Evrópubikar kvenna í fótbolta

Fréttamynd

Upp­gjörið: FH-Apollon 0-1 | Evrópudraumur Hafn­firðinga heldur á­fram

Apollon lagði FH-inga á heimavelli FH í fyrstu umferð í undankeppni Evrópubikar kvenna í fótbolta. Um var að ræða seinni leik liðanna í tveggja leikja einvígi sem sker úr hvort liðanna tryggir sér sæti í næstu umferð Evrópubikarsins. FH-ingar sigruðu fyrri leikinn sem fór fram í Kýpur 2-0 og gengu því til leiks með tveggja marka forskot. Þrátt fyrir sigur Apollon hér í dag dugði það ekki til þess að snúa við forskoti FH-inga og því halda FH áfram í næstu umferð undankeppninnar í evrópukeppninni.

Fótbolti
Fréttamynd

Reddaði Blikum en þurfti svo að vera í stúkunni

Eva Ýr Helgadóttir brást vel við þegar Breiðablik leitaði til hennar í markvarðakrísu fyrir Evrópuleikina við Svíþjóðarmeistara Häcken. Hún var mætt til Svíþjóðar og búin að hita upp þegar henni var svo óvænt tjáð að hún mætti ekki vera í leikmannahópnum.

Fótbolti
Fréttamynd

Guð­rún gerði sér góða ferð til Portúgal

Guðrún Arnardóttir spilaði sinn fyrsta keppnisleik fyrir sænska liðið Hammarby og gerði það á kunnuglegum slóðum í Portúgal. 0-1 sigur varð niðurstaðan gegn Sporting í átta liða úrslitum Evrópubikarsins.

Fótbolti
Fréttamynd

Sjö marka skellur hjá Blikum í Sví­þjóð

Svíþjóðarmeistarar BK Hacken lögðu Breiðablik örugglega að velli, 7-0. Ljóst er að Íslandsmeistararnir eiga lítinn möguleika á að komast áfram úr átta liða úrslitum Evrópubikarsins en liðin mætast aftur eftir viku.

Fótbolti
Fréttamynd

„Þetta er allt annað dæmi“

„Þetta er mjög stór áskorun,“ segir Agla María Albertsdóttir, fyrirliði Breiðabliks í fótbolta. Blikar spila í kvöld við Svíþjóðarmeistara Häcken í 8-liða úrslitum Evrópubikarsins, með gjörbreytt lið og nýjan þjálfara frá sigrinum frækna gegn dönsku meisturunum í Fortuna Hjörring í 16-liða úrslitum.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Blikar farnir að fylla í skörðin

Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur komist að samkomulagi við bandaríska miðjumanninn Katelyn Duong, um að hún leiki með liðinu á komandi leiktíð. Meistararnir hafa misst stóran hóp sterkra leikmanna.

Íslenski boltinn
  • «
  • 1
  • 2