Annar sjö marka sigur hjá strákunum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. janúar 2017 16:30 Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði níu mörk. vísir/stefán
Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 21 árs og yngri er með fullt hús í sínum riðli í undankeppni HM eftir sigur á Grikkjum í dag, 24-31.Í gær vann Ísland Litháen með sama mun, 32-25. Íslensku strákarnir eru á toppi riðilsins með fjögur stig. Grikkir eru með tvö stig í 2. sæti og Serbar og Litháar eru án stiga. Tvö síðastnefndu liðin mætast í seinni leik dagsins í riðlinum en hann hefst klukkan 17:00. Ísland var með frumkvæðið nær allan leikinn í dag. Kristján Örn Kristjánsson kom Íslendingum fjórum mörkum yfir, 8-12, þegar þrjár mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Grikkir kláruðu fyrri hálfleikinn með 3-1 kafla og staðan í hálfleik því 11-13. Gríska liðið byrjaði seinni hálfleikinn betur og náði forystunni, 18-17, þegar 20 mínútur voru eftir. Þá sögðu íslensku strákarnir hingað og ekki lengra, skoruðu fimm mörk í röð og náðu frumkvæðinu á nýjan leik. Þeir létu forystuna ekki af hendi eftir það og kláruðu leikinn með stæl. Lokatölur 24-31, Íslandi í vil. Líkt og gegn Litháum í gær var Óðinn Þór Ríkharðsson markahæstur í íslenska liðinu. Hann skoraði níu mörk úr 11 skotum. Kristján Örn átti einnig skínandi leik og skoraði sex mörk. Ísland mætir Serbíu í lokaleik sínum í undankeppninni í hádeginu á morgun.Mörk Íslands: Óðinn Þór Ríkharðsson 9 Kristján Örn Kristjánsson 6 Elvar Örn Jónsson 4 Sturla Magnússon 3 Gísli Þorgeir Kristjánsson 3 Leonharð Þorgeir Harðarson 3 Aron Dagur Pálsson 2 Sveinn Jóhannsson 1
Handbolti Tengdar fréttir Óðinn skoraði ellefu mörk þegar strákarnir unnu Litháa Íslenska 21 árs landsliðið byrjaði vel undankeppni fyrir HM U-21 landsliða en íslenska liðið vann sjö marka sigur á Litháen, 32-25, þrátt fyrir að leika án tveggja lykilmanna. 6. janúar 2017 16:28 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Leik lokið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira
Óðinn skoraði ellefu mörk þegar strákarnir unnu Litháa Íslenska 21 árs landsliðið byrjaði vel undankeppni fyrir HM U-21 landsliða en íslenska liðið vann sjö marka sigur á Litháen, 32-25, þrátt fyrir að leika án tveggja lykilmanna. 6. janúar 2017 16:28