Skoðun: Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Fréttamynd

Að­lögun, hvaða að­lögun?

Nei-menn segja okkur að já-atkvæði 29. ágúst þýði „aðlögun“, að Ísland þurfi að breyta lögum sínum, stofnunum sínum, kerfum sínum. Að eitthvað óafturkræft gerist ef við segjum já.

Skoðun
Fréttamynd

Tími varan­legra undan­þága er liðinn

Það er þrálátur misskilningur í umræðu um hugsanlega aðild nýrra ríkja að Evrópusambandinu að hægt sé að „velja og hafna“ úr regluverki sambandsins. Oft er vísað til Danmerkur eða Bretlands (fyrir Brexit) sem dæmi um ríki sem sömdu sig frá stórum málaflokkum eins og evrunni eða varnarsamstarfi. Raunin er hins vegar sú að sögulegur gluggi fyrir slíkar varanlegar undanþágur, eða opt-outs, er endanlega lokaður.

Skoðun
Fréttamynd

Er betra að vita en halda?

Ákvörðun sem tekin er í myrkri eða óvissu er sjaldnast gæfurík. Þegar við erum stödd á krossgötum í lífinu, hvort sem það varðar fjármál heimilisins, menntun barna okkar eða rekstur fyrirtækja, reynum við ævinlega að afla okkur eins mikilla upplýsinga og mögulegt er.

Skoðun
Fréttamynd

Það er ekki eftir neinu að bíða

Nú þegar sólin hefur loksins ákveðið að sýna sig á suður- og vesturlandi fer fólk að lyfta hlífðarkápunni af grillinu og draga fram gaskúta og kolapoka sem setið hafa óhreyfðir síðustu vikur.

Skoðun
Fréttamynd

Þess vegna já

Í þjóðaratkvæðagreiðslunni hinn 29. ágúst nk. um hvort hefja skuli að nýju viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu verður ekki tekin ákvörðun um aðild. Eigi að síður er mikilvægt að fram fari málefnaleg og yfirveguð umræða um kosti og mögulega galla aðildar í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar og að sem flestir leggi orð í belg, einnig þeir sem standa utan stjórnmálaflokka eins og við á um undirritaðan.

Skoðun
Fréttamynd

Smá standard, takk

Segjum nei við að fjarlægja valdið frá fólkinu og koma tugþúsundum skriffinna í Brussel á milli fólksins og valdsins. Þú kýst ekki skriffinnana í burtu.

Skoðun
Fréttamynd

Er­lent vald er vesen

Orðið vesen er ekki íslenskt - það barst hingað frá dönsku, „væsen“. Á þeim öldum þegar Ísland laut stjórn Danakonungs var orðið notað um embættiskerfi einveldisins og þróaðist svo í að vera notað fyrir ríkisstofnanir eins og t.d. Skattevæsenet.

Skoðun
Fréttamynd

Finnar elska ESB

Þegar ESB-aðild er rædd á Íslandi er Finnland uppáhaldshryllingssagan. Landið gekk í ESB árið 1995, tók upp evru, og glímir nú við yfir 10% atvinnuleysi. Sjáið? segja nei-menn. Þetta bíður okkar. En enginn spyr Finnana sjálfa.

Skoðun
Fréttamynd

Upp­lýst lýð­ræði - Lær­dómurinn af einni leið­réttingu

Umfjöllun um stór samfélagsmál á að vera eðlilegur vettvangur fyrir skiptar skoðanir, vandaða rannsóknarblaðamennsku og málefnalega gagnrýni. Þegar tæpt er á grundvallarhagsmunum þjóðarinnar - líkt og samskiptum Íslands við Evrópusambandið og undirstöðum íslensks sjávarútvegs - aukast kröfurnar til allra viðkomandi: ráðherra, embættismanna og þeirra fjölmiðla sem miðla upplýsingum til almennings. Leiðrétting Vísis á þriðjudag, á frétt frá 9. júlí um meint samtöl utanríkisráðherra við forsætisráðherra Hollands, dregur fram áleitnar spurningar um hvernig opinberri umræðu er stýrt á Íslandi.

Skoðun
Fréttamynd

Full­yrðingar utan­ríkis­ráð­herra um samningssvigrúm Ís­lands

Utanríkisráðuneytið hefur á undanförnum dögum tekið virkan þátt í umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst með efni á eigin upplýsingaveitum. Þegar stjórnvöld kjósa að beita opinberum miðlum sínum með þeim hætti aukast kröfur um að upplýsingarnar séu nákvæmar, rekjanlegar og byggðar á frumheimildum. Það á ekki síst við þegar um er að ræða umdeilt pólitískt álitaefni þar sem kjósendur eiga að geta tekið upplýsta afstöðu.

Skoðun
Fréttamynd

Þreifað á „pakkanum“

Kannastu ekki við svipinn á stríðstrúðnum?„Hvað er í pakkanum?“ Viltu ekki örugglega sjá það? Sennilega hefur enginn auglýsingasálfræðingur hannað betri áróðursherferð en þetta. Því að hver man ekki eftir því að hafa langað að kíkja í pakkann, þegar við vorum börn að bíða eftir jólunum?

