Fótbolti

Leigubílstjóri olli Sveindísi vonbrigðum: „Þau eru bara eftir á hérna“
Þó að uppgangur og áhugi á knattspyrnu kvenna hafi aukist hratt víða um heim á síðustu árum þá er það ekki algilt eins og Sveindís Jane Jónsdóttir rak sig á við komuna til Serbíu. Hún segir Serba virðast aftarlega á merinni í þessum efnum.

Formannsframbjóðendur í Pallborðinu
Pallborðið verður á Vísi klukkan 14.00 í dag og að þessu sinni mæta mennirnir sem berjast um formannsstólinn hjá KSÍ.

Dani Alves dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi
Dani Alves, einn sigursælasti fótboltamaður sögunnar, hefur verið dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun.

Kerecis aðalstyrktaraðili Vestra: „Afar þakklát fyrir veglegan stuðning“
Líftæknifyrirtækið Kerecis er nýr aðalstyrktaraðili knattspyrnudeildar Vestra á Ísafirði. Heimavöllur félagsins fær nú nafnið Kerecisvöllurinn og munu öll lið Vestra leika í búningum merktum fyrirtækinu, sem í fyrra var selt fyrir 175 milljarða króna.

Messi vippaði yfir meiddan mann
Lionel Messi var í sviðsljósinu þegar Inter Miami hóf nýja leiktíð í bandarísku MLS-deildinni í fótbolta á því að vinna 2-0 sigur gegn Real Salt Lake í gærkvöld.

„Vantaði meiri ógnun“
Mikel Arteta sagði að lið hans Arsenal yrði að gera betur í seinni leiknum gegn Porto en Arsenal mátti sætta sig við 1-0 tap á útivelli í kvöld. Mark Porto kom í uppbótartíma.

Fullt hús stiga hjá KR í Lengjubikarnum
KR vann sinn þriðja sigur í jafnmörgum leikjum í Lengjubikarnum þegar liðið vann 3-1 sigur á Njarðvík í kvöld.

„Völlurinn og liðið breyttu leiknum í sameiningu“
Jurgen Klopp var gríðarlega ánægður eftir sigur Liverpool á Luton Town í kvöld en toppliðið var 1-0 undir í hálfleik. Hann sagði liðið ekki vera sigurstranglegra fyrir úrslitaleik deildabikarsins gegn Chelsea á sunnudag.

Maradonaslagurinn í járnum eftir jafntefli í Napolí
Það er allt galopið í einvígi Napoli og Barcelona eftir fyrri leik liðanna á Diego Armando Maradona-leikvanginum á Ítalíu í kvöld. Liðin mætast á ný eftir þrjár vikur á Spáni.

Frábær síðari hálfleikur dugði Liverpool
Liverpool er með fjögurra stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 4-1 sigur á Luton Town á heimavelli í kvöld. Toppliðið var undir í hálfleik en frábær síðari hálfleikur tryggði þeim stigin þrjú.

Juventus vill Albert í skiptum fyrir ungan Argentínumann
Ítalski miðillinn Tuttosport greinir frá því í dag að stórlið Juventus vilji fá Albert Guðmundsson til liðs við sig í sumar og sé tilbúið að senda ungan Argentínumann til Genoa í skiptum.

Dramatík í lokin og Arsenal með bakið upp við vegg
Arsenal er í brekku í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir 1-0 tap gegn Porto á útivelli í kvöld. Sigurmark Porto kom á lokasekúndum leiksins.

Ætlar að henda Manchester City og Liverpool af stallinum
Jim Ratcliffe er formlega orðinn einn af eigendum Manchester United eftir að kaup hans á 27,7% hlut í félaginu voru samþykkt. Hann mun sjá um daglegan rekstur á öllu knattspyrnutengdu í félaginu og ætlar sér að skáka Manchester City og Liverpool.

Tap hjá U17 í undankeppni EM
Íslenska stúlknalandsliðið skipað leikmönnum sautján ára og yngri tapaði í dag 1-0 fyrir Portúgal í leik liðanna í undankeppni Evrópumótsins.

Valur vann báðar Drago-stytturnar
Valur og Stjarnan hlutu bæði viðurkenningu KSÍ í ár fyrir háttvísi og prúðmennsku en Drago-stytturnar eru jafnan afhentar í aðdraganda ársþings KSÍ sem fram fer um næstu helgi.

Klopp um meiðslavandræðin: Vorkennum okkur ekki en vandamálin eru til staðar
Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool í ensku úrvalsdeildinni, sagðist ekki byrjaður að hugsa um úrslitaleik deildarbikarsins næsta sunnudag. Luton Town væri verðugur andstæðingur sem krefðist fullrar athygli.

Son biðlar til samlanda sinna að fyrirgefa Lee
Heung Min-Son, fyrirliði Suður-Kóreu og leikmaður Tottenham, hefur beðið samlanda sína að fyrirgefa Kang-In Lee fyrir að slasa sig rétt fyrir undanúrslit Asíumótsins.

Ancelotti bauð Modric þjálfarastarf á næsta tímabili
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, hefur boðið Luka Modric starf í þjálfarateymi félagsins ef leikmaðurinn ákveður að hætta að tímabilinu loknu.

Liverpool fólk svitnar: Xabi Alonso efstur á óskalista Bayern
Liverpool fær væntanlega mikla samkeppni um Xabi Alonso ef marka má nýjustu fréttir frá Bæjaralandi.

Núnez bara einu skoti frá stöngin-út metinu
Liverpool framherjinn Darwin Núnez skoraði frábært mark fyrir Liverpool um síðustu helgi og verður aftur í sviðsljósinu í kvöld. Það hefur þó ekki alltaf verið raunin að hann nýti dauðafærin sín.

Stuðningsmenn Newcastle verða fastir í Lundúnum á laugardag
Arsenal tekur á móti Newcastle í Lundúnum næsta laugardag. Leikurinn átti að hefjast klukkan 15.00 en var færður til 20.00, sem er óvenjulegur leiktími á laugardagskvöldi, svo leyfilegt sé að sýna hann í sjónvarpi.

Valsmenn krækja í „eina allra efnilegustu knattspyrnukonu landsins“
Haukar þurfa enn á ný að sætta sig við það að sjá á eftir ungri stórefnilegri knattspyrnukonu leita annað. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir hefur samið við Val.

Allir dómarar þurfa að gangast undir lygapróf fyrir hvern leik
Goðsögnin Andrei Shevchenko er nú forseti úkraínska knattspyrnusambandsins og hann er tilbúinn að fara nýstárlegar leiðir í baráttu sinni gegn spillingu í úkraínsku deildinni.

Tuchel segir af sér eftir tímabilið
Tomas Tuchel mun segja af sér sem þjálfari Bayern München að tímabilinu loknu.

Skilur ekkert í að Ajax hafi fengið gæðalausan Henderson
Rafael van der Vaart lét óánægju sína í ljós með kaup Ajax á Jordan Henderson.

„Ég er þjálfari, lífið mitt er betra en þitt“
Pep Guardiola spjallaði við blaðamenn eftir 1-0 sigur gegn Brentford í gærkvöldi. Þar fór hann yfir leikinn, stöðuna á lykilmönnum liðsins og grínaðist með að líf sitt væri betra en blaðamanns.

Fullgengið frá kaupum Ratcliffe
Sir Jim Ratcliffe hefur lokið kaupferli á 27,7 prósent eignarhlut í Manchester United.

Xavi: Vitum ekki við hverju á að búast
Napoli tekur á móti Barcelona í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Napoli skipti um þjálfara á mánudag, í annað sinn á tímabilinu. Xavi Hernandez, þjálfari Barcelona, sagðist ekki vita hvernig ætti að skipuleggja liðið fyrir leikinn.

Solskjær gæti tekið við sem bráðabirgðastjóri ef Tuchel verður rekinn
Þýska stórveldið Bayern München íhugar nú að fá Ole Gunnar Solskjær, fyrrum leikmann og þjálfara Manchester United, sem bráðabirgðastjóra liðsins ef félagið ákveður að reka Thomas Tuchel, núverandi stjóra liðsins.

Ye þakkaði stuðningsmönnum Inter fyrir sig og sá liðið vinna
Bandaríski rapparinn Kanye West, eða Ye, var meðal áhorfenda á San Siro er Inter tók á móti Atlético Madrid í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.