Innlent
218 219 220 221 222 223 224 225 226 … 334 ›
Bíður enn svara frá Bankasýslunni og áformar að leggja hana niður Fjármála-og efnahagsráðherra segir kaup Landsbankans á TM tryggingafélagi í höndum Bankasýslu ríkisins, aðspurð hvort hún ætli að reyna að koma í veg fyrir kaupin. Hún væntir skýringa frá Bankasýslunni á aðkomu stofnunarinnar að kaupunum í næstu viku. Þá standi enn til að leggja Bankasýsluna niður. Innlent 3.4.2024 20:01
Segir „leik“ Katrínar stærsta aprílgabb sem til er Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata fer hörðum orðum um vinnubrögð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra vegna mögulegs forsetaframboðs í Facebook færslu í dag. Innlent 3.4.2024 19:58
Undarleg sviðsmynd hlyti Katrín ekki brautargengi og sneri aftur sem forsætisráðherra Eva Heiða Önnudóttir stjórnmálafræðingur segir að það yrði allt óvanalegt við það ef Katrín Jakobsdóttir færi í framboð til embættis forseta Íslands. Þá gæti myndast snúin staða ef Katrín næði ekki kjörin og myndi ákveða að snúa aftur í forsætisráðuneytið undir forseta sem hún hafi verið í baráttu við um embættið. Innlent 3.4.2024 19:32
Ekki gefið hvernig spilast úr stöðunni fari Katrín fram Allar líkur eru á að Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna tilkynni fyrir helgi hvort hún bjóði sig fram til embættis forseta Íslands. Geri hún það mun hún samstundis segja af sér embætti forsætisráðherra. Formenn hinna stjórnarflokkanna segja ekki gefið hvernig spilaðist úr þeirri stöðu þótt grundvöllur væri fyrir áframhaldandi samstarfi flokkanna. Innlent 3.4.2024 19:29
„Fréttir eru ekki ókeypis“ Formaður Blaðamannafélags Íslands segir minnst tíu milljarða króna fari út úr íslenskum fjölmiðlamarkaði árlega í formi auglýsinga til Google og Meta. Hún viðrar hugmyndina um að almenningur borgi áskrift fyrir fréttir til þess að blaðamennskunni verði haldið á floti en starfsgreinin hefur samkvæmt nýrri vitundarherferð félagsins aldrei verið mikilvægari. Innlent 3.4.2024 18:46
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ákveði Katrín Jakobsdóttir að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands er líklegt að hún tilkynni það fyrir helgi og segi um leið af sér embætti forsætisráðherra. Formenn hinna stjórnarflokkanna telja stjórnarsamstarfið geta haldið áfram en ekki yrði öruggt hvernig spilaðist úr stöðunni. Innlent 3.4.2024 18:00
Baldur með nokkurt forskot á Jón og Katrínu Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur hefur nokkuð forskot á keppinauta sína í baráttunni um að verða arftaki Guðni Th. Jóhannessonar sem forseti Íslands. Þetta sýnir ný könnun sem Prósent vann fyrir stuðningsfólk Baldurs og Vísir hefur undir höndum. Innlent 3.4.2024 15:33
Dæmdur fyrir að skamma níu ára dreng sem hrinti syni hans Karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir barnaverndarlagabrot. Hann var sakfelldur fyrir að taka harkalega í níu ára dreng sem hafði verið að stríða syni hans. Innlent 3.4.2024 15:31
Telur að Katrín yrði mjög öflugur kandídat „Það yrði allavega mjög öflugur kandídat til forsetaembættisins sem kæmi þar fram,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra um mögulegt forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur. Hann telur mikilvægt að Katrín ákveði sig og tilkynni um ákvörðun sína áður en þing kemur saman í næstu viku. Innlent 3.4.2024 15:30
Katrín boðar til ríkisstjórnarfundar vegna Svandísar Boðað hefur verið til ríkisstjórnarfundar klukkan 15:30 í dag. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra boðar til fundarins en tilefni hans er samkvæmt heimildum fréttastofu endurkoma Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra úr veikindaleyfi. Innlent 3.4.2024 14:20
Sigurður Ingi frestar fundum Ekkert verður af þremur opnum stjórnmálafundum innviðaráðherra á Austfjöðrum í dag. Telja má líklegt að Austfirðingar hafi verið gíraðir fyrir fundina eftir mikla snjókomu og samgönguvandamál af þeim sökum yfir páskana. Innlent 3.4.2024 14:10
Bótaþegar fengu nokkurra ára kröfu frá skattinum um hánótt Ríkissjóður innheimtir nú fjögurra ára skuld vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir afar leitt að þetta hafi tekið svona langan tíma. Skýringanna sé að leita í annríki á stofnuninni og nýju tölvukerfi. Innlent 3.4.2024 14:00
Óvíst hvort ríkisstjórnin lifi framboðið af Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði telur óvíst hvort ríkisstjórnin lifi það af ef Katrín Jakobsdóttir lætur til skara skríða og býður sig fram til forseta. Miðað við atburðarásina síðustu daga sé líklegt að hún fari fram. Innlent 3.4.2024 13:54
Segir framboð Katrínar munu leiða til stjórnarkreppu eða mögulegs vanhæfis Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur og forsetaframbjóðandi, segir framboð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra til forseta annað hvort munu fela í sér stjórnarkreppu eða að hún sitji beggja vegna borðsins þegar kemur að myndun nýrrar ríkisstjórnar. Innlent 3.4.2024 13:22
