Úkraína „
44 45 46 47 48 49 50 51 52 … 78 ›
„Við erum staðráðin í að gera allt sem við getum til að styðja Úkraínu“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir leiðtoga bandalagsins hafa ákveðið að auka viðbúnað þess á öllum sviðum. Á láði, leiði og í lofti. Þeir hafi sömuleiðis samþykkt aukna aðstoð við Úkraínumenn til að hjálpa þeim að verjast innrás Rússa. Erlent 24.3.2022 14:05
Björn Ingi keypti sér miða til Úkraínu aðra leið Björn Ingi Hrafnsson blaðamaður er kominn til Úkraínu. Tilgangur fararinnar er að kynna sér aðstæður, viða að sér efni sem hann mun gera grein fyrir á miðli sínum Viljanum, samfélagsmiðlum eftir atvikum og jafnvel fjalla um þetta í bók ef vill. Innlent 24.3.2022 12:46
Taldir ætla að króa fjórðung úkraínska hersins af í Donbas Þó hægt hafi á sóknum Rússa á mörgum vígstöðvum Úkraínu, og þeir hafi jafnvel þurft að hörfa undan gagnárásum Úkraínumanna í grennd við Kænugarð og Mykolaiv, hafa Rússar sótt fram í Donbas-héraði. Sú sókn hefur gengið hægt og rólega en hún hefur gengið. Erlent 24.3.2022 11:26
„Tígris-teymið“ skoðar viðbrögð vegna efna- og kjarnorkuvopnaárása Hvíta húsið hefur kallað saman teymi sérfræðinga á sviði þjóðaröryggismála til að skoða möguleg viðbrögð við því ef Vladimir Pútín Rússlandsforseti grípur til þess að nota efna, lífefna eða kjarnorkuvopn í Úkraínu. Erlent 24.3.2022 06:51
Selenskí ávarpar heimsbyggðina og boðar mótmæli: „Heimurinn verður að stöðva Rússland“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur kallað eftir því að fólk um allan heim safnist saman á morgun, fimmtudaginn 24. mars, til að mótmæla innrás Rússa í Úkraínu. Hann segir aðgerðir Rússa aðeins byrjunina á stríðinu gegn frelsi í Evrópu. Erlent 23.3.2022 22:55
Vaktin: Kallar eftir allsherjarmótmælum um allan heim á morgun Sérstakur leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins, G-7 ríkjanna og Evrópusambandsins fer fram í Brussel á morgun en forseti Úkraínu kallar eftir allsherjarmótmælum um allan heim. Þetta sagði Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, í daglegu ávarpi sínu í nótt. Erlent 23.3.2022 06:47
Sigurður Ingi sér ekki fyrir sér að biðja Rússa afsökunar Innviðaráðherra sér ekki fyrir sér að biðja rússneska sendiráðið á Íslandi afsökunar á ummælum sem hann lét falla um „illmennin í Kreml“ á flokksþingi Framsóknarflokksins um helgina. Hann muni kannski íhuga það ef Rússar láta af hernaði í Úkraínu. Innlent 23.3.2022 11:28
Aftur til fortíðar? Skortur og raðir í Rússlandi Refsiaðgerðir bandamanna gegn Rússum eru farnar að bitna á almennum borgurum, sem þurfa nú að greiða töluvert meira fyrir innfluttan varning en áður, ekki síst vegna gengislækkunar rúblunnar. Erlent 23.3.2022 08:58
Bandaríkjamenn gagnrýna „hættulegt“ tal Rússa um notkun kjarnorkuvopna John Kirby, talsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins, fordæmdi ummæli talsmanns stjórnvalda í Moskvu á CNN í gær, þar sem hann sagði að kjarnorkuvopnum yrði mögulega beitt ef „tilvistaleg ógn“ steðjaði að Rússum. Erlent 23.3.2022 06:19
Viðtal við konu frá Maríupól: Sátu á gólfinu og báðu bænir í sprengjuregni Kona sem flúði Maríupól í Úkraínu, þar sem fólk býr við hryllilegar aðstæður eftir linnulausar árásir Rússa, segir skelfilegt að horfa upp á heimaborg sína sprengda í loft upp. Hún þurfti að sjá um alla matseld við opinn eld undir berum himni eftir að rafmagnslaust varð í borginni. Erlent 22.3.2022 20:00
