
Viðskipti erlent

Boeing 757-þotan fær ekki að lenda í Færeyjum
Áform færeyska fiskeldisfyrirtækisins Bakkafrosts um reglubundið flug með ferskan lax frá Færeyjum eru í uppnámi þar sem Boeing 757-fraktflutningaþota dótturfélagsins FarCargo fær ekki að lenda á flugvellinum í Vogum. Ástæðan er sú að 41 metra vænghaf hennar telst of breitt fyrir þennan eina flugvöll Færeyinga sem skilgreindur er fyrir allt að 36 metra vænghaf flugvéla.

Birta tölvupósta frá Musk
Forsvarsmenn fyrirtækisins OpenAI segja auðjöfurinn Elon Musk hafa samþykkt að fyrirtækið sneri frá ætlunum um að starfa sem óhagnaðardrifið fyrirtæki. Því til stuðnings hafa áðurnefndir forsvarsmenn birt tölvupósta frá Musk, sem hefur höfðað mál gegn fyrirtækinu.

Sala á iPhone-símum hríðfellur í Kína
Sala á iPhone-símum í Kína hefur dregist saman um 24 prósent fyrstu sex vikur ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Kína er einn stærsti markaður fyrirtækisins Apple sem framleiðir iPhone-símana.

Færeyingar fagna fiskflutningaþotu
Boeing 757-fraktflutningaþota færeyska flugfélagsins FarCargo fékk hátíðlegar móttökur á Voga-flugvelli þegar hún lenti í fyrsta sinn í Færeyjum síðdegis í gær. Helstu ráðamenn eyjanna voru meðal gesta í móttökuathöfn, þeirra á meðal Aksel V. Johannessen, lögmaður Færeyja, og Høgni Hoydal utanríkis- og atvinnumálaráðherra, og fékk þotan heiðursbunu frá flugvallarslökkviliðinu þegar hún ók í hlað.

Facebook virkar á ný
Facebook, Instagram, Workplace, Threads og aðrir miðlar samfélagsmiðlafyrirtækisins Meta liggja niðri. Ástæðan liggur ekki fyrir en svo virðist sem vandamálið sé á heimsvísu.

Bezos tekur aftur fram úr Musk
Jeff Bezos er aftur orðinn auðugasti maður heimsins. Hann hefur tekið aftur fram úr auðjöfrinum Elon Musk, sem náði efsta sæti á lista Bloomberg af Bezos haustið 2021. Virði Musks hefur dregist töluvert saman á undanförnum mánuðum.

Apple sektað um 270 milljarða af ESB
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur sektað Apple um tvo milljarða dala vegna einokunar. Forsvarsmenn fyrirtækisins eru sagðir hafa beitt mætti þess til að kæfa samkeppni á sviði tónlistarstreymis.

Elsta vörumerki Bretlands fær nýtt útlit
Lyle's Golden Syrup hefur tekið til notkunar nýjar umbúðir á vörum sínum. Í stað rotnandi ljónshræs kemur teiknuð mynd af ljóni. Breytingin á þó einungis við sírópið sem fæst í flöskum en sírópsdósirnar vinsælu verða enn með sama útlit.

Umfangsmiklar uppsagnir hjá PlayStation
Jim Ryan, fráfarandi yfirmaður Sony Interactive Entertainment, sem er í raun PlayStation, tilkynnti í dag að stórum hluta starfsmanna félagsins yrði sagt upp. Um er að ræða um níu hundruð manns, sem samsvarar um átta prósentum af öllum starfsmönnum SIE.

Léku bakarí grátt og Musk lofar bót og betrun
Auðjöfurinn Elon Musk hefur lofað að ná sáttum við bakarí í Kaliforníuríki Bandaríkjanna, eftir að fyrirtæki hans hætti við umfangsmikla pöntun á síðustu stundu.

Bjóða níræðum ókeypis flug
Í ár eru 90 ár frá stofnun norska flugfélagsins Widerøe. Af því tilefni hafa forsvarsmenn félagsins ákveðið að bjóða fólki fæddu 1934 frítt flug.

Gekk erfiðlega að svara fyrir meint okur og sagði upp störfum
Yfirmaður verslunarkeðjunnar Woolworths í Ástralíu hefur sagt af sér eftir erfitt viðtal þar sem hann var yfirheyrður um verðlagningu og meint okur. Gekk hann út, augljóslega ósáttur við spurningar blaðamanns, en samþykkti svo að klára viðtalið.

Ofsagróði hjá olíurisunum eftir innrás Rússa í Úkraínu
Fimm stærstu skráðu olíufélög heims hafa hagnast um 280 milljarða Bandaríkjadala frá því Pútín Rússlandsforseti fyrirskipaði innrásina í Úkraínu.

Klósettleysi yfir Íslandi setti ferðaplönin úr skorðum
Snúa þurfti við flugvél KLM-flugfélagsins á leið sinni frá Amsterdam til Los Angeles sökum klósettleysis. Flugvélin var í lofthelgi Íslands þegar ákvörðunin var tekin.

Óvænt kreppa í Japan og Þýskaland tekur þriðja sætið
Óvæntur samdráttur mældist á japanska hagkerfinu en verg landsframleiðsla dróst þar saman um 0,4 prósent á síðasta fjórðungi síðasta árs. Þar áður var 3,3 prósenta samdráttur og er nú tæknilega séð kreppa í Japan.

