

KR stöðvaði sigurgöngu Dusty
Stórmeistarar Dusty tóku á móti KR á heimavelli í Vodafonedeildinni fyrr í kvöld. KR-ingar sýndu frábæra takta á mót Dusty sem voru taplausir í deildinni fram að þessum leik.

Fylkir með sannfærandi sigur
Úrvalsliðið GOAT tók á móti stórveldi Fylkis í Vodafonedeildinni fyrr í kvöld. Var GOAT á heimavelli og buðu þeir heim í Nuke.

Í beinni: Vodafonedeildin í CS:GO, toppslagur Dusty og KR
Þréttánda umferð í Vodafonedeildinni í CS:GO fer fram í kvöld. Hörku leikir eru á dagskránni í kvöld. Helst bera að nefna slag toppliðanna KR og Dusty. Fylgstu með í beinni á Stöð 2 esport og hér á Vísi.