Úkraínuforseti kallar rússneska hermenn áróðursþræla Forseti Úkraínu hvetur Vesturlönd til að herða enn á refsiaðgerðum sínum og auka stuðning þeirra við Úkraínu. Hann kallar rússneska hermenn þræla sem skjóti að frjálsu fólki í borgum sem þeir hafi hertekið. Barist er á götum Mariupol þar sem talið er að hersveitir Téténa leggi Rússum lið. Erlent 22.3.2022 19:21
Segir ekkert eftir af Mariupol og kallar eftir aðgerðum Volódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði ítalska þingið í dag en hann sagði ekkert eftir af borginni Mariupol, sem Rússar hafa setið um í þrjár vikur. Selenskí sagði rússneskar hersveitir hafa varpað tveimur stórum sprengjum á borgina í dag en mannfall eftir þær árásir liggur ekki fyrir. Að sögn Selenskí vilja rússneskar hersveitir aðeins skilja borgina eftir í rústum. Erlent 22.3.2022 18:06
Vaktin: Von á hertum refsiaðgerðum síðar í vikunni Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur ítrekað ákall sitt eftir viðræðum við Vladimir Pútín Rússlandsforseta, sem hann segir lykilinn að því að binda enda á stríðið. Fulltrúar Rússlands segja samningaviðræður ekki enn komnar á það stig. Erlent 22.3.2022 06:53
Sjá engin ummerki um undiröldu gegn Pútín Vladimír Pútin, forseti Rússlands, getur enn reitt sig á hollustu hinnar pólitísku elítu í Rússlandi. Það er þrátt fyrir fordæmalausar refsiaðgerðir vegna innrásar Rússa í Úkraínu og að innrásin hafi verið fordæmd um mest allan heim. Erlent 22.3.2022 11:59
Biden segir Pútín „kominn út í horn“ og hann íhugi notkun efnavopna Falskar ásakanir Rússa um að Úkraína hafi verið að þróa og búi að lífefna- og efnavopnum er „augljóst merki“ um að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hyggist beita slíkum vopnum. Erlent 22.3.2022 06:30
Lýsir svakalegri sprengingu um fimmleytið Úkraínumenn höfnuðu í morgun kröfu Rússa um að leggja niður vopn í Mariupól og láta borgina af hendi. Minnst sex eru sagðir hafa látist í árás Rússa á verslunarmiðstöð í Kænugarði í nótt, þar sem útgöngubanni verður komið á í kvöld. Íslendingur í Kænugarði segir borgarbúa enn þá fulla baráttuanda, þrátt fyrir nær linnulausar sprengingar. Erlent 21.3.2022 13:00
Veltir því fyrir sér hvort Ólafur Ragnar afsaki gjörðir Pútíns Prófessor í stjórnmálafræði veltir því fyrir sér hvort að afsökun fyrir gjörðir Pútíns felist í ummælum Ólafs Ragnars Grímssonar, þess efnis að stækkun Atlantshafsbandalagsins hafi leitt til stríðsins í Úkraínu. Innlent 21.3.2022 12:00
Segja Rússa ætla að svelta Úkraínumenn til hlýðni Jack Watling, sérfræðingur hjá hugveitunni Royal United Services Institute í Lundúnum, segir átökin í Úkraínu vera að færast í annan fasa. Rússar muni einbeita sér að einni borg í einu og freista þess að svelta Úkraínumenn til hlýðni. Erlent 21.3.2022 11:01
Hefur ekki heyrt í foreldrunum í sextán daga Úkraínsk kona sem búsett er hér á landi segir ástandið í Maríupól verra en Vesturlandabúar geri sér grein fyrir. Íbúðin hennar var sprengd upp í vikunni og hún hefur ekki heyrt í foreldrum sínum í sextán daga. Innlent 21.3.2022 07:01
