Viðskipti

Allt á upp­leið á Grundar­tanga

Eigandi Norðuráls á Grundartanga gerir ráð fyrir því að álverið munu ná fullum afköstum í lok júlí næstkomandi. Afköst álversins hafa aðeins verið þriðjungur af því sem þau eru vanalega eftir að bilun varð í annarri af tveimur kerlínum þess í október síðastliðnum. Talið var að viðgerð gæti tekið allt að ár.

Viðskipti innlent

Á að fá endur­greidd gler eftir gallaða sjónmælingu

Fyrirtæki sem seldi konu gleraugu með glerjum sem hentuðu henni ekki þarf að endurgreiða henni glerin eftir að kærunefnd vöru- og þjónustukaupa kvað upp úrskurð um kvörtun konunnar. Deilt var um hvort að sjónmæling sem gerð var á konunni hafi verið nákvæm.

Neytendur

Nova kaupir Ofar

Nova klúbburinn hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Ofar hf. Heildarvirði kaupanna er 4,4 milljarðar króna.

Viðskipti innlent

Eins og gælu­dýr sem borðar og borðar en fitnar ekki neitt

„Þetta var eins og að vera með gæludýr á heimilinu sem borðaði og borðaði en fitnaði ekki neitt,“ segir Sigrún Edda Eðvarðsdóttir og hlær þegar hún rifjar upp prufutækið sem þau hjónin fengu heim til sín af jarðgerðarvél, sem þau vildu prófa og sjá hvort og hvernig virkaði áður en fyrirtækið þeirra, Umbúðagerðin, tæki tækið í sölu.

Atvinnulíf

Ólafs­son gin aftur í eigu Ís­lendinga

Arnar Jón Agnarsson, frömuðurinn á bak við Ólafsson ginið, og Hrefna Sætran, einn fremsti kokkur landsins, hafa fest kaup á Eyland Spirits, félaginu sem framleiðir Ólafsson gin. Félagið hefur verið í eigu erlendra fjárfesta frá árinu 2022. 

Viðskipti innlent

Lík­legra en áður að nýjar í­búðir seljist undir á­settu verði

Undirboð á fasteignamarkaði hafa aukist og hlutfall nýrra íbúða sem seljast undir auglýstu verði hefur farið vaxandi. Þá dregur úr verðþrýstingi á leigumarkaði þar sem leiguverð hefur í fyrsta sinn í nokkur ár hækkað minna en verðbólga. Húsnæðismarkaðurinn sýnir merki um áframhaldandi kólnun og fleiri íbúðir seljast nú undir auglýstu söluverði að því er nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Viðskipti innlent

Sætur borgar­bíll þar til kíkt er í skottið

Hvaða skilyrði þarf heppilegur aukabíll á heimilið að uppfylla? Hann mætti ekki kosta hönd og löpp en yrði að vera þægilegur, praktískur og dálítið skemmtilegur og ekki skemmdi fyrir ef hann hefði útlitið með sér.  Aukabíll yrði að vera ódýr í rekstri svo rafbíll væri sniðugur kostur. Ford Puma Gen E er dálítið sætur og á fínasta verði. Ég ákvað að prófa hann.

Samstarf

Prófessor slær á áhyggjuraddir

Gylfi Magnússon, hagfræðingur, prófessor við Háskóla Íslands og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, segir ekki nokkra leið að fá það út, miðað við forsendur frumvarps ráðherra um tengingu bóta við launavísitölu, að breytingin eigi eftir að stefna fjárhag ríkisins í hættu. Annað mál sé þó hversu óskýrt orðalagið sé varðandi það hvað eigi að gera þegar laun hækka en það sé auðvelt að breyta því.

Viðskipti innlent

Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið

Ráðgjafi í ferðaþjónustu segir ákvörðun Icelandair um að fljúga til Trömsö í Noregi til marks um það hvernig Íslendingar hafi sofnað á verðinum, á sama tíma og Norðmenn hafi vaknað. Félagið leggi lóð á vogarskálar Norðmanna en viðbragð þess sé tilkomið vegna sinnuleysis íslenskra stjórnvalda.

Viðskipti innlent

Opin­berir starfs­menn eigi rétt á sjö­falt fleiri veikindadögum

Veikindaréttur opinberra starfsmanna er mun ríkari en í einkageiranum, að því er segir í nýrri úttekt Viðskiptaráðs. Þar segir að eftir sex mánuði í starfi eigi opinber starfsmaður rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum en starfsmaður með sama starfsaldur í einkageiranum. Samhliða því séu veikindafjarvistir tvöfalt algengari hjá hinu opinbera.

Viðskipti innlent

Hæsti­réttur gefur ÁTVR á baukinn

Hæstiréttur hefur vísað máli heildsölunnar Distu á hendur Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins frá Hæstarétti og því stendur dómur Landsréttar í málinu óhaggaður. ÁTVR greiddi málskostnað fyrir Landsrétti daginn eftir dómsuppsögu og fyrirgerði sér þannig rétti til áfrýjunar til Hæstaréttar. Hæstiréttur benti á að ÁTVR er ríkisfyrirtæki með löglærða menn í vinnu og naut aðstoðar lögmanna við rekstur málsins og því hefði það staðið ÁTVR næst að sýna fram á hvers vegna málskostnaður var greiddur, en það hefði ekki verið gert.

Viðskipti innlent

Kristín í Komið gott fær sér dag­vinnu

Kristín Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Upplýsingamiðlunar, nýrrar deildar á sviði samskipta og menningar hjá Landsbankanum sem tekur til starfa í lok febrúar. Kristín hefur ásamt Ólöfu Skaftadóttur stýrt Komið gott, einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, síðustu misserin.

Viðskipti innlent

Skipta­stjóri Play þarf að víkja

Héraðsdómur hefur fallist á kröfu Birtu lífeyrissjóðs um að víkja beri Unni Lilju Hermannsdóttur lögmanni úr starfi skiptastjóra þrotabús Play. Eiginmaður Unnar Lilju er eigandi á sömu lögmannsstofu og lögmaður Play.

Viðskipti innlent

Inn­kalla brúna rúllu­tertu

Gæðabakstur-Ömmubakstur hefur í samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur tekið ákvörðun um að innkalla Kristjánsbakarís brúna rúllutertu vegna aðskotahlutar í afmarkaðri lotu.

Viðskipti innlent

Taka Amaroq af markaði í Kanada

Amaroq hefur óskað eftir afskráningu hlutabréfa sinna úr TSX Venture-kauphöllinni í Kanada. Gert er ráð fyrir að afskráningin taki gildi við lok viðskipta þann 19. mars 2026. Þá stefnir félagið á skráningu á aðalmarkað kauphallarinnar í London í stað vaxtarmarkaðar þar í borg.

Viðskipti innlent

G-víta­mín eru litlu skrefin sem breyta miklu

Margir Íslendingar strengja áramótaheit í upphafi hvers árs og er algengt að þau snúi að einhvers konar líkamsrækt og líkamlegri heilsu. En skyldu margir strengja áramótaheit sem tengjast andlegri heilsu og geðrækt?

Samstarf

Í­huga að fresta út­gáfu PS6 um allt að tvö ár

Skortur og mikil verðhækkun á vinnsluminnisflögum, sem að mestu má rekja til gífurlegrar eftirspurnar frá gervigreindarfyrirtækjum, gæti leitt til þess að útgáfu næstu kynslóðar PlayStation-leikjatölvunnar verði frestað um allt að tvö ár. Forsvarsmönnum Sony hefur víst gengið illa að verða sér úti um svokallað Dram-vinnsluminni.

Viðskipti erlent