
Körfubolti

Taka inn nýjan mann eftir stutt stopp Franck í Þorlákshöfn
Franski bakvörðurinn Franck Kamgain stoppaði stutt við í Þorlákshöfn eftir að hafa samið þar við lið Þórs fyrr í mánuðinum fyrir komandi tímabil í Bónus deild karla í körfubolta. Hann hefur verið látinn fara en Þórsarar hafa nú þegar tekið inn nýjan mann fyrir hann.

Tryggvi með tíu í fyrsta leik
Landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason átti sinn þátt í 90-72 sigri Bilbao Basket á Breogán í fyrstu umferð efstu deild Spánar í körfubolta í dag.

Valsmenn neituðu að veita viðtöl
Íslandsmeistarar Vals veittu engin viðtöl eftir tapið gegn Keflavík í kvöld, í Meistarakeppni karla í körfubolta.

„Mátti þetta ekki í Þýskalandi“
Bikarmeistarar Keflavíkur tóku á móti Íslandsmeisturum Vals í Blue höllinni í kvöld þar sem Meistari Meistaranna í körfubolta karla fór fram. Það voru Keflvíkingar sem höfðu betur með tíu stiga mun 88-98.

Martin magnaður í fyrsta sigrinum
Martin Hermannsson virðist vera kominn á fulla ferð í þýska körfuboltanum með Alba Berlín en hann átti stórleik í 105-70 sigri gegn Oldenburg í dag.

„Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“
Keflavík tók á móti Þór Akureyri í Blue höllinni í dag þar sem Meistari meistaranna í körfubolta kvenna fór fram. Það voru margir sem bjuggust fyrir fram við sigri Keflavíkur í dag en það voru Þór Akureyri sem komu öllum að óvörum og höfðu betur 82-86.

Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi
Íslandsmeistarar Vals urðu að sætta sig við tíu stiga tap, 98-88, gegn bikarmeisturum Keflavíkur í Meistarakeppni KKÍ karla. Leikurinn fór fram í Blue-höll þeirra Keflvíkinga.

Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum
Íslands- og bikarmeistarar Keflavíkur urðu að sætta sig við tap gegn Þór Akureyri, 86-82, í Meistarakeppni kvenna í körfubolta í dag. Þór spilaði leikinn eftir að hafa mætt Keflavík í úrslitaleik bikarkeppninnar á síðasta tímabili.

Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum
New York Knicks og Minnesota Timberwolves opna leikmannamarkað NBA-deildarinnar í körfubolta með sannkölluðum risaskiptum. Miðherjinn Karl-Anthony Towns er á leið New York á meðan Minnesota fær Julius Randle og Donte DiVincenzo ásamt fyrsta valrétti í nýliðavalinu.

Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“
Hin sautján ára gamla Ísold Sævarsdóttir. Sem var einn besti leikmaður efstu deildar kvenna í körfubolta á síðasta tímabili. Hefur tekið þá erfiðu ákvörðun að taka sér hlé frá körfuboltaiðkuninni til þess að elta annan draum.

Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins
Spænska körfuknattleiksliðið Bilbao Basket er komið í riðlakeppni Evrópubikarsins eftir gríðarlega öruggan sigur á Neptunas frá Litáen í báðum leikjum liðanna.

Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“
Pavel Ermolinskij segir að sér hafi mistekist að koma áherslunum sínum til skila til leikmanna Tindastóls. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fyrsta þætti GAZins, nýs hlaðvarps í umsjón Pavels.

Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum
Íslandsmeisturum Vals og Keflavíkur er spáð sigri í Bónus deildum karla og kvenna í körfubolta í árlegri spá þjálfara, fyrirliða og formanna liðanna í deildunum.

Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar
Kynningarfundur Bónus-deildanna fór fram í dag og á fundinum var birt hin árlega spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna um gengi liðanna í vetur.

Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke
Körfuknattleiksdeild Álftaness hefur hætt við að tefla fram franska leikmanninum Alexis Yetna í vetur og hélt hann heimleiðis á miðvikudagsmorgun. Í stað hans hafa Álftnesingar samið við David Okeke.

Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds
Pavel Ermolinskij, margfaldur Íslandsmeistari í körfubolta sem leikmaður og þjálfari, verður í hópi sérfræðinga í Bónus Körfuboltakvöldi á komandi keppnistímabili í Bónus deild karla.

Helena verður á skjánum í vetur
Sjónvarpsþættinum Bónus Körfuboltakvöldi hefur borist afar mikill liðsstyrkur fyrir nýtt tímabil sem hefst með upphitunarþætti á Stöð 2 Sport annað kvöld.

Derrick Rose leggur skóna á hilluna
Körfuboltamaðurinn Derrick Rose hefur lagt skóna á hilluna. Hann er sá yngsti sem hefur verið valinn verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar.

Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“
Nýliðatímabili stórstjörnunnar Caitlin Clark í WNBA deildinni í körfubolta er lokið. Lið hennar, Indiana Fever, féll úr leik í úrslitakeppni deildarinnar í nótt. Clark hefur rifið deildina upp á annað plan í vinsældum og um leið sett fjöldan allan af metum. Framhaldið er afar spennandi. Ekki bara fyrir WNBA deildina. Heldur körfuboltann í heild sinni.

Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið
Það kemur ekki til greina að leikmenn tyrkneska körfuboltaliðsins Fenerbahce spili fyrir tyrkneska landsliðið, á meðan að Ergin Ataman stýrir landsliðinu. Heiftúðugur rígur veldur því.

Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar
Stjarnan hefur styrkt sig fyrir komandi átök í Bónus-deild kvenna í körfubolta. Liðsstyrkurinn kemur frá Búlgaríu.

Shabazz semur við Njarðvík
Njarðvíkingar hafa nú þegar fundið nýjan Bandaríkjamann til að leika með liðinu í Bónusdeild karla í vetur.

Shaq í Stjörnuna
Stjarnan tilkynnti í gær tvo nýja erlenda leikmenn sem munu spila fyrir Garðbæinga næsta tímabil í Bónusdeildinni.

Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót
Njarðvík hefur rift samningi sínum við bandaríska leikmenn liðsins, en deildarkeppnin sjálf hefst 3. október.

Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann
Hlynur Bæringsson verður elsti leikmaðurinn í Bónusdeild karla í vetur. Hann gat ekki hugsað sér að hætta eftir síðasta vonbrigðatímabil.

Viktor aftur heim í Stjörnuna
Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur samið við Viktor Lúðvíksson sem kemur til liðsins frá Munster í Þýskalandi.

Clark slegin í augað í frumraun
Eftir að hafa verið valin nýliði ársins í WNBA-deildinni í körfubolta, með fullt hús stiga, varð Caitlin Clark að sætta sig við stórt tap með Indiana Fever í sínum fyrsta leik í úrslitakeppni.

Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru
Adrian Wojnarowski hefur ákveðið að vanda kvæði sínu í kross og breyta um starfsvettvang. Hann hefur því sagt starfi sínu hjá íþróttafréttarisanum ESPN lausu. Frá þessu greindi Woj, eins og hann er öllu jafnan kallaður, á samfélagsmiðlum sínum.

Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“
„Við erum svekkt yfir þessu en skiljum ákvörðunina,“ segir Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands. Bikarkeppnunum í handbolta og körfubolta hefur verið úthýst úr Laugardalshöll.

Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin
Íslenski körfuboltamaðurinn Martin Hermannsson hefur verið gerður að fyrirliða Alba Berlin.