Bakþankar

Tæknipása
Tölvur eru hinir mestu tímaþjófar. Það geta væntanlega flestir verið sammála um, þó notagildi þeirra sé líka nokkuð óumdeilt. Það er þó ekki fyrr en tölvurnar eru teknar út úr jöfnunni, hvort sem það er gert meðvitað eða ekki, sem það kemur í ljós nákvæmlega hversu miklum tíma er eytt í þessum tækjum

Veðravíti á þjóðvegi 1
Ég þekki hjón sem gistu eitt sinn heila nótt í bílnum sínum uppi í Víkurskarði með þremur ungum börnum. Fjölskyldan ætlaði sér yfir í næstu sveit yfir páskahelgina og lagði af stað í góðu veðri frá Akureyri. Það var líka gott veður í sveitinni þangað sem ferðinni var heitið, en í skarðinu lentu þau í blindbyl og sáu hvorki

Vel flutt
Stundum er sagt að stjórnmál séu list hins mögulega. Að sama skapi eru flutningar list hins flytjanlega. Hryggjarstykkið í flutningum er vitaskuld flutningsteymið. Mundu að sama hversu stóra hönk þú átt upp í bakið á vinum þínum munu þeir ósjálfrátt leiða

Fótum troðnir karlmenn
Útvarpið er bilað, önnur framrúðan lokast ekki og einn hjólkoppanna er týndur. Þrettán ára gamla bílskrjóðnum mínum hefur verið lýst sem brotajárni á hjólum. Í umsókn um bílatryggingu sem ég fyllti út

Öskurdagur
Öskudagur var ekki mikill hátíðisdagur í Reykjavík þegar ég var krakki. Þó var gefið frí í skólum og þegar við vinkonurnar fórum að stálpast runnu möguleikar frjálsræðisins upp fyrir okkur. Við fórum í skrítin föt og skreyttum okkur aðeins í

Pabbi er óléttur!
Í meistararitgerð minni rannsakaði ég ófrjósemi karla. Málið hefur hina ýmsu fleti og einn af þeim sem mér þótti virkilega áhugaverður var væntingar karlmanna til foreldrahlutverksins. Ég sökkti mér niður í þær fáu rannsóknir sem hafa verið gerðar á þessu málefni.

Ættjarðarást bankastjóranna
Laun íslensku bankastjóranna eru byrjuð að mjakast í þá átt sem þau voru þegar smjör lak hér af hverju strái. Við hljótum því að eiga von á hagstæðari lánakjörum og betri vöxtum. Er það ekki annars? Ég bíð allavega spenntur og er byrjaður að leita að íbúð til að yfirbjóða.

Orða vant
Í frábærum leiðara sem Steinunn Stefánsdóttir skrifaði á dögunum var fjallað um gengisfellingu orðanna. Orð eins og mannréttindi, og frelsi eru notuð til að auka vægi í umræðunni, þó ekkert í því sem rætt er um fari nærri því sem þessi orð vísa til. Kannski

Loftlausa fólkið
Við tölvuskjá um morgun situr svefndrukkin manneskja með bauga undir augum, axlirnar stífar, andlitið fölt. Morgunþreytan liggur eins og mara yfir skrifstofunni, syfjaður starfsmaður teygir sig

Árið 1974 komið úr endurvinnslu
Á sunnudaginn var sannfærðist ég endanlega um það að sagan fer í hringi. Þennan sama dag sá ég forsíðu spænsks dagblaðs frá því í apríl 1974. Forsíðufréttin fjallaði um fjármálakröggur spænsku þjóðarinnar. Þessa frétt mætti hæglega endurvinna fyrir blaðið

Á
Vatn er dýrmæti. Lífið skírist í vatni. Vatn verður ekki aðeins metið til peninga – ekki frekar en lífið sjálft. Jafnvel í köldu Þingvallavatni lifa um 120 þúsund lífverur á hverjum fermetra við vatnsbakka. Það er heilt samfélag á litlum bletti og í stóru samhengi. Það lífríki er

Fjötrar fáráðs
Það er meiriháttar vesen fyrir marga sem ég þekki um fimmtugt að fara yfir eina nótt í bústað. Kæfisvefnsbúnaðurinn einn og sér er eins og að taka með sér hund í ferðalag. Smám saman færist aldurinn yfir og með honum meiri búnaður en áður. Sjálf er ég komin

Nokkrar tilvitnanir
Í dag nenni ég ekki að skrifa Bakþanka. Þess í stað ætla ég að deila með ykkur sex völdum tilvitnunum af þeim toga sem ég hef mest gaman af. Þær eru þessar, í aldursröð:

Skipulagsslysin í bílaborginni
Um síðustu helgi neyddist ég til þess að fara tvisvar sinnum sama daginn í Kórahverfi Kópavogsbæjar. Það tók mig tuttugu mínútur frá því að komið var inn í Kópavog að komast á áfangastað. Fjörutíu mínútur fram og til baka og það bara innan Kópavogs, svo var ferðin

Þessir tillitslausu ökumenn
Ástæða þess að við stöðvum þig Ragnheiður er sú að þú gafst ekki stefnuljós þegar þó ókst út af hringtorginu," sagði hjálmklæddur lögregluþjónninn við mig alvarlegur í bragði. Mér vafðist tunga um tönn, sagði "ó!"

