Menning
190 191 192 193 194 195 196 197 198 … 334 ›
Linda Björk í DaLí gallery Linda Björk Ólafsdóttir opnar málverkasýningu í DaLí galleryi á Akureyri laugardaginn 10. febraúar næstkomandi. Hefst sýningin klukkan 17:00. Verður sýningin opin til 25. febrúar og eru allir velkomnir. Menning 8.2.2007 14:00
Stúdentadansflokkurinn sýnir Sannar ástar-Sögur Stúdentadansflokkurinn, sem saman stendur af dönsurum sem eiga það semeiginlegt að stunda háskólanám, sýnir nú dansleikhúsverkið Sannar ástar-Sögur. Verk þetta er frumraun flokksins. Verkið Sannar ástar-Sögur fjallar um ástina í hinum ýmsu myndum og sjá áhorfendur sýninguna lifna við fyrir framan þá, í bókstaflegum skilningi. Menning 7.2.2007 18:55
Baugur styrkir listafólk Síðla mánudags var úthlutað í þriðja sinn úr Styrktarsjóði Baugs-grúppunnar en sjóðurinn sem stofnað var til sumarið 2005 veitti þá styrki til ýmissa líknar- og velferðarmála auk menningar og listalífs. Það er Jóhannes Jónsson sem er formaður sjóðstjórnar, en með honum sitja þau í stjórninni Ingibjörg Pálmadóttir og Hreinn Loftsson. Menning 7.2.2007 09:45
Dýrasta bókin Ritverk sem kallað hefur verið dýrasta bók í heimi er nú til sýnis í Þýskalandi. Vefritið Deutsche Welle greinir frá því að bók þessi sé svo viðkvæm að almenningi gefst aðeins kostur á að sjá hana í sex vikur á ári. Menning 7.2.2007 09:45
Listahátíðin í Björgvin Það verða eitt hundrað og sextíu dagskráratriði í boði á Listahátíðinni í Bergen í vor, en þar er dagskráin kynnt. Listahátíðin í Reykjavík kynnir sína dagskrá á föstudag. Menning 7.2.2007 08:45
Rafræn útgáfa Félag íslenskra bókaútgefenda býður til morgunverðarfundar á föstudaginn þar sem litið verður yfir stöðu rafrænnar bókaútgáfu á Íslandi og rædd helstu úrlausnarefni og tækifæri á þeim vettvangi. Menning 7.2.2007 07:45
Maður sem giftist konu með skegg Það er frumsýning í Óperunni á föstudagskvöldið og leikstjórinn og hans lið eru að komast á lygnan sjó: tæknin er að komast í lag og söngvararnir teknir að setjast í hlutverkin sín. Menning 7.2.2007 06:30
Endurskapa sögulegt vistkerfi Velgengni samvinnuverkefnisins Wikipedia hefur alið af sér annað netfyrirbrigði sem kennt er við Wiki-skáldskap. Forlagið Penguin hefur í samvinnu við De Montfort-háskólann í Leicester stofnað til verkefnis sem þau kenna við „Milljón mörgæsir“ og er einhvers konar opin ritæfing fyrir áhugasama netverja sem vilja taka þátt í því að skrifa skáldsögu. Menning 6.2.2007 09:30
Miðvikudagserindi Orkugarðs Stefanía G. Halldórsdóttir, sérfræðingur á Vatnamælingum Orkustofnunar, mun flytja miðvikudagserindi Orkustofnunar næstkomandi miðvikudag. Ber erindi hennar heitið Vatnafarsleg flokkum vatnssvæða á Íslandi - Hvernig bragðast landsvæði við úrkomu og miðla henni? Verður fræðsluerindið haldið í Víðigemli, sal Orkugarðs að Grensásvegi 9 í Reykjavík, á milli klukkan 13:00 og 14:00 miðvikudaginn 7. febrúar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomir. Menning 5.2.2007 14:47
Mínus hitar upp fyrir Incubus Hljómsveitin Mínus mun hita upp fyrir tónleika Incubus í Laugardalshöll sem fram fara þann 3. mars. Hljómsveitin mun flytja efni af nýrri breiðskífu. Þetta eru fyrstu tónleikar Mínus hér á landi síðan á Iceland Airwaves-hátíðinni í fyrra. Væntanleg breiðskífa var tekin upp í Los Angeles. Incubus þykri með betri tónleikasveitum Bandaríkjanna og nýjasta plata sveitarinnar, Light Granades fór beint í fyrsta sæti Billboard listans þegar hún kom út. Menning 5.2.2007 11:26
Heimspekifyrirlestur Félag áhugamanna um heimspeki verður með fyrirlestur á morgun, laugardagin 3. febrúar kl: 15:00. Fyrirlesturinn ber heitið ,,Smalakrókar - Paul Ricoeur um sjálfsvitund og samsemd”. Menning 2.2.2007 17:36
Leiðsla – Ný sýning í Listasafni ASÍ Á morgun, laugardaginn 3. febrúar klukkan 15:00, opnar sýning Eyglóar Harðardóttur í Ásmundarsal og Gryfjunni í Listasfani ASÍ. Ber sýningin heitið Leiðsla. Á sýningunni má sjá skjáverk, málverk á pappír, teikningar og þrívíð verk sem öll eru unnin með Ásmundarsal og Gryfjuna í huga. Menning 2.2.2007 17:16
Harry Potter kemur út með haustinu hér á landi Aðdáendur galdrastráksins Harry Pottter hér á landi verða að bíða fram á haust þar til þýðingin á síðustu bókinni um hann, Harry Potter and the Deathly Hallows, kemur út. Menning 1.2.2007 14:54
Útgáfu- og upplestrarkvöld Nykurs Út eru komnar þrjár ljóðabækur hjá útgáfu- og skáldafélaginu Nykri, og Því efnir Nykurinn til upplestrarkvölds á veitingastaðnum Litli ljóti Andarunginn við Lækjargötu n.k föstudagskvöld, 2. feb, kl. 21:00 Menning 31.1.2007 16:23
Fjölbreytt sóknarfæri Dr. Halldór Björn Runólfsson var nýlega skipaður í embætti forstöðumanns Listasafns Íslands af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra. Halldór Björn lauk doktorsprófi frá sjónlista- og fagurfræðideild við Sorbonne-háskóla í París á síðasta ári og starfar sem lektor og yfirmaður listfræða við Listaháskóla Íslands. Hann mun taka við starfinu, sem veitt er til fimm ára, þann 1. mars næstkomandi. Menning 25.1.2007 09:00
Ingibjörg Sólrún til sölu fyrir rétt verð „Ingibjörg er verðugt viðfangsefni fyrir málara,“ segir Björn T. Hauksson, ljósmyndari og málari, en hann hefur stillt olíumálverki sem hann málaði af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingarinnar, upp í glugga á ljósmyndastofu sinni á Óðinsgötu. Menning 25.1.2007 07:45
Þrælar þorrans Skáldafélagsskapurinn Nýhil stendur fyrir upplestrarkvöldi í Stúdentakjallaranum við Hringbraut í kvöld. Menning 25.1.2007 04:30
Boðið í vettlinga Bjarts í Sumarhúsum „Þetta er auðvitað tilbúningur og í gamni gert en það hafa margir tekið þessu alvarlega og boðið í vettlingana,“ segir Bragi Kristjónsson fornbókasali. Glöggir vegfarendur hafa rekið augun í forláta ullarvettlinga í glugga Bókarinnar, fornbókaverslun Braga við Klapparstíg, sem merktir eru sjálfum Bjarti úr Sumarhúsi, úr Sjálfstæðu fólki Halldórs Laxness. Tekið er skýrt fram að vettlingarnir séu ekki falir. Menning 24.1.2007 09:15
Faust í þýðingu Coleridge? Stefnt er að því að þýðing enska skáldsins Samuel Taylor Coleridge á Faust, höfuðverki þýska starfsbróður hans Goethes, komi út hjá Oxford University Press í september. Þýðing þessi ku hafa legið í gleymsku í næstum tvær aldir en rómantíkerinn er talinn hafa tekið að sér að þýða verkið í kringum árið 1814. Vefmiðill breska dagblaðsins Independent greindi frá þessu nýlega. Menning 24.1.2007 08:30
Grasrótarstarf í galleriBOXi GalleriBOX er gamall kontór í mjólkurvinnslu norður á Akureyri. Listalífið iðar í Gilinu en fjórar metnaðarfullar konur fara með lyklavöldin í Boxinu, sem hýsir fjölmargar sýningar á hverju ári. Menning 24.1.2007 06:30
