Innlent
34 35 36 37 38 39 40 41 42 … 334 ›
Ríkisstjórnarsamstarfið, verkalýðsmál og opnun Grindavíkur Hugmyndir um opnun Grindavíkur, verkalýðsmálin og ríkisstjórnarsamstarfið eru á dagskrá Sprengisands sem hefst klukkan 10. Innlent 13.10.2024 10:08
Nýja skipið mun betra Landsbjörg fékk nýtt björgunarskip afhent á föstudag. Gestir og gangandi geta skoðað skipið í Reykjavíkurhöfn í dag. Innlent 13.10.2024 09:43
Ráðherrann gekk inn í stækan viskíþef í flugstjórnarklefanum Sagan af ráðherranum sem kom inn í viskí-mettaðan flugstjórnarklefann, af jólatrénu sem festist á stélinu og af magalendingu Loftleiðavélarinnar í New York eru meðal þeirra sem flugfólk deilir með okkur. Innlent 13.10.2024 09:09
Veitingahús mega vænta kæru eftir eftirlitsferðir lögreglu Ýmislegt reyndist óbótavant þegar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti skipulögðu eftirliti með veitingahúsum víða um borgina í nótt. Nokkur veitingahús eru sögð mega eiga von á kæru. Fjórir gistu fangageymslur lögreglunnar í nótt. Innlent 13.10.2024 07:24
Rafeldsneyti vegna íslenskrar tækni dugar til orkuskipta alls skipaflotans Íslenska tæknifyrirtækið Carbon Recycling hefur samið um hönnun rafeldsneytisverksmiðju í Kína. Þetta er einn stærsti samningur í sögu fyrirtækisins en með honum stefnir í að framleiðslumagn vistvæns eldsneytis á grunni íslenskrar tækni dugi til orkuskipta á öllum íslenska skipaflotanum. Innlent 12.10.2024 22:44
Hanna Rún og Nikita tryggðu Íslandi brons á Evrópumeistaramótinu Hjónin Hanna Rún Bazev Óladóttir og Nikita Bazev tryggðu sér brons í latín dönsum í dag, í flokki atvinnumanna á Evrópumeistaramóti World DanceSport Federation í Leipzig. Innlent 12.10.2024 22:38
Mótmæltu lausn manns sem var dæmdur fyrir manndráp í fyrra Á fjórða tug Pólverja komu saman í dag og mótmæltu því fyrir utan áfangaheimilið Vernd að nítján ára karlmaður sem hlaut tólf ára fangelsisdóm fyrir að hafa stungið mann til bana sé laus úr fangelsi einu og hálfu ári seinna. Innlent 12.10.2024 21:06
Dagbjört eyddi færslu eftir hörð viðbrögð Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, birti í dag færslu á Facebook þar sem hún tjáði sig um mál Yazan Tamimi og að félags- og vinnumarkaðsráðherra hafi hringt í ríkislögreglustjóra í tengslum við málið. Hún eyddi færslunni nokkrum klukkutímum eftir birtingu þegar hún vakti hörð viðbrögð í athugasemdakerfinu. Innlent 12.10.2024 20:32
Meðalaldur bænda er 66 ár - Tryggja þarf nýliðun „Það er mikill kraftur í tengslum við allt í kringum íslenskan landbúnað“, segir formaður Bændasamtaka á Íslands á sama tíma og hann leggur áherslu á nýliðun í bændastéttinni en meðal aldur bænda er 66 ár í dag. Innlent 12.10.2024 20:05
Vonast til að ná árangri áður en aðgerðir hefjast „Auðvitað verðum við vör við umræðu um það að fólk sé uggandi út af aðgerðum en við vissum það nú fyrir fram. Það vill enginn fara í aðgerðir og alla síst þeir sem hafa hagsmuni af því að mæta í skólann sinn.“ Innlent 12.10.2024 18:50
Áður farið af sporinu sem dragi alltaf dilk á eftir sér „Ég er auðvitað ósammála þessari nálgun á málið. Ég held að almenningur allur sé sammála um það að það sé kjarnahlutverk Orkuveitunnar að sjá borgarbúum fyrir vatni og orku. Það er í kringum þá starfsemi sem Orkuveitan er stofnuð. Staðreyndin er sú að í sögulegu samhengi þá hefur félagið áður farið út af sporinu og ráðist í verkefni sem eru ekki í þágu borgarbúa með beinum hætti og þessi verkefni hafa alltaf dregið dilk á eftir sér.“ Innlent 12.10.2024 18:14
Óvissa um framtíð ríkisstjórnarinnar og milljarðasamningur í Kína Framtíð ríkisstjórnarsamstarfsins er ekki ljós, en forystumenn stærstu stjórnarandstöðuflokkanna segjast tilbúnir í kosningar. Þeir útiloka ekki að mynda ríkisstjórn hvor með öðrum, fái þeir til þess umboð kjósenda. Innlent 12.10.2024 18:09
Engin ummerki um ísbirni Leit að ísbjörnum, sem tilkynnt var um að væru mögulega á ferð í nágrenni Laugarfells, norðaustan við Snæfell í gær, hefur verið hætt. Innlent 12.10.2024 16:26
Útkall vegna bílveltu í uppsveitum Árnessýslu Björgunarsveitir, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, hafa verið kallaðar út vegna bílveltu í uppsveitum Árnessýslu þar sem einn slasaðist. Innlent 12.10.2024 16:05
Of vandræðalegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að halda áfram Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins gerir ráð fyrir því að Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins hafi óskað eftir umboði flokks síns til þess að slíta samstarfi ríkisstjórnarinnar á fundi þingflokksins í Valhöll í gær. Í ljósi yfirlýsinga innan úr VG væri of vandræðalegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að halda áfram samstarfinu. Innlent 12.10.2024 15:01