Eldgosið í beinni Enn er kraftur í eldgosinu á Reykjanesskaga milli Hagafells og Stóra-Skógfells. Dregið hefur úr virkninni en þetta gos hefur þó staðið lengur en þrjú síðustu gos á undan. Innlent 3.4.2024 13:15
Opinberar ákvörðun sína á allra næstu dögum Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ætlar að upplýsa um ákvörðun sína varðandi framboð til forseta Íslands á allra næstu dögum. Stjórnarsamstarfið standi sterkum fótum hér eftir sem hingað til. Innlent 3.4.2024 12:23
Íslenskir bræður við upptök skjálftans: „Traffíkin stoppaði alveg og hlutir byrjuðu að hrynja“ Að minnsta kosti níu eru látnir og 800 slasaðir eftir að jarðskjálfti að stærð 7,4 reið yfir á Taívan í nótt. Íslendingur á upptakasvæðinu fylgdist með umferð stöðvast og hlutum hrynja þegar jörð tók að skjálfa. Hann og bróðir hans þurftu að flýja inn í land í skyndi þegar flóðbylgjuviðvaranir voru gefnar út. Innlent 3.4.2024 12:10
Íhugar framboð til forseta alvarlega Katrín Jakobsdóttir staðfestir að hún sé alvarlega að hugsa um að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands og muni greina frá niðurstöðu sinni á næstu dögum. Tveir forsetaframbjóðendur hafa bæst í hópinn frá í gær, þeir Jón Gnarr og Guðmundur Felix Grétarsson. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundar sérstaklega í dag um mögulegt framboð Katrínar Jakobsdóttur. Innlent 3.4.2024 11:43
Katrín hugsar sig um og þingflokkar funda um framtíðina Í hádegisfréttum fjöllum við um forsetakosningar sem framundan eru en tveir frambjóðendur bættust í hópinn í gærkvöldi og í morgun. Innlent 3.4.2024 11:41
Þingflokkur Framsóknar fundar líka um stöðuna í dag Þingflokkur Framsóknarflokksins mun klukkan eitt í dag funda í gegnum fjarfundarbúnað meðal annars vegna hugsanlegs forsetaframboðs Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Innlent 3.4.2024 11:28
Lítill hópur heldur uppi sölunni í ÁTVR Takmarkaður hópur fólks kaupir langmest af því áfengi sem selt er í Vínbúðum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. En þetta er sama fólk og glímir við áfengisvanda. Innlent 3.4.2024 11:27
Sjálfstæðis- og Framsóknarfólk geti vart dvalið í sama herbergi Fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar segir spennuna á milli Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna smáræði miðað við djúpgremju Sjálfstæðismanna í garð Framsóknarflokksins. Fólk innan þeirra flokka geti varla dvalið í sama herbergi. Hún spáir því að Katrín Jakobsdóttir tilkynni um framboð til forseta í vikunni en það verði ekki til þess að ríkisstjórnin springi. Innlent 3.4.2024 10:44
Óvænt fjarvera Bjarna á fundi í Brussel Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra verður ekki meðal gesta á fundi utanríkisráðherra aðildarríkja NATO sem hefst í Brussel klukkan ellefu að íslenskum tíma. Bjarni forfallaðist skyndilega vegna anna hér heima við önnur ónefnd verkefni. Innlent 3.4.2024 10:18
Steinunn Ólína komin á lista yfir forsetaefni Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona er komin í hóp þeirra sem nú eru að safna meðmælendum vegna hugsanlegs forsetaframboðs. Innlent 3.4.2024 10:06
Guðmundur Felix býður fram krafta sína Guðmundur Felix Grétarsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í forsetakosningunum í sumar. Innlent 3.4.2024 09:06
Eðlilegt að mögulegt framboð Katrínar sé rætt á fundi þingflokksins Þingkona Sjálfstæðisflokksins telur of mikið gert úr því að þingflokkurinn ætli að ræða mögulegt framboð Katrínar Jakobsdóttur til forseta á fundi í dag. Ekki eru önnur mál á fundi þingflokksins í dag. Þingflokksformaður Vinstri grænna segir Katrínu enn að hugsa málið. Innlent 3.4.2024 08:47
Grunuð um að stinga aðra konu fimm sinnum í bíl Kona hefur verið ákærð fyrir tilraun til manndráps með því að stinga aðra konu fimm sinnum með hnífi. Innlent 3.4.2024 08:01
Jón tveimur mínútum fljótari að safna en Baldur Jón Gnarr, sem tilkynnti um forsetaframboð sitt fyrr í kvöld, er búinn að safna meðmælunum sem þarf til að bjóða sig fram til forseta. Þetta staðfestir Heiða Kristín Helgadóttir, sem er í kosningateymi Jóns, í samtali við fréttastofu. Innlent 2.4.2024 22:13
Stefnir í að bið eftir jarðgöngum lengist Ófærðin sem birtist vegfarendum á fjallvegum á norðurhelmingi landsins um páskana, þar sem þúsundir manna komust ekki leiðar sinnar, hefur kallað fram endurnýjaðar kröfur um jarðgöng. Óvissa ríkir hins vegar um hvernig jarðgangaáætlun verður fjármögnuð og stefnir í að í flestum landshlutum þurfi menn að bíða lengi eftir næstu göngum. Innlent 2.4.2024 22:10
Otti Rafn segir af sér formennsku í Landsbjörg Otti Rafn Sigmarsson hefur tilkynnt að hann hyggist segja formlega af sér sem formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Það gerði hann á stjórnarfundi Landsbjargar í kvöld. Innlent 2.4.2024 21:50