Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 14. ágúst 2026 19:19 Trausti Hjálmarsson formaður Bændasamtakanna segir að á næstu dögum verði afstaða Bændasamtakanna til aðildarviðræðna og aðildar að Evrópusambandinu kynnt víða um land. Bændur segja nei. Vísir Bændur búa sig undir baráttu gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Búnaðarþing hefur hafnað því að aðildarviðræður verði teknar upp að nýju og á næstu dögum hefja Bændasamtökin fundarherferð um landið til að kynna sinn málstað.
Bændasamtökin kynntu skýrslu sína um möguleg áhrif aðildarviðræðna og aðildar að Evrópusambandinu á landbúnað hér á landi fyrir rúmri viku. Þar kom meðal annars fram að hugsanleg ESB- aðild væri kerfisbreyting sem hefði mikil áhrif á landbúnað. Þá kom fram að með aðild færi stór hluti ákvörðunarvalds í landbúnaðarmálum til Evrópusambandsins. Skýrslan var til umræðu á Búnaðarþingi í dag og í kjölfarið greiddu fulltrúar bænda atkvæði um afstöðu Bændasamtakanna til málsins. Trausti Hjálmarsson formaður Bændasamtakanna segir næstum alla bændur á sama máli. „Bændasamtök Íslands leggjast gegn aðild að Evrópusambandinu og áframhaldi aðildarviðræðna. Yfir 90 prósent þeirra sem kusu samþykktu þessa ályktun,“ segir Trausti. Trausti segir að afstaðan byggist fyrst og fremst á skýrslu Bændasamtakanna og nú fari í gang fundarherferð til að kynna hana um land allt. „Við byrjum á sunnudaginn á Akureyri þar sem við hyggjumst fræða fólk um afstöðu okkar. Á mánudaginn erum við á Egilsstöðum og á þriðjudag á Selfossi. Við ætlum að halda áfram að dýpka umræðuna um landbúnaðinn og segja frá því sem við höfum áhyggjur af,“ segir hann. Baráttuhugur í bændum Afstaða Búnaðarþings kemur ekki á óvart en undanfarnar vikur hefur mátt sjá letra nei á heyrúlluböggum víða um land. Eyjólfur Ingvi Bjarnason formaður sauðfjárbænda segir það lýsandi fyrir afstöðu bænda. Margir bændur auglýsa afstöðu sína til aðildarviðræðna á túnum sínum. Vísir „Það sem gerist ef það verður farið í þetta ferli er að það skapast óvissa og óvissan er versti óvinur bænda sem þurfa að sjá vel fram í tímann til að geta skipulagt búskapinn. Það er mikill baráttuhugur gegn aðild meðal bænda,“ segir Eyjólfur. Eyjólfur Ingvi Bjarnason formaður sauðfjárbænda segir baráttuhug í bændum.Vísir Verði niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið önnur en bændur kjósa sé nauðsynlegt að hafa þá við samningaborðið. „Segi þjóðin já 29. ágúst ætlast Bændasamtökin til þess að verða hluti af því samtali sem þá fer af stað,“ segir hann.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Landbúnaður Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira