Fótbolti

Furðu lostnir yfir tæklingu Örvars: „Greyið Ívar“
Stúkumenn voru hálfgáttaðir á afar skrautlegri eða hreinlega ljótri tæklingu Örvars Eggertssonar gegn sínum gamla samherja Ívari Erni Jónssyni, þegar þeir fóru yfir umdeild atvik úr 2-0 sigri Stjörnunnar gegn HK í Bestu deildinni í gærkvöld.

Mundi ekki neitt en fékk samt að spila áfram
Leikmaður í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta spilaði áfram þrátt fyrir hafa fengið þungt höfuðhögg. Eftir á þá mundi hann ekki neitt hvað hafði gerst í leiknum sem hann spilaði.

Norska félagið einum leik frá að lágmarki fjórum milljörðum
Það er mikið undir hjá mörgum félögum í Evrópufótboltanum í þessari viku enda kemur þá í ljós hvaða lið komast í Meistaradeildina, Evrópudeildina og Sambandsdeildina.

KA efst allra í seinni umferð og hart barist fyrir skiptingu
Það er forvitnilegt að sjá hve ólík stigasöfnun liðanna í Bestu deild karla hefur verið fyrri og seinni hluta hinnar hefðbundnu deildakeppni. KA-menn hafa rakað inn flestum stigum allra liða í seinni umferðinni, og botnlið Fylkis gert betur en KR, Vestri og HK.

Hertha Berlín staðfestir komu Jóns Dags
Landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson er genginn í raðir þýska félagsins Herthu Berlínar frá OH Leuven í Belgíu. Þetta staðfestir Hertha á heimasíðu félagsins.

Stúkan: Blikar öflugir án Jasonar Daða
Breiðablik missti einn sinn besta leikmann á miðju sumri en Blikar hafa þrátt fyrir það gefið í og eru nú komnir upp í toppsætið í Bestu deildinni. Stúkan ræddi Blikaliðið í nýjasta þætti sínum.

Gera allt til að vernda Guðrúnu og félaga eftir hótanirnar
Landsliðskonan Guðrún Arnardóttir og aðrir leikmenn Rosengård munu nú æfa á bakvið luktar dyr, í kjölfar hótana í garð eins af leikmönnum félagsins.

Barcelona nýtir sér meiðsli leikmanns til að skrá Olmo
Spænski landsliðsmaðurinn Dani Olmo fær væntanlega að spila með Barcelona í kvöld eftir að félaginu tókst loksins að finna leið til að skrá hann inn hjá spænsku deildinni.

Sofið minna en skorað meira: „Ekki eitthvað sem ég mæli með“
Björn Daníel Sverrisson raðar inn mörkum fyrir FH og er markahæsti leikmaður liðsins í Bestu deild karla. Björn kveðst óviss um hvað orsaki markaflóðið en segist þó hafa sofið minna í ár en þau á undan.

Man. Utd sagt vera að ganga frá kaupunum á Ugarte
Manuel Ugarte verður leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United en enska félagið hefur náð samkomulagi við Paris Saint-Germain.

Var kominn niður á rassinn í teignum en skoraði samt: Sjáðu mörkin
Stjarnan komst upp í efri hluta Bestu deildar karla í fótbolta eftir 2-0 sigur á HK í Garðabænum í gærkvöldi. Nú má sjá mörkin úr leiknum inn á Vísi.

Beckham fór og kvaddi Sven: Við hlógum og grétum saman
David Beckham, fyrrum fyrirliði enska fótboltalandsliðsins, er meðal þeirra fjölmarga sem hafa minnst Svíans Sven-Görans Eriksson sem lést í gær 76 ára gamall.

Elskuðu Fergie tímann en nú er Ten Hag tíminn að gera alla brjálaða
Manchester United tapaði enn á ný í ensku úrvalsdeildinni um helgina eftir að hafa fengið á sig sigurmark undir lok leiks.

Söfnuðu nærri tveimur milljónum til minningar um Pétur Ben
Knattspyrnulið Augnabliks safnaði nýverið nærri tveimur milljónum króna sem runnu óspart til Píeta Samtakanna en þau sinna forvarnastarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða ásamt því að styðja við aðstandendur.

Chiesa á blaði hjá Liverpool
Hinn 26 ára gamli Federico Chiesa er á blaði hjá Liverpool en það er ljóst að Arne Slot, nýr þjálfari liðsins, vill styrkja hópinn áður en félagaskiptaglugginn lokar.

Liðsfélagarnir stríða táningnum með því að kalla hann Bobby
Undrabarnið Endrick skoraði sitt fyrsta mark fyrir Real Madríd um helgina. Hann birti í kjölfarið færslu á Instagram-síðu sinni þar sem liðsfélagar hans stríddu honum með því að kalla leikmanninn því sem virðist vera nýja gælunafn hans hjá félaginu.

„Ekki mikið að pæla í stöðutöflunni“
Stjarnan vann mikilvægan 2-0 heimasigur á HK í kvöld í 20. umferð Bestu deildar karla. Sigurinn skilaði liðinu upp um tvö sæti og situr nú í sjötta sætinu þegar aðeins tvær umferðir eru þangað til að deildin skiptist í tvennt.

Uppgjörið: Stjarnan - HK 2-0 | Heimamenn upp í efri hlutann
Stjarnan er komin upp í efri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu þökk sé 2-0 sigri á HK í 20. umferð deildarinnar. HK situr hins vegar enn í fallsæti.

Guðrún og stöllur veittu ekki viðtöl eftir hótun í garð leikmanns
Landsliðskonana Guðrún Arnardóttir tryggði toppliði Rosengård gríðarlega mikilvægan sigur á Häcken í sænsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Leikmenn liðsins gáfu hins vegar ekki kost á sér í viðtölum eftir leik eftir að leikmanni liðsins barst hótun.

Juventus vann aftur öruggan sigur
Thiago Motta gæti vart hafa byrjað betur sem þjálfari Juventus. Eftir tvo leiki í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu, er liðið með tvo sigra og markatöluna 6-0.

Telur Orra Stein ekki á leið til Man City að svo stöddu
Á sunnudaginn var Orri Steinn Óskarsson, framherji íslenska landsliðsins í knattspyrnu og FC Kaupmannahafnar, orðaður við Englandsmeistara Manchester City. Blaðamaður sem sérhæfir sig í liði Man City telur Orra Stein ekki vera á leið til liðsins að svo stöddu.

Alfreð hættur með landsliðinu: „Ótrúlega erfitt að kveðja“
Alfreð Finnbogason hefur lagt landsliðsskóna á hilluna. Þetta tilkynnti framherjinn á samfélagsmiðlum sínum í dag, mánudag.

Guðrún sá til þess að Rosengård er enn með fullt hús stiga
Íslenska landsliðskonan Guðrún Arnardóttir skoraði eina mark Rosengård í 1-0 sigri á Häcken í sænsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta. Rosengård er því áfram með fullt hús stiga á toppi deildarinnar.

Hjörtur færir sig um set á Ítalíu
Varnarmaðurinn Hjörtur Hermannsson hefur skipt um lið á Ítalíu. Hann hefur samið við Carrarese sem spilar í B-deildinni þar á landi.

Liðsfélagi Haalands þreyttur á þrennunum
Norðmaðurinn Erling Haaland skoraði enn eina þrennuna fyrir Manchester City er liðið vann 4-1 sigur á Ipswich Town í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Liðsfélagarnir eru hættir að nenna að hrósa honum fyrir.

Bjarki Steinn ekki með landsliðinu
Bjarki Steinn Bjarkason, leikmaður Venezia á Ítalíu, verður ekki með íslenska karlalandsliðinu í komandi leikjum í Þjóðadeildinni. Bjarki er á leið í aðgerð vegna kviðslita.

Jóhann fær dýraníðing og Tello sem liðsfélaga
Nýja félagið hans Jóhanns Bergs Guðmundssonar, landsliðsfyrirliða í fótbolta, heldur áfram að fá til sín leikmenn fyrir átökin í efstu deild Sádi-Arabíu á leiktíðinni sem var að hefjast.

Telur að Yoro slái í gegn hjá United: „Pirrandi að mæta honum“
Landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson hefur mikla trú á franska varnarmanninum Leny Yoro sem var liðsfélagi Hákons hjá Lille þar til hann skipti til Manchester United í sumar. Hákon kveðst strax hafa séð hversu mikið hæfileikabúnt franski miðvörðurinn er.

Segir Arnór búa yfir snilligáfu
Arnór Sigurðsson þurfti ekki langan tíma til að skora sitt fyrsta mark í ensku B-deildinni í fótbolta um helgina. Þjálfari hans hrósar íslenska landsliðsmanninum í hástert.

Sven-Göran Eriksson látinn
Sænski fótboltaþjálfarinn Sven-Göran Eriksson er látinn, 76 ára að aldri, eftir baráttu við ólæknandi krabbamein.