Skoðun
Fréttamynd

Er Ís­land Manchester City og ESB Sheffield United

„Við erum í meistaradeild. Evrópusambandið í núverandi formi er í besta falli að keppa um miðja aðra deild,“ sagði Halldór Benjamín Þorbergsson, forsvarsmaður Áfram Íslands, við stofnun samtakanna. Samtökin vilja að þjóðin hafni áframhaldandi aðildarviðræðum í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Röksemdin virðist þessi: Ísland standi efnahagslega svo miklu framar nágrannaþjóðum sínum að náið samstarf við þær myndi draga okkur niður.

Skoðun
Fréttamynd

Varan­legar undan­þágur eru mögu­leiki

Í umræðunni um mögulegar aðildaviðræður Íslands að ESB hafa andstæðingar aðildar fullyrt að ótímabundnar undanþágur séu ekki í boði.Því langar mig að koma á framfæri minni reynslu af möguleikum á að fá varanlegar undanþágur þegar lönd sækja um aðild að ESB og skrifa þar út frá reynslu minni þegar Finnland sótti um og fékk inngöngu í ESB 1995.

Skoðun
Fréttamynd

Hvernig lögum við van­stillt stjórn­mál?

Ég ætla að leyfa mér að byrja á orðum sem í mínum huga eru skýr sannindi:Eftir 29. ágúst þá erum við annað hvort á leið inn í ESB — eða ekki.(Þótt vissulega verði hægt að sveigja af leið, fyrst um sinn.)

Skoðun
Fréttamynd

Hver fer í slíkar „samninga­við­ræður“?

Hver fer í viðræður sem snúast um það að uppfylla skilyrði mótaðilans áður en samningur liggur fyrir og hvort hann verði samþykktur? Það er hins vegar nákvæmlega það sem viðræður um inngöngu í Evrópusambandið fela í sér.

Skoðun
Fréttamynd

Sættum okkur ekki við at­vinnu­leysi

Umræður um kosti og galla inngöngu í Evrópusambandið hafa að miklu leyti snúist um væntan ávinning fyrir almenning sem stundum virðist þó ekki endilega byggja á staðreyndum.

Skoðun
Fréttamynd

Ég er ekki Evrópu­sinni

Ég styð aðild af ást á Íslandi en ekki á Evrópu. Síðustu mánuði hef ég verið virkur í umræðunni um mögulega aðild Íslands að ESB sem formaður Ungra Evrópusinna.

Skoðun
Fréttamynd

Þetta snýst um aðild

Utanríkisráðherra og aðrir fylgjendur aðildar Íslands að Evrópusambandinu halda því fram að kosningarnar 29. ágúst snúist eingöngu um að sjá hvað er í boði fyrir Ísland. Þetta er rangt.

Skoðun
Fréttamynd

Hvers vegna „nei“ er eina rök­rétta svarið þann 29. ágúst

Þegar rætt er um hugsanlega inngöngu Íslands í Evrópusambandið eða áframhaldandi viðræður vill umræðan oft einkennast af pólitísku orðasalati og sögulegri endurskrift. Reynt er að telja fólki trú um að hægt sé að setjast að samningaborðinu og tryggja Íslandi sérmeðferð í stærstu og mikilvægustu hagsmunamálum þjóðarinnar.

Skoðun
Fréttamynd

Hvaða kröfur eigum við að gera?

Handan við hornið er þjóðaratkvæðagreiðslan um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Í aðildarviðræðunum 2009-2013 var samninganefnd Íslands meðvituð um að landbúnaðarkafli viðræðanna (kafli 11) væri einn flóknasti og mest umdeildi þátturinn í aðildarviðræðum Íslands og ESB.

Skoðun
Fréttamynd

Hvers vegna venju­legt launa­fólk á að segja JÁ?

Sýnið okkur samninginn! Við lifum í landi þar sem leikreglurnar eru hannaðar fyrir fáeina útvalda en fátæktargildrurnar fyrir okkur hin. Sem venjulegur launamaður og neytandi á Íslandi fylgist ég með umræðunni um Evrópusambandið og nýjan gjaldmiðil með vaxandi undrun. Hræðsluáróðurinn sem dælt er yfir okkur daglega er orðinn hjákátlegur. Okkur er sagt að við eigum ekki einu sinni að skoða hvað er í boði. Að við eigum að segja nei í blindni.

Skoðun
Fréttamynd

Stóra leiðréttingarmálið, ein­hverjir Hollendingar og kollegar

Mikil umræða hefur farið fram um skýr svör hollenska forsætisráðherrans Rob Jettens í hollenska þinginu þar sem hann tók af öll tvímæli um að Ísland þyrfti, eins og önnur ríki sem vilja verða aðilar að ESB, að undirgangast sameiginlega stefnu sambandsins í sjávarútvegsmálum.

Skoðun
Fréttamynd

Er kominn tími á „Ís­lenska landklasann“?

Hvernig getum við skapað meiri verðmæti úr landi Íslands? Í síðustu grein minni um framtíð íslensks landbúnaðar velti ég upp þeirri spurningu hvernig við getum þróað íslenskan landbúnað áfram – án þess að glata þeim verðmætum sem hann byggir á.

Skoðun