Sjöunda björgunarskipið komið til heimahafnar Lovísa Arnardóttir skrifar 15. júní 2026 09:05 Séra María Guðrún Ljungberg sóknarprestur blessaði skipið og Borghildur Sverrisdóttir afhenti skipstjóra og formanni Björgunarbátasjóðs Vopnafjarðar sjóferðabænina á skildi, til varðveislu um borð. Aðsend Björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson, það sjöunda í röð nýrra björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar, kom til heimahafnar á Vopnafirði.
Í tilkynningu frá Landsbjörg kemur fram að áhöfn hafi siglt af stað frá Reykjavík upp úr hádegi á föstudag og eftir um sjö tíma siglingu hafi hún verið komin á Patreksfjörð þar sem gist var um borð í nýja skipinu og Verði II. Skipið sýndi hversu megnugt það er Áhöfnin hafi svo fengið leiðindaveður fyrir Látrabjarg, töluverða öldu, en skipstjórinn Magni Hjálmarsson hafi verið yfir sig ánægður með skipið. „Þarna sáum við hvað þetta eru góð skip, þrátt fyrir leiðindabrælu fór vel um alla og skipið sýndi okkur hvers það er megnugt,“ er haft eftir honum í tilkynningu Landsbjargar. Myndin er tekin á Vopnafirði í gær. Aðsend Morguninn eftir hafi verið lagt snemma af stað, rétt um hálf sex, og haldið áfram til Ísafjarðar þar sem áhöfn björgunarskipsins Guðmundar í Tungu kom og sigldi til móts við skipið. Eftir stutt stopp á Ísafirði hafi svo verið lagt af stað til Siglufjarðar þar sem áhöfn björgunarskipsins Sigurvin tók á móti þeim og fylgdi þeim til hafnar. Síðdegis á laugardag var svo haldið frá Siglufirði og stefnan sett á Þórshöfn. Þangað var komið um kvöldmatarleytið þar sem heimamönnum gafst tækifæri til að skoða skipið. Á sunnudagsmorgun var svo lagt af stað frá Þórshöfn um hálf átta leytið og siglt rólega fyrir Langanesið og renndi Sveinbjörn svo inn á Vopnafjörð klukkan 12, þegar móttökuathöfnin hófst. Blessaði skipið Séra María Guðrún Ljungberg sóknarprestur blessaði skipið og Borghildur Sverrisdóttir afhenti skipstjóra og formanni Björgunarbátasjóðs Vopnafjarðar sjóferðabænina á skildi, til varðveislu um borð. Björgunarskipið á leið til heimahafnar. Aðsend Að lokinni athöfn bauð Slysavarnadeildin Sjöfn á Vopnafirði gestum upp á veitingar í björgunarsveitarhúsinu. Sveinbjörn Sveinsson er eins og áður segir sjöunda skipið í nýsmíðaverkefni Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Áður eru komin til landsins Guðmundur í Tungu á Ísafirði, Ingibjörg á Höfn í Hornafirði, Björg í Rifi, Jóhannes Briem í Reykjavík, Sigurvin á Siglufirði og Þór í Vestmannaeyjum. Áttunda skipið er svo væntanlegt í haust, þegar Unnur kemur til landsins en heimahöfn hennar verður á Patreksfirði. Smíði þess níunda er hafin, en það skip leysir af hólmi Hafbjörgina sem er í Neskaupstað. Í tilkynningu segir að enn eigi þá eftir að endurnýja fjögur skip, á Raufarhöfn, Skagaströnd, Sandgerði og Grindavík.
Björgunarsveitir Vopnafjörður Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira