Fréttir
297 298 299 300 301 302 303 304 305 … 334 ›
Heilaflaga Neuralink Musk grædd í fyrsta einstaklinginn Auðjöfurinn og frumkvöðullinn Elon Musk hefur greint frá því að fyrirtæki hans Neuralink hafi nú í fyrsta sinn grætt þráðlausa tölvuflögu í heila manneskju. Erlent 30.1.2024 07:13
Svöl suðvestanátt í dag en stormur á morgun Hægfara lægð er nú á Grænlandshafi og beinir hún til okkar svalri suðvestlægri átt þar sem víða má gera ráð fyrir tíu til átján metrum á sekúndu. Spáð er dimmum éljum og að hvassast verði í éljahryðjum. Veður 30.1.2024 07:12
Sex börn með sex konum, óskráð sambúð og fær ekki krónu með gati Karlmaður sem sagður er faðir sex barna með jafnmörgum konum fær ekki helming af söluverðmæti fasteignar kærustu sinnar til þrjátíu ára. Hann lagði lítið sem ekkert til heimilishaldsins á sambúðartímanum og vildi ekki vera á launaskrá verslunar konunnar því þá færu peningarnir í meðlag. Hann sagðist meðal annars hafa lagt lottóvinninga til sameiginlegs heimilishalds. Innlent 30.1.2024 07:00
Liðsmenn Hamas ná aftur vopnum sínum í norðurhluta Gasa Liðsmenn Hamas eru sagðir hafa snúið aftur til norðurhluta Gasa, þar sem þeir eru sagðir vinna að því að ná aftur stjórn og ná vopnum sínum fyrir frekari átök við Ísraelsher. Erlent 30.1.2024 06:49
Breiðfylkingin og SA boðuð til fundar í Karphúsinu Ríkissáttasemjari hefur boðað til fundar á milli breiðfylkingar stéttarfélaga og SA í Karphúsinu. Innlent 30.1.2024 06:47
Slysið á Suðurlandsvegi var banaslys Slys sem varð á Suðurlandsvegi, skammt vestan Péturseyjar, var banaslys. Innlent 30.1.2024 00:28
Fimm ára fangelsi fyrir að stela og leka skattskýrslum auðmanna Charles Littlejohn, fyrrverandi verktaki hjá bandaríska Skattinum, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að stela og leka skattskýrslum margra af auðugustu mönnum Bandaríkjanna og Donald Trump, fyrrverandi forseta. Brot hans er sagt einstakt í sögu Skattsins í Bandaríkjunum. Erlent 29.1.2024 23:46
Nota Suðurstrandarveg á morgun en leita fleiri leiða Suðurstrandarvegur verður áfram leiðin inn í Grindavík fyrir þá bæjarbúa sem þangað fara á morgun. Innlent 29.1.2024 23:19
Dauðvona þjófur sem stal skóm Dóróteu sleppur við fangelsi Aldraður maður sem stal hinum frægu rauðu skóm Dóróteu úr kvikmyndinni um Galdrakarlinn í Oz mun líklega sleppa við fangelsi þar sem hann er við dauðans dyr. Hinn 76 ára gamli Terry Jon Martin sagðist hafa stolið skónum sem Judy Garland var í í kvikmyndinni sem kom út árið 1939 af safni í Minnesota, því hann vildi fremja sitt síðasta rán áður en hann dó. Erlent 29.1.2024 23:01
Suðurlandsvegur hefur verið opnaður Tveir voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi eftir alvarlegt umferðarslys við Sólheimasand á Suðurlandsvegi í kvöld. Innlent 29.1.2024 22:38
Betra ef Bjarni hefði rætt hugmyndir sínar við nefndina Þingflokksformaður Vinstri grænna telur að betur hefði farið á því ef utanríkisráðherra hefði rætt hugmyndir um að frysta fjárframlög Íslands til Palestínuflóttamannaðstoðar Sameinuðu þjóðanna við utanríkismálanefnd þingsins, áður en ákvörðunin var tekin. Innlent 29.1.2024 22:22
Vítisengill og morðingi sakaðir um tilraun til launmorða fyrir Íran Tveir kanadískir menn hafa verið ákærðir fyrir að taka að sér að fremja morð í Bandaríkjunum fyrir hönd leyniþjónusta Írans. Annar mannanna er meðlimur í Hells Angels glæpasamtökunum en þeir tveir eru sakaðir um að hafa hópað saman nokkrum mönnum með því markmiði að fara til Maryland í Bandaríkjunum í lok árs 2020 eða byrjun 2021 og myrða mann og konu sem búa þar. Erlent 29.1.2024 22:00
Lokað milli Ísafjarðar og Súðavíkur vegna snjóflóðs Veginum milli Ísafjarðar og Súðavíkur hefur verið lokað eftir að stórt snjófljóð féll úr Súðavíkurhlíð. Vegurinn verður ekki opnaður fyrr en í fyrsta lagi í fyrramálið. Innlent 29.1.2024 21:16
Verði kannski komin á byrjunarreit eftir tíu daga Víðir Reynisson segir aðgerðir við verðmætabjörgun í Grindavík heilt yfir hafa gengið vel í dag, þrátt fyrir hnökra í upphafi dags. Hann segist vel skilja reiði og pirring Grindvíkinga. Með áframhaldandi landrisi aukist óvissan um hvað gerist næst. Innlent 29.1.2024 21:05
Vill hanna varnir strax Íbúar á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi eru að sigla inn í óvissutíma að sögn eldfjallafræðings. Eldgosin séu að færast nær byggð og við því þurfi að bregðast. Innlent 29.1.2024 19:47
Alvarlegt slys á Suðurlandi Alvarlegt umferðarslys varð við Sólheimasand á Suðurlandsvegi skömmu fyrir klukkan sjö í kvöld. Búið er að loka veginum og hefur þyrla Landhelgisgæslunnar verið send á vettvang, í mesta forgangi. Innlent 29.1.2024 19:41
Opinberir starfsmenn með svipaðar kröfur og breiðfylkingin á ríkið Formaður BSRB segir samflot opinberra starfsmanna gera svipaðar kröfur um aðkomu ríkisins að kjarasamningum og stéttarfélög á almenna markaðnum gerðu. Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað breiðfylkinguna og SA til fundar í dag. Innlent 29.1.2024 19:20
Skutu drónann ekki niður vegna misskilnings Bandarískir hermenn í herstöðinni Tower 22 í Jórdaníu töldu að dróninn sem banaði þremur hermönnum og særði 34 í gær væri þeirra eigin sem verið væri að fljúga aftur til herstöðvarinnar. Þess vegna hafi hann ekki verið skotinn niður. Erlent 29.1.2024 18:57
Segir galið að aka Krýsuvíkurleiðina í aðstæðum eins og í morgun Miklar umferðartafir urðu við Grindavík í morgun þegar íbúar fengu að fara inn í bæinn að sækja eigur sínar. Veður og hálka gerði fólki erfitt fyrir og þurftu sumir að snúa við. Íbúi segir galið að almannavarnir hafi beint fólki um Krýsuvíkurveg sem sé þekktur fyrir að vera hættulegur í aðstæðum eins og í morgun. Innlent 29.1.2024 18:46
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Íbúar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi eru að sigla inn í óvissutíma að sögn eldfjallafræðings. Eldgosin séu að færast nær byggð en áður og mikilvægt sé að hefja vinnu við að efla varnir. Innlent 29.1.2024 18:00
„Ekki spurning um hvort það verði gos, heldur hvenær“ Þorvaldur Þórðarsson, eldfjallafræðingur, segist telja að skjálftahrina í Húsfellsbruna um helgina sé hluti af þeirri virkni sem er að eiga sér stað á Reykjanesskaga. Ekki sé spurning um hvort heldur hvenær muni gjósa í Brennisteinsfjöllum, þó hann telji ekki líkur á að það muni gerast á næstunni. Innlent 29.1.2024 17:21
Tómas með illkynja æxli Tómas Guðbjartsson, skurðlæknir, segir að hann hafi frá áramótum verið í rannsóknum vegna æxlis í ristli. Æxlið hafi reynst illkynja. Innlent 29.1.2024 16:56
Féllust á Annamaríu í seinni tilraun og nú má heita Emír Mannanafnanefnd hefur samþykkt eiginnafnið Annamaría, eftir að hafa áður hafnað beiðni um að það yrði fært í mannanafnaskrá. Nefndin hefur líka samþykkt nöfn á borð við Jóní og Siddý en hafnað nafninu Helgarut. Innlent 29.1.2024 16:45
Fordæma ákvörðun utanríkisráðherra Stjórn félagsins Ísland - Palestína hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem ákvörðun Bjarna Benediktssonar, utanríkisráðherra, um að frysta greiðslur til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) er fordæmd. Innlent 29.1.2024 16:16
Óttast að um sé að ræða fuglaflensu í fyrsta sinn Í hið minnsta ein mörgæs á Suðurskautslandi er talin hafa drepist úr fuglaflensu. Fáist það staðfest er um að ræða í fyrsta sinn sem mörgæs í heimsálfunni drepst úr veirunni. Um var að ræða kóngamörgæs. Erlent 29.1.2024 16:06
Síbrotapar dældi ítrekað á bílinn án þess að borga Karlmaður og kona, sem eiga bæði langan sakaferil að baki, hafa verið dæmd til skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að rækta kannabisplöntur og fjölda þjófnaða. Þau lögðu það í vana sinn að dæla eldsneyti á bíl og aka á brott án þess að greiða fyrir. Innlent 29.1.2024 15:27
Hefði verið til í fleiri til að bera hægindastólana Einar Dagbjartsson, íbúi í Grindavík, var á meðal Grindvíkinga sem fengu að sækja eigur sínar til Grindavíkur í dag. Hann segir að vel hafi gengið þó að hann hefði verið til í fleiri hendur til að aðstoða sig, við að sækja dót upp á þriðju hæð. Innlent 29.1.2024 14:43
Sex eldingar á fimm mínútum í Bláfjöllum Að minnsta kosti sex eldingum laust niður á Bláfjallasvæðinu á fimm mínútna tímabili skömmu eftir klukkan 13 í dag. Þær fylgdu éljabakka sem nú er farinn hjá, svo ólíklegt þykir að þær verði fleiri á svæðinu. Eldingakerfi Veðurstofu Íslands hefur mælt um sextán eldingar frá því klukkan 9 í morgun. Innlent 29.1.2024 14:25
Nú má heita Pomóna Nift Meðlimir Mannanafnanefndar virðast hafa verið í góðu skapi á síðasta fundi nefndarinnar, þegar allar beiðnir voru samþykktar. Meðal nafna sem færð voru í mannanafnaskrá voru Pomóna, Nift og Magnína. Innlent 29.1.2024 13:54
Skoða þarf viðbrögð við eldgosi nærri höfuðborgarsvæðinu Eldfjallafræðingur segir jarðskjálftahrinuna um helgina nærri Bláfjöllum til marks um að allt kerfið sé komið af stað. Innlent 29.1.2024 13:21