Erlent
206 207 208 209 210 211 212 213 214 … 334 ›
Kosningateymi Twitter rekið á einu bretti rétt fyrir kosningar Starfsmenn samfélagsmiðilsins Twitter sem sáu um að verjast upplýsingafalsi í kringum kosningar voru á meðal þeirra sem voru sagt upp í umfangsmikilli hópuppsögn í gær. Aðeins þrír dagar eru nú til þýðingarmikilla þingkosninga í Bandaríkjunum. Erlent 5.11.2022 12:22
Svíar hafna Kúrdum til að friðþægja Tyrki Sænska ríkisstjórnin ætlar að láta af stuðningi við vopnaða sveit Kúrda í Sýrlandi og stjórnmálaflokk sem tengist henni til þess að friðþægja Tyrki. Recep Erdogan Tyrklandsforseti hefur sett sig upp á móti aðild Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu vegna stuðnings þeirra við Kúrda. Erlent 5.11.2022 09:54
Gangast loks við því að útvega Rússum dróna Utanríkisráðherra Írans viðurkenndi í fyrsta skipti í dag að ríkisstjórn hans hefði útvegað Rússum dróna sem hafa verið notaðir í sprengjuárásir í Úkraínu. Hann fullyrðir að drónarnir hafi verið afhentir áður en innrás Rússa í Úkraínu hófst. Erlent 5.11.2022 09:10
Öskraði „farðu aftur til Afríku“ á annan þingmann Þingmaður á franska þinginu hefur verið settur í fimmtán daga bann fyrir að hafa öskrað „farðu aftur til Afríku“ á þingmann úr öðrum flokki. Hann segist ekkert hafa gert rangt og vill meina að orðin hafi beinst að stöðu flóttafólks. Erlent 4.11.2022 17:26
Bein útsending: Reyna að grípa eldflaug með þyrlu Starfsmenn fyrirtækisins Rocket Lab ætla í dag að reyna að grípa eldflaug með þyrlu. Eldflauginni verður skotið frá Nýja-Sjálandi og á hún að koma smáum gervihnetti á braut um jörðu fyrir sænskt fyrirtæki. Erlent 4.11.2022 16:32
Sanna braut engar reglur með djamminu Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, braut engar reglur og braut ekki gegn skyldum sínum með því að fara í samkvæmi. Myndbönd af forsætisráðherranum í dansa og syngja í samkvæmum var lekið á netið í sumar og þurfti hún að fara í fíkniefnapróf vegna ásakana um neyslu fíkniefna frá andstæðingum sínum í þinginu. Erlent 4.11.2022 15:22
Þrjár ISIS-konur ákærðar í Danmörku Yfirvöld í Danmörku hafa ákært þrjár konur fyrir að ganga til liðs við Íslamska ríkið. Konurnar fóru til Sýrlands á árum áður og giftust þar vígamönnum hryðjuverkasamtakanna. Eftir fall Kalífadæmisins voru konurnar og fjórtán börn þeirra í Roj-búðum í norðausturhluta Sýrlands. Erlent 4.11.2022 14:40
Dómari segir að vakta eigi fyrirtæki Trumps Óháður aðili verður fenginn til að vakta fyrirtæki Donalds Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Dómari í New York-ríki komst að þeirri niðurstöðu í dag í tengslum við lögsókn ríkissaksóknara New York gegn fyrirtækinu. Erlent 4.11.2022 12:14
Þjóðgarðsverðir fá leyfi til að skjóta á úlfa með málningarkúlum Þjóðgarðsverðir í Arnheim í Hollandi hafa fengið heimild til að skjóta á úlfa með málningarkúlum (e. paint ball) í þeim tilgangi að gera dýrin fráhverf mannfólkinu. Úlfar í Hoge Veluwe-þjóðgarðinum eru sagðir orðnir hættulega óhræddir við fólk, þannig að mönnum gæti stafað ógn af þeim. Erlent 4.11.2022 11:24
Kölluðu ódæðin í Bucha „hreinsanir“: „Ég er búinn að drepa svo mikið af borgurum“ Þegar rússneskir hermenn tóku yfir bæinn Bucha, norður af Kænugarði, snemma eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar, fóru hermenn um bæinn með lista. Á þeim listum, sem voru frá leyniþjónustum Rússlands, voru nöfn fólks sem talið var geta ógnað Rússum. Erlent 4.11.2022 10:53
Barnshafandi kona stungin til bana í Danmörku Barnhafandi kona var stungin til bana í Holbæk á Sjálandi í Danmörku í gærkvöldi. Lögregla á Sjálandi segir að konan hafi verið 37 ára og margsinnis stungin með hníf. Fram kemur að barn konunnar sé enn á lífi. Erlent 4.11.2022 07:43
Trump segir „mjög, mjög, mjög líklegt“ að hann bjóði sig aftur fram Donald Trump fyrrverandi forseti Bandaríkjanna gaf það sterklega í ljós í ræðu í gærkvöldi að hann hyggi á endurkomu í næstu forsetakosningum. Erlent 4.11.2022 07:38
Á fimmtu milljón án rafmagns í Úkraínu Volodómír Selenskí Úkraínuforseti sakar Rússa um að beita "orkuhryðjuverkum" í stríðsrekstri sínum í Úkraínu. Erlent 4.11.2022 07:33
Segir kjarnorkuárás jafngilda endalokum stjórnartíðar Kim Lloyd Austin, varnarmálráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að kjarnorkuárás Norður-Kóreu á Bandaríkin eða bandamenn þeirra myndi binda enda á stjórnartíð Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu. Erlent 4.11.2022 07:32
Starfsmenn Twitter fá tilkynningu um örlög sín nú í morgunsárið Athafnamaðurinn og frumkvöðullinn Elon Musk, sem eignaðist Twitter á dögunum og skipaði sjálfan sig forstjóra, er sagður munu hefja umfangsmiklar uppsagnir meðal starfsmanna í dag. Erlent 4.11.2022 07:05
Tilraun til vitundavakningar endaði með fangelsisdómi Tveir menn hafa nú verið dæmdir til tveggja mánaða fangelsisvistar fyrir tilraun sína til þess að skemma málverkið „Stúlkan með perlueyrnalokkinn“ eftir Vermeer í nafni aðgerða í umhverfismálum. Erlent 3.11.2022 19:56
Enn streyma eldflaugarnar frá Kóreuskaganum Minnst sex eldflaugum var skotið á loft frá Norður-Kóreu í dag og þar á meðal einni langdrægri. Það er í kjölfar þess að rúmum tuttugu eldflaugum var skotið á loft í gær. Erlent 3.11.2022 16:45
Fjarlægðu rússneska fánann af ráðhúsinu í Kherson og sagðir líklegir til að hörfa Einn af leppstjórum Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu sagði í morgun að líklegt væri að rússneskir hermenn myndu hörfa frá vesturbakka Dniproár og þar með Kherson-borg, einu héraðshöfuðborginni sem Rússar hafa náð tökum á frá því innrás þeirra hófst í febrúar. Erlent 3.11.2022 14:29
Imran Khan særður eftir skotárás Imran Khan, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, særðist eftir að árásarmaður hóf skothríð á mótmælum í Wazirabad í dag. Aðrir stjórnmálamenn úr flokki Khans eru sagðir hafa særst í árásinni og einn þeirra er dáinn. Erlent 3.11.2022 13:35
Hyggjast sekta skólastarfsmenn fyrir þátttöku í verkfallsaðgerðum Ríkisstjóri Ontario í Kanada hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir frumvarp sem stjórnvöld hafa kynnt til sögunnar, sem kveður á um að stuðningsstarfsfólk í skólum geti átt á hættu að verða sektað um 4 þúsund Kanadadollara á dag, 430 þúsund krónur, fyrir að taka þátt í verkfallsaðgerðum. Erlent 3.11.2022 10:57
Málaði upp dökka mynd af stöðu lýðræðis í Bandaríkjunum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hvatti Bandaríkjamenn til að nýta kosningarétt sinn í þingkosningunum í næstu viku til að standa upp í hárinu á lygum og ofbeldi öfgamanna í röðum Repúblikana. Forsetinn varaði við því að þeir væru að reyna það sama og þeir reyndu í kosningunum árið 2020 og það væri að grafa undan kosningum og tryggja sér sigur án meirihluta kjósenda. Erlent 3.11.2022 10:33
Rússar hættir við að hætta við Rússar hættu í gær við að hætta við þátttöku í samningi sem náðst hafði um öruggan flutning kornvöru frá Úkraínu. Varnarmálaráðuneyti Rússlands sagði í gær að Rússar hefðu verið fullvissaðir um að „kornhliðið“ yrði ekki notað til að gera árásir á rússneska flotann. Erlent 3.11.2022 08:16
Bolsonaro biðlar til stuðningsmanna sinna um að mótmæla löglega Jair Bolsonaro fráfarandi forseti Brasilíu hefur biðlað til flutningabílstjóra um að þeir hætti að teppa vegi og tefja umferð í stærstu borgum landsins en brögð hafa verið að því frá því kosningaúrslit urðu ljós um síðustu helgi. Erlent 3.11.2022 07:18
Langdrægri flaug skotið frá Norður-Kóreu Norður-Kóreumenn eru sagðir hafa skotið langdrægri eldflaug á loft í nótt sem er hönnuð til að hitta skotmörk hinum megin á hnettinum. Erlent 3.11.2022 07:13
Tvöfalt meiri hlýnun í Evrópu en á heimsvísu Hlýnun í Evrópu á síðastliðnum 30 árum hefur verið ríflega tvöföld á við þá hlýnun sem hefur átt sér stað á heimsvísu á sama tímabili. Um er að ræða mestu hækkun fyrir einstaka heimsálfu. Með aukinni hlýnun aukast líkur á því að hátt hitastig, gróðureldar, flóð og aðrar afleiðingar loftslagsbreytinga hafi áhrif á samfélög, efnahag og vistkerfi. Erlent 2.11.2022 23:38
Viðurkenna mistök sín í kjölfar hrekkjavökuhörmunga Yfirvöld í Seúl hafa viðurkennt mistök sín hvað varðar fjöldastjórnun í kjölfar hrekkjavökuhörmunga í Itaewon-hverfi borgarinnar. Fjöldi látinna hefur hækkað og eru 156 nú sagðir látnir eftir slysið. Erlent 2.11.2022 21:42
Innbrotið hjá Pelosi náðist á mynd en enginn var að horfa Innbrot á heimili Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, í San Francisco náðist á öryggismyndavélar þinglögreglu Bandaríkjanna. Enginn lögregluþjónn fylgdist þó með myndavélinni. Erlent 2.11.2022 16:17
Dramatísk endurkoma Netanjahú á lokametrunum Allt lítur út fyrir að blokk Benjamíns Netanjahú, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, nái 65 sætum af 120 á ísraelska þinginu. Líklegast er að hann verði aftur forsætisráðherra en hann þarf að treysta á stuðning öfgamannanna þeirra Itamar Ben-Gvir og Bezalel Smotrich. Ben-Gvir leiddi eitt sinn samtök sem eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök í Bandaríkjunum. Erlent 2.11.2022 15:18
Segir af sér sem formaður Radikale Venstre Sofie Carsten Nielsen hefur sagt af sér sem formaður miðjuflokksins Radikale Venstre. Erlent 2.11.2022 14:43
Talningingaklúðrið hafði ekki áhrif á skiptingu þingsæta Skipting þingsæta breytist ekki eftir endurtalningu í kjördæminu Frederikshavn í Danmörku þar sem klúður varð í talningu atkvæða í dönsku þingkosningum í gær. Erlent 2.11.2022 13:12