Karlmaður um sextugt lést í vinnuslysi Karlmaður um sextugt lést í vinnuslysi í Stykkishólmi í gær. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og hann var úrskurðaður látinn á vettvangi. Innlent 12.10.2024 14:24
Vatnsleki í Skeifunni Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins aðstoðar nú Veitur við að dæla upp vatni sem lekur í Skeifunni í Reykjavík. Innlent 12.10.2024 14:04
Nýtt björgunarskip Landsbjargar formlega afhent Fjórða björgunarskip sem Slysavarnafélagið Landsbjörg lætur smíða í Finnlandi var í gær afhent formlega. Innlent 12.10.2024 14:00
„Mér fannst mjög eðlilegt að ég myndi hringja í ríkislögreglustjóra“ Félags- og vinnumarkaðsráðherra segist aðeins hafa hringt í ríkislögreglustjóra til þess að afla upplýsinga nóttina sem senda átti Yazan Tamimi og fjölskyldu úr landi. Hann hafi ekki farið fram á að ríkislögreglustjóri stöðvaði brottflutninginn. „Mér fannst mjög eðlilegt að ég myndi hringja í ríkislögreglustjóra,“ segir hann. Innlent 12.10.2024 13:57
Tvö kvenfélög taka á móti karlmönnum „Valkyrjur milli fjalls og fjöru” er yfirskrift fertugasta landsþings Kvenfélagasambands Íslands, sem fer fram um helgina á Ísafirði. Um 230 konur af öllu landinu taka þátt í þinginu. Innlent 12.10.2024 13:06
Bein útsending: Ávarp Sigmundar Davíðs á flokksráðsfundi Sjötti flokksráðsfundur Miðflokksins er haldinn í dag, laugardaginn 12. október, að Hótel Selfossi. Ávarp formanns flokksins má sjá hér á Vísi. Innlent 12.10.2024 13:02
Staðan á ríkisstjórninni og félagsmálaráðherra svarar fyrir símtalið Formaður Framsóknar segir samstarfsflokka hans hafa nokkra sólarhringa til að ákveða sig, svo vinnufriður geti skapast. Farið verður yfir stöðuna á ríkisstjórnarsamstarfinu í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan 12. Innlent 12.10.2024 11:47
Veitir samstarfsflokkunum nokkurra sólarhringa frest „Ef hinir stjórnarflokkarnir treysta sér ekki til að standa við og vinna að stjórnarsáttmálanum verður það að koma fram á allra næstu sólarhringum,“ segir formaður Framsóknarflokksins. Innlent 12.10.2024 11:40
Lokaleit að ísbjörnum með dróna Þyrla Landhelgisgæslunnar er ekki tiltæk í leit að ísbjörnum, sem erlendir ferðamenn tilkynntu að væru á slóðum Laugarfells, norðaustan við Snæfell í gær. Lokaleit verður því gerð með dróna í dag. Innlent 12.10.2024 11:18
Ríkisstjórnin á hengiflugi Formenn stjórnarflokkanna munu að öllum líkindum nota dagana fram að reglulegum ríkisstjórnarfundi á þriðjudag til að ræða óróleikann í stjórnarsamstarfinu. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sagði eftir skyndifund þingflokks Sjálfstæðisflokksins í Valhöll í gær að afstaða Vinstri grænna til frekari breytinga á útlendingalögum væri „vandamál.“ Innlent 12.10.2024 11:10
Slysið í Stykkishólmi alvarlegt Lögreglan á Vesturlandi hefur alvarlegt slys sem varð í gær til rannsóknar. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á vettvang í gær en afturkölluð áður en hún komst á leiðarenda. Innlent 12.10.2024 10:02
Ellefu tímar sárþjáður á bráðamóttöku Þingmaður Flokks fólksins lýsir þrautagöngu vinar síns og skjólstæðings, sem þurfti að bíða sárþjáður í sjö klukkustundir á bráðamóttöku Landspítalans. Hann segir neyðarástand blasa við í heilbrigðismálum. Innlent 12.10.2024 08:18
Ísland má ekki vera söluvara erlendra glæpagengja Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins vill að allir þeir sem koma að landmærum Íslands til að sækja um hæli verði tafarlaust sendir til baka. Þeir missi jafnframt réttinn til að sækja um vernd á Íslandi. Þá væri ekki hægt að ætlast til að Íslendingar aðlagi sig að menningu og siðum þeirra sem hingað flytja, heldur verði fólk sem vilji búa hér að aðlaga sig að íslensku samfélagi. Innlent 12.10.2024 08:02
Barn ógnaði lögreglumanni með eftirlíkingu af skammbyssu Sextán ára piltur var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt fyrir að miða skammbyssu að lögreglumanni. Byssan reyndist vera eftirlíking af skammbyssu. Innlent 12.10.2024 07:27
Safnast í kvikuhólfið en ómögulegt að segja hvenær gýs „Ég les nú í þetta að ef við notum líkingu frá jarðeldunum á Reykjanesi að þá er augljóst, og það má öllum vera augljóst, að það er að safnast meira og meira fyrir í kvikuhólfið en hins vegar hvenær gýs, er ómögulegt að segja. Það er hratt landris sem mun enda með gosi.“ Innlent 11.10.2024 23:51
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent