Erlent
209 210 211 212 213 214 215 216 217 … 334 ›
Fannst látin í lendingarbúnaði flugvélar Starfsmenn Lufthansa fundu lík í lendingarbúnaðsrými flugvélar flugfélagsins eftir lendingu í Frankfurt. Flugvélin hafði verið að fljúga frá Teheran, höfuðborg Íran. Erlent 27.10.2022 21:14
Einn látinn og leikmaður Arsenal meðal særðra eftir hnífaárás í verslunarmiðstöð Pablo Marí, leikmaður Arsenal sem nú er á láni hjá ítalska félaginu Monza, var stunginn þegar maður gekk berserksgang í verslunarmiðstöð á Ítalíu fyrr í kvöld. Leikmaðurinn er ekki talinn alvarlega slasaður, en í það minnsta einn er látinn eftir árásina. Erlent 27.10.2022 19:43
Önnur árás framin á meðan forsetahjónin heiðruðu fórnarlömb Forsetahjón Íslands eru í opinberri heimsókn í Slóvakíu þessa dagana. Í morgun lögðu þau kerti á minnisvarða um tvö fórnarlömb skotárásar sem framin var fyrir framan skemmtistað hinsegin fólks í landinu á dögunum. Á sama tíma og þau gerðu það bárust fregnir af annarri árás á hinsegin hjón. Erlent 27.10.2022 19:10
Skildu eftir sig skjöl sem varpa ljósi á vandræði Rússa Þegar hersveitir Rússa hörfuðu með hraði frá austanverðu Kharkív-héraði í Úkraínu í september, skyldu þeir ýmislegt eftir sig. Þar á meðal mikið magn þungavopna eins og skrið- og bryndreka auk stórskotaliðsvopna. Þeir skyldu þó einnig eftir sig mikið magn gagna. Erlent 27.10.2022 15:15
Telja að orkukreppan geti hraðað orkuskiptunum Hækkandi orkuverð vegna stöðu efnahagsmál og stríðsins í Úkraínu gæti leitt til þess að heimsbyggðin skipti hraðar yfir í endurnýjanlega orkugjafa, að mati Alþjóðaorkumálastofnunarinnar. Hún spáir nú í fyrsta skipti að útlit að losun vegna jarðefnaeldsneytis nái hámarki um miðjan áratuginn. Erlent 27.10.2022 14:08
Herða bann við „hinsegin áróðri“ í Rússlandi Rússneska þingið samþykkti að herða núgildandi bann við svonefndum „hinsegin áróðri“ þannig að það nái ekki lengur aðeins til barna og ungmenna heldur fólks af öllum aldri. Þannig verður nú hægt að sekta vegna viðburða, kvikmynda eða vefsíða sem eru talnar auglýsa samkynhneigð. Erlent 27.10.2022 10:12
Ye vísað á dyr í höfuðstöðvum Skechers Tónlistarmanninum og fatahönnuðinum Ye, áður Kanye West, var vísað á dyr þegar hann mætti óboðinn í höfuðstöðvar Skechers í Los Angeles í gær. Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu segir að Ye og föruneyti hans hafi verið fylgt út eftir stutt samtal. Erlent 27.10.2022 07:56
Selenskí segir hegðun Rússa brjálæðislega Volodomír Selenskí Úkraínuforseti sakar rússneska herforingja úr innrásarliðinu um brjálæðislega hegðun þegar kemur að því að reyna að ná bænum Bakhmut á sitt vald. Erlent 27.10.2022 06:56
Kaka á andlit konungs, götulokanir og eignaspjöll Samtökin Just Stop Oil hafa nú mótmælt 26 daga í röð framleiðslu ríkja á jarðefnaeldsneyti. Meðlimir samtakanna hafa gert ýmislegt til að vekja athygli fólks á málstað sínum. Erlent 26.10.2022 23:25
Óttast dreifingu ebólu í höfuðborg Úganda Sex börn úr sömu fjölskyldunni í Kampala, höfuðborg Úganda, hafa greinst með ebólu. Yfirvöld óttast að útbreiðslan verði hraðari nú þegar hún hefur náð til þéttbýlli svæða landsins. Erlent 26.10.2022 20:45
Pýtonslanga gleypti konu í Indónesíu Pýtonslanga gleypti konu á sextugsaldri á eyjunni Súmötru í Indónesíu á sunnudagskvöld. Atvikið átti sér stað á plantekru þar sem konan starfaði. Erlent 26.10.2022 20:44
Nunnur og prestar horfi á klám, sem þó sé verkfæri djöfulsins Frans páfi, æðsti maður innan kaþólsku kirkjunnar, hefur varað við því að prestar og nunnur horfi á klám á netinu. Hann segir klám vera til þess fallið að veikja prestshjartað, auk þess sem það sé verkfæri djöfulsins. Erlent 26.10.2022 19:23
Fundinn sekur í öllum ákæruliðum eftir skrautleg réttarhöld Hinn bandaríski Darrell Brooks hefur verið fundinn sekur um sex morð að yfirlögðu ráði, þegar hann ók bifreið sinni inn í jólaskrúðgöngu í Waukesha, úthverfi Milwaukee í Wisconsin-ríki í Bandaríkjunum, í nóvember á síðasta ári. Réttarhöldin yfir honum vöktu mikla athygli, en hann kaus að verja sig án aðstoðar lögmanns. Erlent 26.10.2022 17:47
Sakfelldir fyrir ráðabrugg um að ræna ríkisstjóra Þrír karlmenn á þrítugs og fimmtungsaldri voru sakfelldir fyrir að leggja á ráðin um að ræna Gretchen Whitmer, ríkisstjóra Michigan. Mennirnir tilheyrðu vopnaðri öfgasveit sem mislíkaði aðgerðir Whitmer til að stemma stigu við kórónuveirufaraldrinum. Erlent 26.10.2022 16:02
Skutu á mótmælendur við leiði Amini Vitni segja öryggissveitir í Íran hafa skotið á syrgjendur sem komið höfðu saman við gröf Masha Jina Amini í dag. Þar hafði fólk komið saman vegna þess að fjörutíu dagar eru liðnir síðan hún dó í haldi lögreglunnar. Erlent 26.10.2022 15:16
Styrkur metans aldrei aukist eins mikið frá upphafi mælinga Hlutfall gróðurhúsalofttegundarinnar metans í andrúmslofti jarðar hefur aldrei aukist jafna mikið og í fyrra frá því að mælingar hófust. Styrkur þriggja helstu gróðurhúsalofttegundanna í lofthjúpnum náði methæðum árið 2021. Erlent 26.10.2022 15:01
Útlitið dökknar fyrir demókrata á lokasprettinum Merkjanleg sveifla í átt að Repúblikanaflokknum er í skoðanakönnunum fyrir þingkosningar í Bandaríkjunum sem fara fram eftir tvær vikur. Demókratar óttast nú að tapa yfirráðum í báðum deildum þingsins. Erlent 26.10.2022 14:06
Skaut tvo til bana en var með sex hundruð skot: „Þetta hefði getað farið mun verr“ Ungur maður sem skaut kennara og fimmtán ára stúlku til bana í St. Luis í Bandaríkjunum í vikunni var vopnaður hálfsjálfvirkum riffli og var með sex hundruð skot. Sjö nemendur særðust eða slösuðust einnig í árásinni áður en lögregluþjónar skutu hinn nítján ára gamla Orlando Harris til bana. Erlent 26.10.2022 12:09
Eitt fyrstu verka Sunaks að hringja til Úkraínuforseta Rishi Sunak nýr forsætisráðherra Bretlands hét forseta Úkraínu í gær áframhaldandi stuðningi Breta í baráttunni gegn innrás Rússa. Forseti Þýskalands dáðist af hughrekki Úkraínumanna í heimsókn til Kænugarðs í gær og lofaði aukinni hernaðaraðstoð. Erlent 26.10.2022 11:40
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Vegnar vel á víglínunum en þurfa mikla aðstoð Úkraínumönnum hefur vegnað ágætlega á víglínunum síðustu vikur en árásir Rússa á innviði og borgaraleg skotmörk hafa kostað sitt. Ráðamenn í Úkraínu og Vesturlöndum segja ríkið þurfa mikla fjárhagslega aðstoð á komandi árum. Erlent 26.10.2022 11:07
Telja keisaramörgæsina nú í útrýmingarhættu Bandarísk stjórnvöld settu keisaramörgæsina á lista yfir dýrategundir sem eru taldar í hættu á útrýmingu í gær. Hnattræn hlýnun og bráðnun hafíss við Suðurskautslandið er talin ógna þessari stærstu mörgæsartegund jarðar. Erlent 26.10.2022 09:10
Stefnir í tveggja og hálfrar gráðu hlýnun á meðan ríki draga lappirnar Útlit er fyrir að hnattræn hlýnun nái tveimur og hálfri gráðu fyrir lok aldarinnar ef ríki heims auka ekki metnað sinn í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Það er heilli gráðu meira en stefnt er að með Parísarsamkomulaginu til þess að forðast verstu afleiðingar loftslagsbreytinga. Erlent 26.10.2022 08:42
Bólusetja gegn kórónuveirunni með munnúða Kínverjar hafa, fyrstir þjóða, hafið bólusetningar gegn COVID-19 með munnúða í stað sprautu. Erlent 26.10.2022 08:37
Heita fordæmalausum viðbrögðum ef Norður-Kórea hefur kjarnorkuvopnatilraunir á ný Fulltrúar Bandaríkjanna, Japan og Suður-Kóreu hafa varað við fordæmalausum viðbrögðum ef Norður-Kórea framkvæmir sjöundu tilraun sína með kjarnorkuvopn. Stjórnvöld Vestanhafs og bandamenn þeirra grunar að kjarnorkuvopnatilraunir Norður-Kóreu séu að hefjast á ný. Erlent 26.10.2022 08:10
Finnskur fjöldamorðingi á flótta handtekinn Lögregla í Finnlandi handtók í gærkvöldi fangann Juha Valjakkala eftir að hann hafði flúið úr opnu fangelsi. Valjakkala var handtekinn eftir að ábendingar bárust frá almenningi. Erlent 26.10.2022 08:02
Hvetja þá sem hafa flúið til að halda sig erlendis út veturinn Stjórnvöld í Úkraínu hafa biðlað til þeirra Úkraínumanna sem hafa flúið land frá því að Rússar hófu innrás sína í febrúar síðastliðnum, um að snúa ekki aftur fyrr en í vor. Orkuinnviðir landsins ráði einfaldlega ekki við mannfjöldann. Erlent 26.10.2022 07:12
Rússar búa sig undir árás á Kherson Rússneskar hersveitir í Kherson héraði búa sig nú undir mikinn bardaga við úkraínska herinn að sögn úkraínsks embættismanns. Erlent 26.10.2022 06:52
Setti bókstafinn Z á bílinn og fékk hálfa milljón í sekt Manni í Þýskalandi hefur verið gert að greiða fjögur þúsund evrur, eða rúmar 570 þúsund krónur, í sekt fyrir að hafa sett bókstafinn Z á bílinn sinn. Merkið hefur verið notað til marks um stuðning við innrás Rússa í Úkraínu. Maðurinn hefur áfrýjað. Erlent 25.10.2022 23:28
Happdrætti fyrir þá sem lenda í miðjusætinu Farþegar ástralska flugfélagsins Virgin Australia sem lenda í því að þurfa að sitja í miðjusætinu í flugferðum félagsins verða skráðir í happdrætti. Þyrlu-pöbbarölt og fríar flugferðir eru meðal vinninga. Erlent 25.10.2022 22:41
Nýr kafli í samskiptum Bretlands og Úkraínu Vólódímír Selenksí Úkraínuforseti segir nýjan kafla í samskiptum Bretlands og Úkraínu vera að hefjast. Hann tekur vel á móti nýkjörnum kollega sínum. Erlent 25.10.2022 22:14