Tímabilið ekki búið hjá Ægi - farinn að spila í Argentínu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. maí 2019 13:15 Ægir Þór Steinarsson. Vísir/Bára
Ægir Þór Steinarsson mætti ekki á lokahóf KKÍ í dag þar sem hann var kosinn besti varnarmaðurinn og var einnig valinn í úrvalsliðið. Hann var samt löglega afsakaður enda kominn í nýtt lið í Argentínu. Ægir er búinn að semja við argentínska úrvalsliðið Regatas Corrientes sem kemur frá borginni Corrientes í Norðurhluta Argentínu við landamærin við Paragvæ.Aegir Steinarsson, el islandés que es nuevo refuerzo de Regatas de Corrientes; https://t.co/mlkd4QLYHm#LaLigapic.twitter.com/7e7HRKxuLe — Básquet Plus (@basquetplus) May 10, 2019Regatas Corrientes hefur unnið 21 af 37 leikjum sínum á tímabilinu og er eins og er í sjöunda sæti deildarinnar en átta efstu liðin tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Ægir fyllir í skarð DeAngelo Stephens-Bell sem hefur spilað sinn síðasta leik með félaginu. Stephens-Bell stóð ekki undir væntingum og spilar sem dæmi aðeins í fimm mínútur í síðasta leiknum sínum með liðinu. Ægi er ætlað að hjálpa liðinu í úrslitakeppninni sem fer fram undan en liðið á eftir aðeins einn leik í deildarkeppninni. Ægir Þór Steinarsson átti mjög flott tímabil með Stjörnuliðinu en hann var með 12,5 stig og 7,5 stoðsendingar í leik á öllu tímabilinu en hafði hækkað stigaskor sitt upp í 14,8 stig í leik í úrslitakeppninni.
Dominos-deild karla Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Jake Paul keppir í 135 milljóna króna stuttbuxum gegn Tyson Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Býðst til þess að gefa þjófnum gullið í arf Sport Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Krefjast aðgerða vegna verðlaunahafa Hvít-Rússa Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira