Handbolti

„Förum léttar inn í þennan leik“
Rut Jónsdóttir naut sín vel í sigri Íslands á Úkraínu og líður almennt vel á EM í Innsbruck. Spennan er mikil fyrir leik kvöldsins við Þýskaland.

Leikdagur í Innsbruck: Hitum logsuðutækin
Stelpurnar okkar hafa gert vel í íþróttaborginni Innsbruck hingað til. Þær voru nærri sigri gegn Hollandi, unnu svo sögulegan sigur á Úkraínu. Í kvöld er komið að lokaverkefninu hér í bæ, gegn þýska stálinu.

Oft spurt hvernig sé að vinna með „fúla Íslendingnum“
Þórir Hergeirsson, þjálfari kvennaliðs Noregs í handbolta, segist hafa orðið meðvitaðri um það með árunum að stundum mætti hann brosa aðeins meira. Hann viti alveg af því að hann hafi verið stimplaður sem hundfúll og reiður af fólki sem þekki hann ekki.

Óánægður eftir brot á leikmanni Þóris: „Lífshættulegt“
Seinni leikjum kvöldsins á EM kvenna í handbolta var að ljúka og unnu stelpurnar hans Þóris Hergeirssonar í norska liðinu risasigur gegn Slóvakíu, 38-15, án þess þó að þurfa nokkuð á sigri að halda. Rautt spjald fór á loft í leiknum.

„Þá rennur stressið af manni“
Elín Klara Þorkelsdóttir hefur farið mikinn og stýrt leik íslenska kvennalandsliðsins af mikilli yfirvegun þrátt fyrir ungan aldur á hennar fyrsta stórmóti. Hún nýtur sín vel á EM í Innsbruck.

Slóvenía bíður Íslands en ballið búið hjá heimakonum
Evrópumót kvenna í handbolta heldur áfram, að stórum hluta í Austurríki, án þess að austurríska landsliðið verði með því það er úr leik eftir tap gegn Slóveníu í kvöld.

„Gæsahúð allsstaðar“
„Tilfinningin var æðisleg. Þetta var magnað að vera hluti af þessu liði sem afrekaði þetta. Það var gæsahúð allsstaðar. Þetta var frábært,“ segir Elísa Elíasdóttir sem spilaði vel á línu og í vörn í sigri Íslands á Úkraínu á EM kvenna í handbolta í gær.

Hugsaði lítið og stressaði sig minna
„Þetta er ótrúlega stórt og mjög skemmtilegt. Það er gott að vera loksins búin að ná þessum sigri,“ segir Díana Dögg Magnúsdóttir, sem átti stóran þátt í 27-24 sigri Íslands á Úkraínu á EM í Innsbruck í gær.

Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“
Hin þýska Heidrun Oesch hafði enga tengingu við Ísland þegar hún heillaðist af karlalandsliðinu í fótbolta á EM 2016 og stuðningssveit liðsins. Hún mætir á landsleiki eins og hún getur og er nú mætt á EM kvenna í handbolta.

Skýrsla Vals: Söguleg snilld
Eftir sjö töp í sjö leikjum kom fyrsti sigur íslensks kvennalandsliðs á Evrópumóti í kvöld. Mikilvægum áfanga náð í vegferð þessa liðs sem ætlar sér enn meira.

Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu
Íslenski landsliðsmaðurinn Ómar Ingi Magnússon meiddist á ökkla er Magdeburg tók á móti Bietigheim í þýsku deildinni í handbolta í dag.

„Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“
„Þetta er bara geggjað og frábært að hafa allt þetta fólk með okkur,“ sagði landsliðsþjálfarinn Arnar Pétursson eftir að hafa fagnað fyrsta stórmótasigri íslenska kvennalandsliðsins í handbolta. Hann segir mikið hafa verið undir og var ánægður að sjá stelpurnar klára verkefnið vel.

„Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“
Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir íslenska kvennalandsliðið í handbolta er liðið tryggði sér sinn fyrsta sigur í sögunni á lokamóti EM gegn Úkraínu í kvöld.

„Sjúklega stolt af þessum hóp“
Perla Ruth Albertsdóttir var valinn maður leiksins er Ísland landaði sínum fyrsta sigri í sögunni á lokamóti EM í kvöld.

„Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“
„Vá. Geggjað að vera partur af þessu og ótrúlega gaman að klára þetta,“ sagði Berglind Þorsteinsdóttir innt eftir viðbrögðum við fyrsta stórmótasigri íslenska kvennalandsliðsins í handbolta. Varnarvinna hennar spilaði stóran þátt í 27-24 sigri gegn Úkraínu á Evrópumótinu.

Orri skoraði sjö í risasigri
Orri Freyr Þorkelsson skoraði sjö mörk fyrir Sporting er liðið vann vægast sagt öruggan 18 marka sigur gegn Avanca í portúgalska handboltanum í kvöld, 34-16.

Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad
Benedikt Gunnar Óskarsson var markahæsti maður Kolstad er liðið vann öruggan tíu marka útisigur gegn Haslum HK í norska handboltanum í kvöld, 32-42.

Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann mikilvægan þriggja marka sigur er liðið mætti Úkraínu í riðlakeppni EM í handbolta í kvöld, 27-24. Þetta var fyrsti sigur Íslands á lokamóti EM kvenna í handbolta í sögunni og íslenska liðið heldur nú í úrslitaleik gegn Þjóðverjum um sæti í milliriðli.

Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum
Hollendingar eru svo gott sem búnir að tryggja sér sæti í milliriðli eftir öruggan sjö marka sigur gegn Þjóðverjum í F-riðli okkar Íslendinga á Evrópumóti kvenna í handbolta í kvöld.

„Þær eru svolítið þyngri“
„Þetta leggst bara vel í mig. Við erum búnar að hvíla vel núna og undirbúa liðið vel. Mér finnst stelpurnar mjög stemmdar,“ segir aðstoðarlandsliðsþjálfarinn Ágúst Jóhannsson fyrir leik kvennalandsliðs Íslands við Úkraínu á EM í Innsbruck.

Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný
Eftir fjögurra leikja taphrinu virðist Íslendingalið Magdeburg vera að komast á flug á ný og hefur nú unnið tvo leiki í röð eftir öruggan sigur gegn Bietigheim-Metterzimmern í þýsku deildinni í handbolta í dag.

Arnar Birkir fór á kostum í sigri
Arnar Birkir Hálfdánsson átti sannkallaðan stórleik er Amo HK vann fimm marka sigur gegn Skovde í sænska handboltanum í dag, 34-29.

Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM
Færeyska kvennalandsliðið í handbolta er með á Evrópumótinu í handbolta í fyrsta sinn og í dag náði liðið í sín fyrstu stóru úrslit á stórmóti.

Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit
Haukar eru komnir í 32 úrslit í Evrópubikarnum í handbolta eftir að hafa haft betur í tveimur leikjum á móti Kur út í Aserbaísjan um helgina.

Fullt af möguleikum í þessu
Andrea Jacobsen er spennt fyrir komandi leikjum hjá íslenska kvennalandsliðinu í handbolta á EM í Innsbruck. Liðið mætir Úkraínu í kvöld.

Stelpur sem geta lúðrað á markið
Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, segir stórtap Úkraínu fyrir Þýskalandi í fyrsta leik á EM ekki gefa til kynna að leikur Íslands við þær úkraínsku í dag verði auðveldur.

„Ég fór ekkert alltof seint að sofa“
„Þetta var bara svekkjandi. Við spiluðum mjög góðan leik og leiðinlegt að fá ekki stig út úr þessu,“ segir skyttan Thea Imani Sturludóttir um leik Íslands við Holland á EM. Úkraína bíður í dag.

„Ég þarf smá útrás“
„Ég var ofboðslega svekkt af því að þetta var þarna, við hefðum getað þetta og allt það. Á sama tíma rosalega stolt af okkar frammistöðu, með hvaða hugarfari við komum inn í þennan leik og hvað við sýndum hvað í okkur býr,“ segir landsliðskonan Þórey Rósa Stefánsdóttir um leik Íslands við Holland á EM í Innsbruck í gær.

Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal
Íslendingaliðin Porto og Benfica unnu örugga sigra í portúgalsgka handboltanum í kvöld.

Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð
Íslenski landsliðsmaðurinn Janus Daði Smárason og félagar hans í Pick Szeged unnu öruggan tíu marka sigur er liðið heimsótti NEKA í ungversku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 26-36.