Fréttir
209 210 211 212 213 214 215 216 217 … 334 ›
Ólíðandi misbeiting matvælaráðherra á valdi Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir blasa við að málsmeðferð matvælaráðherra í hvalveiðimálinu sé engan veginn í samræmi við lög eða stjórnarskrá landsins. Rökin sem ráðherrann færi fyrir langdreginni málsmeðferð standist enga skoðun. Innlent 11.6.2024 14:36
Þyrla kölluð út vegna vélsleðaslyss við Langjökul Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út upp úr klukkan 13 í dag vegna vélsleðaslyss sem varð á Skálpnesi suðaustur af Langjökli. Innlent 11.6.2024 14:23
Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Bandaríski hæstaréttardómarinn Samuel Alito heyrist taka undir að Bandaríkin ættu að verða trúræknari og velta vöngum um að pólitískar málamiðlanir séu ómögulegar á leynilegri upptöku sem var gerð opinber. Dómarinn og kona hans hafa sætt gagnrýni fyrir fána sem var flaggað heima hjá þeim eftir árásina á bandaríska þinghúsið. Erlent 11.6.2024 14:01
„Svartur dagur fyrir dýravelferð á Íslandi“ Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) lýsir yfir vonbrigðum og harmar ákvörðun Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra sem veitti fyrr í dag Hval hf. leyfi til veiða á 128 langreyðum. Að mati sambandsins stangast lög um hvalveiðar frá árinu 1949 á við lög um dýravelferð. Innlent 11.6.2024 13:58
Allt önnur spá í kortunum Veðurspár næstu tíu daga sýna allt aðra mynd í meðalveðrinu en verið hefur síðustu tíu daga. Með umbreytingunni fylgir rigning og strekkings SA-vindur sunnanlands næstu tvo daga en eftir það fremur sólríkt að jafnaði fram yfir sumarsólstöður. Spáin gefur tilefni til bjartsýni og marga sólardaga, í hið minnsta sunnan- og vestantil. Innlent 11.6.2024 13:54
Ólafur Ragnar segir deilur um forsetaembættið endanlega afgreiddar Fyrrverandi forseti Íslands segir ágreining um verksvið forseta Íslands hafa verið leystan í nýafstöðnum forsetakosningum, þar sem allir helstu frambjóðendur hefðu í fyrsta skipti verið sammála um meginvaldsvið og verkefni embættisins. Stjórnarskráin hafi reynst embættinu vel. Innlent 11.6.2024 13:36
Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Brak flugvélar sem var að flytja Saulos Chilima, varaforseta Malaví, hefur fundist í fjalllendi í norðurhluta landsins. Enginn sem var um borð í vélinni komst lífs af. Erlent 11.6.2024 13:01
Skynsamlegt að loka gluggum og setja á hringrásarstillingu í bílnum Landris er hafið á nýjan leik undir Svartsengi og má því búast við að það gjósi aftur á Reykjanesskaganum. Gosmóða mælist yfir höfuðborginni og víðar á Suðurlandi og Suðvesturlandi og er fólki ráðlagt frá því að hreyfa sig utandyra. Innlent 11.6.2024 13:01
Segja ákvörðun Bjarkeyjar í berhöggi við stjórnarskrá Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) telja leyfið sem Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra veitti fyrr í dag til veiða á langreyðum sé í raun aðeins gefið út til málamynda. Matvælaráðherra leggi á ólögmætan hátt stein í götu sjálfbærra veiða á langreyðum með ákvörðuninni í berhöggi við stjórnarskrárvarin atvinnuréttindi Hvals hf. Innlent 11.6.2024 12:43
Ákvörðunin skref í rétta átt Í dag var Hval hf. veit leyfi til að veiða 128 langreyðar við Íslandsstrendur í ár. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir innihald leyfisins skref í rétta átt þrátt fyrir að hann hafi viljað að veiðarnar yrðu bannaðar alfarið. Innlent 11.6.2024 12:07
Loka vinnuskólanum og leikskólabörnum haldið innandyra Vinnuskóla Kópavogs auk Vinnuskóla Reykjavíkur var lokað í dag og starfsmenn sendir heim sökum slæmra loftgæða af völdum gosmengunar. Þá verður leikskólabörnum í Kópavogi haldið innandyra og ekki send í útivist í dag af sömu ástæðu. Innlent 11.6.2024 12:06
Óttast að enginn hvalur verði veiddur þrátt fyrir leyfið Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, óttast að enginn hvalur verði veiddur á þessu ári þrátt fyrir leyfisveitingu matvælaráðherra. Innlent 11.6.2024 11:53
Fækkar í Þjóðkirkjunni og fjölgar í Siðmennt Skráðum einstaklingum í Þjóðkirkjunni fækkaði um 520 á tímabilinu 1. desember 2023 til 1. júní 2024. Mesta fjölgunin í trú- og lífsskoðunarfélögum var hjá Siðmennt, þar sem meðlimum fjölgaði um 121. Mesta hlutfallslega fjölgunin var hjá Samfélagi Ahmadiyya-múslima á Íslandi, eða um 28,6 prósent. Skráður fjöldi þeirra fór úr sjö í níu, og eru þeir þriðja fámennasta trúfélag landsins. Innlent 11.6.2024 11:52
Hvalveiðar heimilaðar og gosmóða yfir höfuðborginni Í hádegisfréttum fjöllum við um ákvörðun matvælaráðherra um hvalveiðar. Innlent 11.6.2024 11:38
Bjarkey veitir Hval leyfi til að veiða 128 langreyðar Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur veitt Hval hf. veiðileyfi til veiða á langreyðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælaráðuneytinu. Innlent 11.6.2024 11:35
Siðanefnd sýknar Halldór og Vísi af kæru Arnars Þórs Siðanefnd Blaðamannafélagsins hefur sýknað Halldór Baldursson teiknara og Vísi af kæru Arnars Þórs Jónssonar lögmanns og fyrrverandi forsetaframbjóðanda. Innlent 11.6.2024 11:35
Rafmagnsleysi í Kópavogi og Fossvogi Rafmagnslaust er í Kópavogi og Fossvogi vegna háspennubilunar. Þetta kemur fram á vef Veitna. Innlent 11.6.2024 11:28
Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Fulltrúi Hamas-samtakanna utan Gasa segir að þau samþykki vopnahléstillögu sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna lagði blessun sína yfir í gær. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir viðbrögð samtakanna góðs viti. Erlent 11.6.2024 11:13
Landris hafið að nýju og má gera ráð fyrir öðru gosi Landris er hafið á nýjan leik undir Svartsengi en það þýðir að það muni líklegast gjósa aftur á Reykjanesi. Áttunda eldgosið sem stendur yfir um þessar mundir mun því líklegast ekki verða það síðasta á svæðinu. Innlent 11.6.2024 10:41
Þeim fjölgar sem kenna án kennsluréttinda Skólaárið 2023-2024 voru 18,7% starfsfólks við kennslu í grunnskólum án kennsluréttinda og hefur hlutfallið ekki verið hærra frá árinu 2002. Réttindalausu starfsfólki við kennslu fjölgaði um 132 frá hausti 2022. Innlent 11.6.2024 10:28
Einn stunginn þegar tveir hópar voru að útkljá sín mál Einn maður var stunginn eða skorinn með hníf í Kópavogi skömmu fyrir miðnætti í gærkvöld. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar með áverka á hendi sem eru ekki taldir alvarlegir. Innlent 11.6.2024 10:19
Vaktin: Bjarkey gefur grænt ljós á hvalveiðar Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur gefið út leyfi til veiða á 128 langreyðum. Bjarkey kynnti ákvörðun sína á ríkisstjórnarfundi í morgun og ræddi að því loknu við fjölmiðla. Innlent 11.6.2024 10:19
Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna segir að gjörðir bæði Ísraelshers og Hamas-samtakanna þegar Ísraelar frelsuðu fjóra gísla úr haldi um helgina gætu talist stríðsglæpir. Á þriðja hundrað manna féll í hernaðaraðgerðinni. Erlent 11.6.2024 10:11
Kosningastjóri og áhrifavaldur aðstoða Bjarkeyju Fyrrverandi kosningastjóri Vinstri grænna í norðvesturkjördæmi og samfélagsmiðlaáhrifavaldur hafa verið ráðnir aðstoðarmenn Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur, matvælaráðherra. Bjarkey tók við embætti í apríl. Innlent 11.6.2024 09:31
Inga vill helst fjármálaráðuneytið Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir að hún myndi helst vilja fara í fjármálaráðuneytið fengi hún að velja á milli allra mögulegra ráðuneyta. Innlent 11.6.2024 09:02
Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Suðurkóreskir hermenn skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum sem fóru óvart yfir landamærin á sunnudag. Norðanmennirnir hörfuðu strax en sunnanmenn segja að þeir hafi farið yfir landaærin með tæki og tól. Erlent 11.6.2024 09:01
Skemmdarverk unnin á lögreglubílum Lögreglan á Suðurnesjum óskar eftir upplýsingum um skemmdarverk sem hafa verið unnin á lögreglubílum. Innlent 11.6.2024 08:13
Gosmóða yfir höfuðborgarsvæðinu í dag Aðeins meiri virkni var í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni í nótt en daginn áður og gígurinn ansi líflegur að sögn Bjarka Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Innlent 11.6.2024 07:41
Vilja skoða að gera RÚV aftur að hefðbundinni ríkisstofnun Meirihluti fjárlaganefndar telur skynsamlegt að kannaðir verði kostir og gallar þess að Ríkisútvarpið verði gert að hefðibundinni ríkisstofnun að nýju. Þetta kemur fram í meirihlutaáliti um fjármálaáætlun fyrir árin 2025 til 2029 sem lagt var fram á þingi í gær. Innlent 11.6.2024 07:00
Ók í gegnum grindverk heimahúss og fannst skammt frá Lögreglunni var tilkynnt um hópslagsmál í Kópavogi í gærkvöldi í nótt. Einn var slasaður eftir slagsmálin og var sá fluttur á slysadeild. Einn var handtekinn vegna málsins, grunaður um alvarlega líkamsárás. Innlent 11.6.2024 06:24