Fréttir
138 139 140 141 142 143 144 145 146 … 334 ›
Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Tíu slösuðust í jafnmörgum umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Ökumanni og notanda rafhlaupahjóls greinir á um hvort árekstur hafi orðið í Nóatúni. Innlent 14.8.2024 15:42
Úkraínumenn halda sókn sinni handan landamæranna áfram Ekkert lát er á sókn Úkraínumanna inn í rússnesk landamærahéruð. Þeir segjast hafa sótt lengra inn í Kúrsk og tekið á annað hundrað hermenn til fanga. Neyðarástandi var lýst yfir í nágrannahéraðinu Belgorod. Erlent 14.8.2024 15:37
Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Íslensk kona á fertugsaldri sætir ákæru fyrir peningaþvætti eftir að hafa verið stöðvuð með jafnvirði rúmlega þrettán milljóna króna í reiðufé á Keflavíkurflugvelli. Innlent 14.8.2024 15:30
Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Samningur er í höfn milli Landsvirkjunar og íslenska ríkisins um lands- og vindorkuréttindi vegna Búrfellslundar. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur samningur er gerður en Búrfellslundur liggur innan þjóðlendu. Gildistími samningsins er 35 ár með möguleika á framlengingu um 15 ár. Innlent 14.8.2024 15:07
Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Á laugardaginn kemur verður einn sérkennilegasti og líklega tímabundnasti grafreitur Íslandssögunnar reistur á Seltjarnarnesi. Á hátíðlegri athöfn verður jöklagrafreiturinn vígður en þar verður legsteinum jökla, horfinna og þeirra sem eru við það að hverfa, komið fyrir og verða þeir úr ís. Innlent 14.8.2024 14:27
Fjögurra daga gamlir tvíburar drepnir í árás Ísraela Fjögurra daga gamlir tvíburar voru drepnir í loftárás Ísraela á Gasa í Deir al Balah hverfinu þar sem fjölskyldan hafði leitað skjóls eftir að þau lögðu á flótta. Þegar sprengjurnar lentu á heimili þeirra var faðir þeirra, Mohamed Abuel-Qomasan, á skrifstofu héraðsyfirvalda til að skrá formlega fæðingu þeirra. Auk tvíburanna létust í árásinni móðir þeirra og amma, tengdamóðir Mohamed.. Erlent 14.8.2024 14:07
Segja sjónvarpsáskrift koma í veg fyrir lögsókn vegna dauðsfalls Afþreyingarrisinn Disney heldur því fram að ekkill konu sem lést eftir heimsókn í skemmtigarð fyrirtækisins geti ekki stefnt því vegna ókeypis tilraunaáskriftar að streymisveitunni Disney+ sem hann fékk sér. Lögmenn ekkilsins segja rök Disney fráleit. Erlent 14.8.2024 14:06
Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar eyddi breskri sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli fyrir viku síðan. Brynjar Karl Óttarsson, grunnskólakennari á Akureyri og umsjónarmaður síðunnar Grenndargralsins, var viðstaddur eyðinguna og segir allt hafa gengið vel. Innlent 14.8.2024 13:31
Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Tónlistarmaðurinn Halldór Bragason lést þegar eldur kom upp á heimili hans við Amtmannsstíg í Reykjavík í gær. Halldór, betur þekktur sem Dóri, var meðal lykilmanna í blústónlistarsenunni hér á landi. Innlent 14.8.2024 13:05
Enginn vindmyllugarður án bættra vega Mikil innviðauppbygging þarf að fara fram ef áætlanir um uppbyggingu vindorkuvers í Dalabyggð eiga að ganga eftir. Verkið mun kosta minnst 40 milljarða og talið er að það muni taka minnst fimmtán ár fyrir verkið til að borga sig. Innlent 14.8.2024 13:01
Orsök veikindanna enn á huldu Tugir hafa veikst af iðrasýkingu vegna mögulegrar E.coli- mengunar á Rjúpnavöllum á Rangárvöllum. Nokkrir hafa þurft að leggjast inn. Settur sóttvarnarlæknir segir enn ekki búið staðfesta að uppruni veikindanna sé mengað neysluvatn Innlent 14.8.2024 12:46
Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Rapparinn Gísli Pálmi Sigurðsson hefur verið dæmdur til að greiða 420 þúsund krónur í sekt fyrir að aka án ökuleyfis og undir áhrifum. Þetta er í annað sinn sem Gísli Pálmi er gripinn við akstur undir áhrifum á hálfu ári. Innlent 14.8.2024 12:30
Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Reglugerð ráðherra, um að merkja beri salerni eftir aðstöðu fremur en kynjum, hefur tekið gildi. Um stórt skref er að ræða að sögn varaforseta Trans Ísland. Innlent 14.8.2024 12:17
Á hlaupum yfir hraunið með hræ í kjaftinum Hann var glæsilegur fagurbrúni refurinn sem sást á hlaupum yfir nýlegt hraun við Sundhnúkagígaröðina í gær. Hann var með nýveidda bráð í kjaftinum. Innlent 14.8.2024 12:09
Vindorka í Dölunum og iðrakveisa á Rjúpnavöllum Í hádegisfréttum verður fjallað um áform um vindorkugarð í Dölunum en fjölmennur fundur um málið var haldinn í Búðardal í gærkvöldi. Innlent 14.8.2024 11:38
Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Fyrr í sumar lenti Gústaf Björnsson í því að óprúttinn aðili með tösku með merkjum fyrirtækisins Wolt stal af honum gaskúti. Atvikið náðist á dyramyndavél en þar sést hvernig sendillinn læðist að grillinu við inngang hússins, laumar gaskútnum ofan í sendlapokann merktan Wolt og hraðar sér síðan í bílinn þar sem félagi hans bíður hans. Innlent 14.8.2024 11:18
SÞ fordæma ógegnsæi í kosningunum í Venesúela Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja að forsetakosningar sem fóru fram í Venesúela í síðasta mánuði hafi skort gegnsæi og heilindi. Þeir gagnrýna kjörstjórn landsins harðlega fyrir að lýsa yfir úrslitum án þess að birta tölur frá hverjum kjörstað. Erlent 14.8.2024 10:29
Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, segir sveitarfélögin á áhrifasvæði fyrirhugaðs vindmyllugarðs í Búrfellslundi verða fyrir umtalsverðu fjárhagslegu tjóni af framkvæmdunum og segir ákvörðun munu verða tekna um hvort kæra eigi útgáfu Orkustofnunar á virkjanaleyfi á næstu sveitarstjórnarfundum. Innlent 14.8.2024 10:19
Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Heilsugæslan skipuleggur nú sýnatökur vegna mögulegar mengunar af völdum e. coli í neysluvatni á Rjúpnavöllum á Rangárvöllum. Í tilkynningu frá sóttvarnalækni segir að e. coli hafi verið staðfest, í litlu magni, í vatnssýnum frá Rangárvöllum. Innlent 14.8.2024 10:13
Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Embætti ríkislögreglustjóra greiddi 47 milljónir króna fyrir 175 hjálma sem keyptir voru fyrir sérsveitina og aðra lögreglumenn fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins í fyrra. Innlent 14.8.2024 08:59
Erlendir þrjótar reyna að brjótast inn til Harris og Trump Bandaríska alríkislögreglan FBI gerði framboði Kamölu Harris viðvart um að erlendir aðilar sem sækjast eftir að hafa áhrif á forsetakosningarnar beini spjótum sínum að henni. Framboð Donalds Trump segist fórnarlamb íranskra tölvuþrjóta. Erlent 14.8.2024 08:53
Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum Heildarakstur í þjóðvegakerfinu á Íslandi nærri tvöfaldaðist á tímabilinu 2002 til 2023. Heildarakstur í þjóðvegakerfinu utan héraðsvega árið 2023 er áætlaður um 3.181 milljón ekinna kílómetra en var árið 2002 áætlaður um 1.781 milljón ekinna kílómetra. Innlent 14.8.2024 08:36
„Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Óskar Hallgrímsson ljósmyndari og fjölmiðlamaður hefur verið búsettur í Úkraínu um árabil. Hann segir ljóst að hermenn úkraínska hersins séu ekki að fara frá Kúrsk-héraði í Rússlandi. Þeir séu með þúsund ferkílómetra undir sinni stjórn og á því svæði séu þeir að grafa sig niður, að mynda birgðalínu og ætli sér að halda áfram. Óskar ræddi áhrif og merkingu innrásarinnar í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Erlent 14.8.2024 08:22
Forsætisráðherra Japan sækist ekki eftir endurkjöri Forsætisráðherra Japans Fumio Kishida ætlar ekki að sækjast eftir endurkjöri sem formaður Frjálslynd demókrataflokksins en kosið verður í embættið á næsta landsfundi í september. Það er því ljóst að hann mun einnig hætta sem forsætisráðherra Japans en Kishida, sem er 67 ára gamall, hefur gegnt embættinu frá árinu 2021. Erlent 14.8.2024 08:12
Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Þjóðverjar hafa gefið út handtökuskipun innan evrópska efnahagssvæðisins á hendur úkraínskum köfunarkennara sem er sakaður um að hafa verið hluti af teymi sem sprengdi upp Nord Stream gasleiðsluna á sínum tíma. Erlent 14.8.2024 07:56
„Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, gagnrýnir áform um vindorkuver við Búrfell og segir mikilvægt að áætlanir um vindorkuver fari ekki fram úr regluverkinu. Innlent 14.8.2024 07:30
Lægð nálgast landið úr suðvestri Lægð nálgast landið úr suðvestri nú í morgunsárið. Það gengur í austan- og suðaustankalda með rigningu sunnanlands, en dregur úr vindi síðdegis. Yfirleitt hægari og bjart með köflum fyrir norðan, en dálítil væta seinnipartinn. Veður 14.8.2024 07:13
Hamas segjast ekki munu senda fulltrúa til viðræðna á morgun Hamas munu ekki senda fulltrúa til friðarviðræðna á morgun, þegar áætlað er að sendinefndir frá Ísrael, Bandaríkjunum, Egyptalandi og Katar munu koma saman. Erlent 14.8.2024 06:56
Þakklát fyrir þrjósku hundsins Margrét Víkingsdóttir var sofandi í íbúð sinni við Amtmannsstíg 6 þegar eldur kviknaði á neðri hæðinni. Hún slapp vel frá eldsvoðanum en sér á eftir nágranna sínum á sjötugsaldri sem lést í brunanum. Hún varð fyrst vör við eldinn eftir að hundurinn hennar vakti hana í morgunsárið. Innlent 14.8.2024 00:06
Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Eigendur Fjölskyldulands gætu þurft að loka náist ekki að snúa erfiðum rekstri við. Eigandinn segir þjónustuna afar mikilvæga, ekki síst fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að ná að aðlagast íslensku samfélagi. Innlent 13.8.2024 23:13