Grænlendingar hefja beint flug til Kanada
Air Greenland, þjóðarflugfélag Grænlendinga, hyggst hefja áætlunarflug milli Grænlands og Norður-Kanada í sumar. Flogið verður milli höfuðstaðarins Nuuk og bæjarins Iqaluit, höfuðstaðar Nunavut, sjálfsstjórnarsvæðis Inúíta í Kanada.

Engir rauðir límmiðar lengur á Iittala
Nýr listrænn stjórnandi Iittala hefur nú svipt hulunni af nýjum lit og merkingum fyrir merkið. Í stað rauða litarins sem hefur einkennt merkið í áratugi, og auðvitað rauðu límmiðana, er nú tekinn við gulur ferskari litur.

Vill færa skráningu Tesla til Texas
Auðjöfurinn Elon Musk vill færa skráningu Tesla frá Delaware og til Texas. Það er eftir að dómari í Delaware komst að þeirri niðurstöðu að 55 milljarða dala kaupréttarsamningur sem gerður var við hann árið 2018 hefði verið ólöglegur.

Adidas ákveður að selja birgðir sínar af Yeezy
Íþróttavöruframleiðandinn Adidas hefur ákveðið að selja birgðir sínar af Yeezy-strigaskóm, sem hafa setið á lager frá því að fyrirtækið sleit samstarfi sínu við tónlistar- og athafnamanninn Kanye West.

Musk sjö og hálfri billjón króna fátækari
Auðjöfurinn Elon Musk mátti ekki fá 55 milljarða dala greiðslu frá fyrirtæki sínu Tesla, í formi kaupréttar árið 2018. Dómari í Delaware í Bandaríkjunum lýsti þessu yfir í kvöld, fimm árum eftir að hluthafar í fyrirtækinu höfðuðu mál vegna greiðslunnar, sem gerði Musk að einum ríkasta manni heims.

Amazon hættir við kaup á framleiðanda Roomba
Amazon hefur hætt við kaup á snjallryksuguframleiðandanum iRobot. Ákvörðunin liggur fyrir örfáum dögum eftir að fréttir bárust af því að Evrópusambandið hygðist ekki veita fyrirtækinu leyfi fyrir kaupunum.

Ryanair til í að kaupa afpantaðar Boeing þotur
Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair segist vera reiðubúið til þess að kaupa Boeing farþegaþotur af gerðinni Max 10 sem afpantaðar hafa verið af bandarískum flugfélögum, á réttu verði.

Færeyingar vonast eftir hlutdeild í olíuvinnslu
Færeyingar sjá tækifæri til að fá hlutdeild í gríðarmiklum umsvifum sem fylgja munu fyrirhugaðri olíu- og gasvinnslu á breska Rosebank-svæðinu. Svæðið er um 130 kílómetra norðvestur af Hjaltlandseyjum en aðeins fimmtán kílómetra austan við lögsögumörk Færeyja. Mun styttra er á svæðið frá Færeyjum heldur en frá Aberdeen, helstu olíuþjónustumiðstöð Bretlandseyja.

Segir tolla á kínverska rafmagnsbíla nauðsynlega
Auðjöfurinn Elon Musk, sem meðal annars á rafmagnsbílaframleiðandann Tesla, samfélagsmiðilinn X (áður Twitter) og geimfyrirtækið SpaceX, segir nauðsynlegt að setja tolla á kínverska rafmagnsbíla. Annars muni kínverskir bílaframleiðendur valta yfir önnur fyrirtæki í heiminum sem framleiða rafmagnsbíla.

Norsk stjórnvöld veita 62 ný leyfi til olíuleitar
Olíu- og orkumálaráðherra Noregs, Terje Aasland, hefur tilkynnt um útgáfu 62 nýrra sérleyfa til olíuleitar á norska landgrunninu. Þetta er mesti fjöldi leyfa í fjögur ár og sá fimmti mesti í olíusögu Norðmanna. Í fyrra var 47 leyfum úthlutað.

Samsung veðjar á gervigreind í nýjum Galaxy síma
Suður-Kóreski tæknirisinn Samsung svipti í gær hulunni af nýjasta snjallsímanum sínum af gerðinni Galaxy S24. Fyrirtækið segir símann nýtast við byltingarkennda tækni sem muni breyta því hvernig fólk notar síma.

Apple veltir Samsung úr sessi
Bandaríska fyrirtækið Apple velti á síðasta ári tæknirisanum Samsung, frá Suður-Kóreu, úr sessi á toppi snjallsímamarkaðs heimsins. Þar hafði Samsung setið í tólf ár sem fyrirtækið sem seldi flesta snjallsíma í heiminum.

Samþykktu endurskipulagningu Viaplay
Hluthafar sænska streymisfyrirtækisins Viaplay Group hafa samþykkt endurskipulagningu á félaginu sem leiðir til þess að franski fjölmiðla- og fjarskiptarisinn Canal+ Group og tékkneska fjárfestingafélagið PPF hafa eignast hvor um sig 29,3 prósenta hlut í fyrirtækinu.

Binda enda á 27 ára samstarf sitt
Bandaríski íþróttavörurisinn Nike og bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hafa bundið enda á samstarf sitt sem staðið hefur síðastliðinn 27 ár.

Samstarfsfólk Musk sagt hafa áhyggjur af fíkniefnaneyslu hans
Elon Musk, auðugasti maður heims, er sagður neyta fíkniefna á borð við LSD, kókaín og ofskynjunarsveppi. Þetta kemur fram í umfjöllun Wall Street Journal.