Vaktin: Segjast hafa sannanir fyrir stríðsglæpum Rússa „Það er ekki til umræðu að gefast upp, að leggja niður vopn. Við höfum þegar greint Rússum frá þessu. Í stað þess að eyða tíma í átta blaðsíðna bréfasendingar, opnið bara leið úr borginni.“ Erlent 21.3.2022 06:33
Hóta að draga þá sem ekki gefast upp í Maríupól fyrir herdómstól Varnarmálaráðuneyti Rússlands sendi í kvöld út yfirlýsingu þar sem verjendum Maríupól var gert að leggja niður vopn og yfirgefa borgina. Þeir sem geri það ekki verði dregnir fyrir herdómstól í Rússlandi. Erlent 20.3.2022 23:53
„Ég vona að enginn muni nokkurn tímann sjá það sem ég sá“ Aðalræðismaður Grikklands í Úkraínu varð síðasti erindreki á vegum landa Evrópusambandsins til þess að yfirgefa Maríupól, úkraínsku borgina sem Rússaher situr nú um og hefur komið hvað verst út úr átökunum í landinu. Hann segist vona að enginn verði vitni að jafn miklum hryllingi og hann fékk þar að kynnast. Erlent 20.3.2022 23:31
Vaktin: Krefjast uppgjafar Maríupól Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir umsátur Rússa um Maríupól og árásir þeirra á borgina „hrylling sem verður minnst um ókomnar aldir“. Rússar hafa lagt til flóttaleiðir frá borginni á morgun. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. Erlent 20.3.2022 07:14
Ungt fólk streymir frá Rússlandi Ungt fólk streymir frá Rússlandi í tuga þúsunda tali. Stór hluti þessa hóps er menntaður og hefur unnið í tæknigeira Rússlands. Mörg þeirra hafa farið til Armeníu. Erlent 20.3.2022 15:44
Segja Úkraínumenn hafa stöðvað Rússa Úkraínumenn eru sagðir hafa stöðvað sókn Rússa og er útlit fyrir langvarandi átök sem einkennast af þrátefli með tilheyrandi mannfalli og eyðileggingu. Erlent 20.3.2022 12:03
Segja hundruð þúsunda föst í Mariupol þar sem lík hrannist upp á götum úti Björgunaraðgerðir í úkraínsku borginni Mariupol, í suðurhluta landsins, hafa gengið afar erfiðlega vegna stöðugra átaka víðsvegar um borgina. Talið er að um 300.000 manns séu föst í borginni, sem Rússar sitja um. Erlent 19.3.2022 23:31
Engin ákvörðun tekin um stöðu hvítrússneska ólígarksins Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvort hvítrússneski ólígarkinn verði áfram á skrá yfir kjörræðismenn Íslands. Þetta segir utanríkisráðherra sem eftir helgi verður boðaður á fund með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vegna málsins. Innlent 19.3.2022 21:30
Sjálfboðaliðar hafi lyft grettistaki við mótttöku flóttamanna Hátt í þrjúhundruð sjálfboðaliðar halda utan um mötuneyti, hópferðabíla, barnapössun og fleira fyrir flóttafólk frá Úkraínu. Talsmaður hópsins segir ótrúlegt að sjá kraftinn í hópnum meðan Útlendingastofnun dragi lappirnar varðandi ýmsa grunnþjónustu. Innlent 19.3.2022 19:01
Pútín vill styrkja stöðu sína fyrir fund með Selenskí Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er ekki tilbúinn til viðræðna við Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Hann vill líklega styrkja stöðu sína fyrir mögulegar viðræður. Erlent 19.3.2022 17:01
Vaktin: Pútín sagður búinn að sætta sig við að geta ekki velt Selenskí úr sessi Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur kallað eftir raunverulegum og sanngjörnum friðarviðræðum. Úkraínumenn hafa ítrekað að forgangskröfur þeirra séu varanlegt vopnahlé og brotthvarf Rússa frá Úkraínu. Erlent 19.3.2022 07:27