Strætóbílstjóri opnar myndlistarsýningu Strætóbílstjórinn Þórhallur Sigurðsson opnaði sína fyrstu opinberu málverkasýningu á sextíu ára afmælisdegi alnafna síns Ladda síðastliðinn laugardag. „Ég hef málað síðustu fjögur árin en ekki nógu mikið samt. Núna er ég að gefa þessu sjéns almennilega en ég hef alltaf hugsað mér að leggja myndlistina fyrir mig,“ segir Þórhallur, sem hefur starfað sem strætóbílstjóri í fjögur ár. Menning 24.1.2007 05:00
Nýsmíðar í Listasafni Íslands Tónlistarhópurinn Aton heldur tónleika í Listasafni Íslands kl. 20 í kvöld – á fjórða degi Myrkra músíkdaga. Aton-hópurinn er skipaður ungu tónlistarfólki sem sérhæfir sig í nýrri íslenskri tónlist og hefur leikið á hátíðinni undanfarin ár. Menning 23.1.2007 07:00
Hið þekkta og óþekkta Myndlistarmennirnir Hlaðgerður Íris Björnsdóttir og Aron Reyr Sverrisson opna sýninu á verkum sínum í Listasafni Reykjanesbæjar á morgun kl. 14. Sýningin ber yfirskriftina "Tvísýna“ og er haldin í Duushúsum. Menning 19.1.2007 04:30
Áttleysur og útþráin Í hinu snyrtilega húsnæði gallerís i8 á Klapparstíg stendur frakkaklæddur gestur og heldur myndlistarmanni á snakki. Myndlistarmaðurinn er búinn að koma fyrir tveimur stórum stálplötulaga verkum á gólfinu en umhverfis eru 32 ferhyrnd en aflöng verk í römmum: öll sýna það sama - fleyg úr áttunum 32 á áttavitanum. Menning 18.1.2007 02:00
Hvað leynist í skúffunum? Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka efnir árlega til verðlaunasamkeppni og auglýsir eftir handritum að skáldsögum fyrir börn og unglinga. Sagan skal vera að lágmarki fimmtíu blaðsíður að lengd eða um tuttugu þúsund orð. Ekki er gert ráð fyrir því að verðlaunasagan verði myndskreytt. Menning 16.1.2007 08:30
Öðruvísi saga - Fjórar stjörnur Bókin hentar vel ungum lesendum og er ég viss um að fólk á þeim aldri hefur oft leitt hugann að svipuðum aðstæðum og Kæja hugsar um. Hugleiðingar hennar gætu þannig vakið fleiri spurningar og veitt kjörið tækifæri fyrir hina eldri að ræða við hina yngri um stríðsátök, söguna og ástandið í dag. Menning 16.1.2007 07:45
Unnið með almenna ógæfu Myndlistarmaðurinn Kolbeinn Hugi Höskuldsson heldur óvenjulega sýningu í Nýlistasafninu um þessar mundir. Yfirskrift hennar er „Still drinking about you“ en þar veitir hann gestum sínum „einstakt tækifæri til að skyggnast inn í íveru listamannsins jafnframt því að fjalla á fordómalausan hátt um sjúkan hugarheim fíkilsins“. Menning 16.1.2007 03:00
Afmælisrit um Melaskóla Út er komin hjá Skruddu glæsilegt afmælisrit um Melaskólann sem varð 60 ára í október síðastliðinn. Þar eru birtar skrár um alla nemendur sem þaðan luku barnaskólaprófi frá upphafi til þessa dags ásamt bekkjarmyndum. Menning 15.1.2007 06:30
Mannamyndir á söfnum Þrjár stórsýningar hafa verið uppi í London á þessu hausti: Mannamyndasýningu Þjóðverjans Hans Holbein (1497/98-1543) lauk í Tate-safninu síðasta sunnudag. Menning 13.1.2007 13:30
Bók um Mikines hrósað Nesútgáfunnar um færeyska málarann Samal Joensen-Mikines sem Aðalsteinn Ingólfsson er aðalhöfundurinn að fær framúrskarandi umsögn hjá Peter Michael Hornung í Politiken um helgina. Ein glæsilegasta útgáfa ársins segir gagnrýnandinn og hrósar aðstandendum útgáfunnar fyrir metnað í öllum frágangi verksins. Menning 13.1.2007 10:30