Stangveiði
87 88 89 90 91 92 93 94 … 94 ›
Slæm umgengni við veiðivötn á Arnarvatnsheiði Í gærkvöldi voru Snorri Jóhannesson veiðivörður og Guðmundur Kristinsson formaður Veiðifélags Arnarvatnsheiðar á ferð um heiðina við eftirlit og viðhald fasteigna. Við Arnarvatns litla gengu þeir fram á afar slælega umgengni veiðimanna eftir ábendingu frá öðrum veiðimönnum sem vart áttu orð til að lýsa vanþóknun sinni. Veiði 22.6.2011 13:25
Laxá í Ásum farin að sýna laxana Samkvæmt heimildum þeirra Lax-á norðan heiða er það að frétta af heimamönnum sem höfðu farið og skyggnt Ásana af þjóðvegabrúnni og sáu ekki færri en 3 laxa liggja þar fyrir neðan. Það eru því líkur á að Ásarnir byrji snemma þetta árið, eins og þeir hafa reyndar gert undanfarin ár. Veiði 22.6.2011 13:17
Laxar að veiðast á öllum svæðum Fyrsti laxinn veiddist á Núpasvæðinu í Laxá í Aðaldal í dag og hefur þá verið sett í eða landað laxi/löxum á öllum svæðum Laxárfélagsins. Veiði 22.6.2011 09:14
Vatnsdalsá opnaði í morgun Núna er allt að komast á fullt. Árnar opna hver af annari og það er ekki að sjá annað en það stefni í gott sumar miðað við þessa byrjun. Langá opnar með 13 laxa og það bara á fyrri vaktinni, Kjósin með 9 laxa og það eru fleiri stórar ár að opna næstu daga. Veiði 21.6.2011 14:18
Langá opnaði í morgun með 13 löxum á 3 tímum Veiði hófst í Langá á Mýrum nú í morgunsárið. Segja má að opnunardagurinn sé eðlilegt framhald síðustu sumra, því eftir þrjá tíma voru þrettán laxar komnir á land. Veiði 21.6.2011 11:44
Plankað við ánna Eftir góða opnun í Laxá í Kjós hélt Jón Þór Júlíusson uppá daginn með góðu planki við ánna. Veiði 21.6.2011 10:09
Laxá í Aðaldal opnar með látum Það er orðið ansi langt síðan Laxá í Aðaldal tók jafnvel á móti veiðimönnum eins og hún gerði við þessa opnun. Þrír af stærstu löxunum sem komu á land voru 21, 20 og 17 pund! Það sáust laxar víða og menn velta því nú fyrir sér hvort drottningin sé að komast í þann gír sem menn muna eftir frá fornu fari. Veiði 21.6.2011 09:38
Átta laxar á land í Kjósinni á fyrstu vakt! Laxá í Kjós opnaði í morgun og það eru mörg ár síðan hún hefur opnað jafnvel. Sex laxar veiddust í Kvíslafossi, einn í Strengjunum og einn í Laxfossi. Fleiri laxar sáust en 8 laxar á land á fyrstu vakt er niðurstaðan, sem er frábær opnun. Veiði 20.6.2011 15:11
Flott opnun í Fnjóská þrátt fyrir kulda Þrátt fyrir að það sé búið að vera kaldranalegt í Fnjóskárdal undanfarið þá er laxinn mættur. Veiði 20.6.2011 13:25
Veiðidagur fjölskyldunnar 26. júní Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 26. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið. Veiði 20.6.2011 12:11
Fyrsti laxinn í Elliðaánum Gunnlaugur Sigurðsson, 79 ára fyrrverandi lögreglumaður, sem útnefndur hefur verið Reykvíkingur ársins, renndi fyrstur fyrir lax í Elliðaánum en veiði hófst þar nú klukkan sjö. Gunnlaugur var ekki lengi að ná í fyrsta laxinn eða um tíu mínútur. Veiði 20.6.2011 10:20
Laxá í Kjós opnaði í morgun Laxá í Kjós opnaði í morgun með laxi úr Kvíslarfossi eða kl. 8:22. Var það Ólafur Þór Ólafsson formaður veiðifélags Kjósarhrepps sem veiddi fyrsta laxinn. Falleg 10punda hrygna. Töluvert af laxi virðist vera gengin í Kjósina og fyrstu laxinn sást þar fyrir um þremur vikum síðan. Veiði 20.6.2011 10:09
Hítará á Mýrum opnaði í gær Veiði hófst í Hítará á Mýrum í gær. Eftir einn dag höfðu veiðimenn fengið tvo laxa og misst aðra tvo. Annar laxinn var smálax, en hinn 80cm hrygna. Veiði 20.6.2011 10:04
Norðurá komin yfir 100 laxa 100 laxar hafa veiðst í Norðurá í Borgarfirði það sem af er sumri. Kalt og hvasst hefur verið á Norðurárbökkum síðustu daga og aðstæður með erfiðara móti Veiði 20.6.2011 09:59
Laugardalsá opnuð Við vorum að fá fyrstu fréttir úr Laugardalsá en eins og menn vita opnaði laugardalsáin eftir hádegi í gær. Seinnipartin í gær var lítið að finna nema silung og eru komnir þónokkrir Urriðar. En strax í morgun komu tveir 10-12 punda laxar á land úr Dagmálafljóti og eru veiðimenn mjög ánægðir með veiðina.. Veiði 18.6.2011 12:19
Laxinn mættur í Breiðdalsá og fín veiði í Fögruhlíðará Í gær er unnið var að hreinsun laxastigans í fossinum Beljanda í Breiðdal kom í ljós lax í einu hólfi hans er vatnið var tæmt. Var hann háfaður upp og sleppt í ánn og að sögn þeirra sem komu að þessu var þetta um 7-8 punda hrygna með för eftir lús. Svo hann er mættur í Breiðdalinn enda hefur hin síðari ár oftast sést lax um þetta leyti og veiðin aukist mikið í júlí frá því sem áður var. Veiði hefst 1. júlí og ennþá eru lausar stangir á bilinu 20. - 26. júlí og svo aftur í lok ágúst og von er á metveiði enda var seiðasleppingin vorið 2010 nánast tvöfölduð frá því sem áður hefur verið! Veiði 18.6.2011 12:12
Veiðin að glæðast í vötnunum Steingrímur Valgarðsson er búinn að fara nokkrar ferðir í Kleifarvatnið og hefur verið að ná í fína urriða. Hér fyrir neðan má sjá mynd af honum með tvo fiska, 6 og 3,5 punda sem hann fékk í gær en eftir að myndin var tekin fékk hann aðra tvo fína urriða. Hann nefndi að mikill fiskur væri í vatninu og hann var stöðugt verið að narta í hjá honum. Hann var að veiða í suðurenda vatnins, ekki langt frá hverasvæðinu. Veiði 18.6.2011 12:05
Gott skot í Þingvallavatni í gærkvöldi Við heyrðum í Kristjáni Jónssyni sem var í Þingvallavatni í gær og sá gerði flotta veiði. Hann byrjaði á Leirutá og fékk þar 4 bleikjur frá 2-4 pund en svo datt takan niður og hann ákveður að færa sig. Hann fer í Vatnskot og út á litla hólmann og víkina þar fyrir innan. Þetta var seinni partinn í gær þegar hitastigið fór loksins upp í sumarhita. Veiði 16.6.2011 16:09
Góður gangur í Þverá/Kjarrá Þverá gerði ekkert annað en að batna í gær og það var líka líf í Kjarrá sem opnaði seinni partinn. Norðurá hefur og glæðst mikið að undanförnu. Það er enn kalt og hvasst að norðan í Borgarfirði. Veiði 16.6.2011 14:19
Silungasvæðið í Víðidalsá opnaði í gær Silungasvæðið í Víðidalsá opnaði í gær 15 júní og fengum við fréttir frá Ragnari á bakka veiðiverði í morgun en fyrsti dagurinn gaf 14 silunga sem er bara nokkuð fínn byrjunardagur og lofar góðu. Veiði 16.6.2011 14:15
Laxar farnir að sjást víða Núna næstu daga opna fleiri ár og það stefnir í góða opnun í þeim flestum ef eitthvað er að marka fréttir af laxgengd í þær ár sem ekki eru opnar. Það hafa sést laxar í Leirvogsá, Brynjudalsá, Flókadalsá, Reykjadalsá, Grímsá, Víðidalsá, Miðfjarðará svo að nokkrar séu nefndar. Þetta veiðisumar er að komast á fullt skrið. Veiði 16.6.2011 08:51
Tungufljótsdeilan til lykta leidd Fyrir skemmstu felldi Héraðsdómur Suðurlands dóm í máli Tungufljótsdeildar Veiðifélags Árnessýslu gegn hjónum úr röðum eigenda Bergsstaða, en margir veiðimenn þekkja til deilna sem þar hafa staðið um veiðirétt. Dómurinn féll Veiðifélaginum í vil og ætti þar með að linna árekstrum á bökkum Tungufljóts neðan Faxa. Veiði 15.6.2011 10:41
Hreinsun Elliðaánna heldur áfram Síðari áfangi í hreinsun Elliðaánna verður unninn nk. fimmtudag, 16. júní, kl. 17:00. Félagsmenn eru hvattir til að mæta við veiðihúsið þann dag og taka þátt í þessu þakkláta verkefni. Veiði 14.6.2011 16:12
Laxá í Kjós í góðum málum Nú er aðeins vika þar til að laxveiði hefst í Laxá í Kjós og Bugðu. Veiði hefur verið með ágætum undanfarin ár þrátt fyrir mikil þurrkasumur en að þessu sinni eru horfur allt aðrar og betri. Veiði 14.6.2011 15:41
Laxveiðin á góðu róli Blanda er að glæðast og Norðurá hefur verið í bærilegu lagi síðustu daga. Þverá/Kjarrá opna á morgun og uppúr helginni fer síðan skriðan af stað. Veiði 14.6.2011 15:04
Góð veiði í vötnum fyrir norðan um helgina Þrátt fyrir kulda og hvassviðri lét ég mig hafa það, ásamt tengdaföður mínum, að taka bíltúr frá Akureyri og keyra norður í Sléttuhlíðarvatn. Þetta er eitt af vötnunum sem eru inní Veiðikortinu og ég hef ekið þarna framhjá margoft á leið minni í Fljótaá og langað að prófa það. Þetta var því kærkomið tækifæri að láta á það reyna hvort veiðin þarna sé jafn góð og ég hef heyrt. Veiði 14.6.2011 10:53
Norðurá að gefa fleiri tveggja ára laxa Ingvar Svendsen og Hermann bróðir hans luku veiðum í Norðurá í gær og við fengum smá fréttir af veiðunum. Það sem líklegast stendur upp úr eru þrír tveggja ára laxar sem þeir bræður fengu í Stekkjarfljótinu og þeir misstu annað eins. Veiði 14.6.2011 10:26
Gott skot í Hörgá "Ég og Daníél skruppum sunnudagsmorgun á svæði 1 í Hörgá, mjög gott veður framan af en um hádegi var farið að versna veðrið svo við hættum þá. Við fengum 8 fiska, þar af 3 sjóbirtinga. Fiskurinn var nokkuð vænn, stærsti sjóbirtingurinn 2,1kg, svo stærsta bleikjan var 1,9 kg." Veiði 14.6.2011 10:21
Laxinn mættur í Sogið Lax er genginn í Sogið og sáust til að mynda þrír laxar á Öldunni, ofan af brúnni við Þrastarlund, síðastliðinn laugardag. Það voru nemendur og kennarar á flugukastnámskeiði Veiðiflugna sem sáu laxana ofan af brúnni. Ekki var inni í myndinni að kasta á þann silfraða, veiði er ekki leyfð á svæðinu fyrr en síðla þessa mánaðar, og aðeins notast við bómullarhnoðra á línuendanum við kennsluna. Veiði 14.6.2011 09:19
Stórir birtingar ennþá að veiðast í Baugstaðarós Við fengum þessa mynd senda frá Vigni Grétari Stefánssyni sem var við veiðar í Baugstaðarós og náði meðal annars þessum 10 punda sjóbirting. En að auki náðust tveir aðrir, 5 og 6 punda. Þetta er stærsti sjóbirtingurinn úr Baugstaðarós á þessu tímabili eftir því sem við best vitum og að sögn þeirra sem hafa verið á svæðinu undanfarið hefur verið slatti af fiski og veiðin mjög fín. Veiði 14.6.2011 09:13