Handbolti

Elvar Örn og Arnar Freyr á toppnum eftir sigur í Íslendingaslag
MT Melsungen er á toppnum í þýsku Bundesligunni í handbolta eftir eins marks útisigur á Leipzig í Íslendingaslag í kvöld.

Uppgjörið: HK - ÍR 37-31| HK vann botnslaginn
HK fór með sigur af hólmi gegn ÍR í Olís-deild karla í handbolta í kvöld er liðin mættust í Kórnum.

Frækin ferð Kolstad til Ungverjalands
Kolstad vann tveggja marka útisigur á PICK Szeged í Íslendingaslag í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld.

„Vel liðið eftir minni eigin sannfæringu og fylgi því“
Íslenska karlalandsliðið í handbolta kemur bráðum saman og hefur keppni í undankeppni Evrópumótsins 2026. Augu liðsins eru þó einnig á undirbúningi fyrir næsta stórmót. Sjálft heimsmeistaramótið í janúar Þeir fáu dagar sem liðið fær saman á næstu mánuðum eru mikilvægir og segir Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari hug sinn vafalaust á öðrum stað en hugur leikmanna á þessum tímapunkti. Snorri gerir eina stóra breytingu á hópi Íslands. Sveinn Jóhannsson fær tækifærið í línumannsstöðunni. Reynsluboltinn Arnar Freyr Arnarsson þarf að sitja eftir heima.

Vipers stjörnurnar tjá sig: „Þetta hefur verið rússíbani“
Norsku landsliðsmarkverðirnir Katrine Lunde og Silje Solberg-Østhassel segja að síðustu dagar hafi verið erfiðir. Félagi þeirra, Vipers Kristiansand, var bjargað frá gjaldþroti á síðustu stundu.

Guðmundur stoltur í leikslok í gær: „Þetta var stórkostlegt“
Guðmundur Guðmundsson stýrði Fredericia til sögulegs sigurs í gær en liðið fagnaði þá sínum fyrsta sigri frá upphafi í Meistaradeildinni í handbolta.

Gummi Gumm og Haukur fögnuðu sigri í einvígum Íslendingaliða
Tvö einvígi milli Íslendingaliða fóru fram í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld og fögnuðu rúmenska félagið Dinamo Búkarest og danska félagið Fredericia sigri í þessum leikjum.

Óðinn skoraði mark umferðarinnar með Óðinsskotinu
Að mati EHF skoraði Óðinn Þór Ríkharðsson mark umferðarinnar í Evrópudeildinni í handbolta. Hann skoraði það með sínu einkennisskoti.

Þórir undrandi á hve slæm staðan var og hlífir leikmönnum
Þórir Hergeirsson, fráfarandi landsliðsþjálfari Noregs í handbolta kvenna, segir það hafa komið sér á óvart hve háa upphæð norska félagið Vipers þurfti að greiða til að forða sér frá gjaldþroti á síðustu stundu.

„Rými sem þarf að fylla og mér fannst liðið svara því vel“
Sigursteinn Arndal, þjálfari FH sem vann Sävehof 34-30 í Evrópudeildinni, var sáttur með svar sinna manna eftir erfiða viku og segir liðið vera að stíga skref í rétta átt.

Melsungen ekki í vandræðum með Val
Þýska félagið Melsungen var ekki í vandræðum með Val þegar liðin mættust í F-riðli Evrópudeildar karla í handbolta í kvöld, lokatölur 36-21. Þá átti Óðinn Þór Ríkharðsson frábæran leik og lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar unnu góðan sigur.

Uppgjörið: FH - Sävehof 34-30 | Frábær seinni hálfleikur skilaði fyrsta Evrópudeildarsigrinum
FH vann sinn fyrsta leik í Evrópudeildinni gegn Savehof, 34-30. Gestirnir leiddu leikinn í fyrri hálfleik en heimamenn þéttu raðirnar í seinni hálfleik og unnu sterkan sigur. Savehof er enn stigalaust en getur bætt úr því þegar FH kemur í heimsókn til Svíþjóðar eftir viku.

Tvöfölduðu launin á fjórum árum
Það er líklega engin tilviljun að norska handknattleiksfélagið Vipers frá Kristiansand hafi rambað á barmi gjaldþrots. Þetta stórveldi í handbolta kvenna hefur á síðustu fjórum árum tvöfaldað launakostnað vegna leikmanna.

Þakklátir fyrir en sjá á eftir Aroni: „Útskýrði vel fyrir liðinu hvað væri í gangi“
Karlalið FH í handbolta tekur á móti sænsku meisturunum í Savehof í 3.umferð Evrópudeildarinnar í Kaplakrika í kvöld. Um er að ræða fyrsta leik FH liðsins eftir brotthvarf stórstjörnunnar Arons Pálmarssonar. Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, segir alla í FH liðinu sýna Aroni skilning með ákvörðun hans og samgleðjast honum. Fram undan sé hins vegar mikil vinna sem felst í því að reyna fylla í hans skarð.

Snorri fagnar ákvörðun Arons: „Mér finnst þetta virðingarvert“
Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari fagnar því að Aron Pálmarsson sé aftur að fara að spila með liði í Meistaradeild Evrópu, og segir það lýsandi fyrir persónueinkenni landsliðsfyrirliðans.

Vipers bjargað frá gjaldþroti
Norska handboltafélaginu Vipers Kristiansand, sem hefur unnið Meistaradeild Evrópu í þrígang, hefur verið bjargað frá gjaldþroti.

Íslenski hópurinn sem tekur fyrstu skrefin að EM 2026
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, hefur valið landsliðshópinn sem í næsta mánuði byrjar nýja undankeppni fyrir EM 2026.

Sýnir ólíkum skoðunum á komu Arons skilning: „Treysti Aroni hundrað prósent“
Spánverjinn Xavier Pascual, þjálfari handknattleiksliðs Veszprém, er í skýjunum með að hafa nú fengið Aron Pálmarsson aftur sem sinn lærisvein. Hann kveðst þó skilja að skoðanir stuðningsfólks Veszprém á endurkomu Arons geti verið mismunandi, eftir viðskilnaðinn 2017.

Aron orðinn leikmaður Veszprém á ný
Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, er genginn til liðs við ungverska stórveldið Veszprém og hefur því leikið sinn síðasta leik fyrir FH á þessu tímabili.

Stærsta lið Noregs í þrot
Vipers Kristiansand, sigursælasta liðið í norska kvennahandboltanum undanfarin ár, hefur verið lýst gjaldþrota. Allir 19 leikmenn liðsins eru nú án félags og bíða eftir síðustu launagreiðslum sínum.

Uppgjörið: Haukar - Cocks 35-26 | Haukar fara með gott veganesti til Finnlands
Haukar fóru með afar sannfærandi 35-26 sigur af hólmi þegar liðið fékk finnska liðið Riihimäki Cocks í heimsókn á Ásvelli í fyrri leik liðanna í 32 liða úrslitum Evrópubikarsins í handbolta karla í kvöld.

23 íslensk mörk þegar Magdeburg vann Leipzig
Magdeburg hafði betur í Íslendingaslag á móti Leipzig í þýsku Bundesligunni í handbolta í dag.

Strákarnir hans Gumma Gumm með fimmta sigurinn í röð
Íslendingaliðið Fredericia vann flottan heimasigur á Ringsted í danska handboltanum í dag.

Dana Björg markahæst í sigurleik
Dana Björg Guðmundsdóttir, nýjasta landsliðskona Íslands í handbolta, var markahæst í dag þegar lið hennar fagnaði sigri í norsku b-deildinni.

Komin aftur á völlinn þremur mánuðum eftir barnsburð
Landsliðskonan Sandra Erlingsdóttir var mætt aftur á handboltavöllinn í dag þegar lið hennar Metzingen lagði Göppingen örugglega, 41-34. Þetta var fyrsti keppnisleikur Söndru síðan í lok síðasta árs en hún eignaðist son þann 15. júlí síðastliðinn.

Elvar skoraði sex þegar Melsungen fór á toppinn
Melsungen tyllti sér á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í dag þegar liðið lagði þáverandi topplið Füchse Berlín, 33-31.

Grótta náði í stig gegn meisturum FH
Gróttumenn halda áfram að gera góða hluti í Olís-deild karla í handbolta og þeir komu í veg fyrir að Íslandsmeistarar FH kæmust á toppinn í kvöld, þegar liðin gerðu 24-24 jafntefli á Seltjarnarnesi.

Ýmir dýrmætur í fyrsta sigrinum
Landsliðsmaðurinn Ýmir Örn Gíslason skoraði fimm mörk úr sex skotum fyrir Göppingen í kvöld þegar liðið vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í þýsku 1. deildinni í handbolta.

Fjölnir nálægt því sem Porto tókst ekki en Valskonur á siglingu
Kvenna- og karlalið Vals voru bæði í eldlínunni í kvöld í Olís-deildunum í handbolta. Valskonur unnu Gróttu af öryggi, 38-30, og hafa unnið alla leiki sína til þessa, en karlalið Vals lenti í hremmingum gegn nýliðum Fjölnis í Grafarvogi.

Guðjón og Elliði fögnuðu áfram eftir Íslandsför
Eftir sigurinn örugga gegn FH-ingum í Kaplakrika á þriðjudag unnu lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach tveggja marka sigur á Eisenach, 34-32, í þýsku 1. deildinni í handbolta í kvöld.