Hver er eiginlega þessi þjóð?
Ég man þá tíð þegar "þjóð“ var hugtak sem aðeins var flaggað á tyllidögum; á 17. júní, yfir Evróvisjón og landsleikjum í fót- og handbolta. Mörgum þótti það hálfgerður garmur – í besta falli gamaldags, rembingslegt og útblásið; í versta falli gildishlaðið og hrokafullt. Það

Sjónarhornið úr sollinum
Undanfarinn áratug eða svo hefur póstnúmerið alræmda hundrað og einn verið minn heimavöllur. Síðastliðinn þrjú ár hef ég meira að segja búið í sjálfu hjarta sollsins: Hverfisgötu. Samkvæmt vinsælli forskrift ætti ég því væntanlega að vera ullardúðuð listaspíra á styrkjum (lesist bótum), sem sökum lattéþambs og hugvísindamenntunar hefur bjagað skynbragð á nýtingu náttúruauðlinda og efnahagsstjórn. Að viðbættri nálægðinni við Hverfisgötu má að auki teljast líklegt að ég stundi vændi til að fjármagna fíkn mína í morfínlyf.

Hjarta skólans
Í miðjum skólanum mínum, Álftamýrarskóla, var bókasafn. Einn vetur þegar ég var líklega 10 ára gömul kom ég mér upp þeim sið að drífa mig heim eftir að skóla lauk, borða hádegismat, læra og skunda síðan á skólabókasafnið. Næsta almenningsbókasafn var Bústaðasafnið og það var allt of langt í burtu til að ég kæmist þangað ein míns liðs. Á skólabókasafnið var aftur á móti örstutt að fara og þar kom ég mér þægilega fyrir með bók. Þarna

Heimur batnandi fer
Um daginn lá leið mín í Háskóla Íslands en þangað hef ég ekki komið síðan ég tók mitt BA-próf með sæmilegu láði fyrir sautján árum eða svo. Þá var ástandið svona:

Prinsinn á Bessastöðum
Einu sinni var prins í litlu landi, langt úti í sjó. Hann átti heima í húsi með rauðu þaki, á Bessastöðum. Stundum varð prinsinn óskaplega þreyttur því hann fékk svo margar undirskriftir sendar að hann komst ekki yfir að lesa þær allar. En honum fannst samt gaman að vera prins og dreymdi um að hætta því aldrei. Þetta var lífið!

Íslenskur aðall
Ég hef oft velt því fyrir mér af hverju ég sé svona yfirmáta stoltur af því að vera Íslendingur. Fljótlega bárust böndin að náttúrufegurðinni en ég komst þó fljótt að því að ekki dugði hún ein til, enda vita allir að hið mesta hyski getur búið á fallegu bæjarstæði í faðmi fallegra fjalla.

Kyssuber
Kirsuberjatréð í garðinum okkar var þakið rauðum og safaríkum berjum haustið 2010. Mér kom á óvart að berin skyldu verða á annað hundrað strax á fyrsta sumri. Blómin voru falleg og ummynduðust síðan í berjaknúppa. Svo færðist roðinn yfir og börnin í hverfinu komu hlaupandi til að sjá undrið.

Elliheimilið á Fáskrúðsfirði
Sumarið 1986 var blöðungi dreift í húsin á Fáskrúðsfirði og við vinkonurnar á Hlíðargötu vorum eflaust þær fyrstu af rúmlega sjö hundruð íbúum til að kippa honum úr lúgunni.

Hinn andfélagslegi ég
Þegar maður skrifar pistla eins og þennan kemur maður út eins og andfélagslegur mannhatari. Það er nefnilega ekki vinsælt að lýsa því yfir að manni leiðist fólk. Félagsþörfin er svo miðlæg í sjálfsskilningi nútímamannsins að maður er nánast að segja

Ábyrgð fréttakonunnar
Stór hluti Íslendinga hafði líklega ekki heyrt á Löru Logan minnst fyrr en í þessari viku, þegar fréttir bárust af því að ráðist hefði verið á þessa bandarísku fréttakonu á Frelsistorgi

Tíu dropar af sólarkaffi
Það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hvað dagurinn er fljótur að lengjast eftir áramótin. Nú finnst mér óralangt langt síðan ég fetaði mig í vinnuna í myrkri á morgnana og þreifaði mig svo til baka seinnipartinn, eftir örlitla

Siðlegt en löglaust
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur legið undir ámæli eftir að Hæstiréttur ógilti ákvörðun hennar um að neita að staðfesta aðalskipulag Flóahrepps. Viðbrögð Svandísar og samherja hennar hafa verið á þá leið að

Hamingjusömu hægrimennirnir
Bölsýnismenn eins og ég sem alla tíð hafa búið við glasið hálftómt eru loksins í tísku. Bjartsýni er svo 2007. En þótt félagsskapur okkar sem höfum allt á hornum okkur hafi farið stækkandi um heim allan er einn sá hópur

Niðurskurður verðandi skuld
Fyrir um áratug tók ég blaðaviðtal austur á Litla-Hrauni við mann sem sat inni fyrir morð. Þetta var vel menntaður fjölskyldufaðir sem hafði leiðst út í neyslu eiturlyfja og framið ódæðið undir áhrifum þeirra.