Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir

Fréttamynd

Ég brenn (út) fyrir mennta­kerfinu

Ég brenn fyrir menntakerfinu. Í dag er ég að brenna út í menntakerfinu. Ég hef barist fyrir breytingum á kerfinu. Lagt mitt af mörkum til að vekja athygli á því sem okkur í skólum landsins vantar aðstoð við en þær áskoranir sem við erum að glíma við geta tekið á.

Skoðun
Fréttamynd

,,Mig langar svo bara að geta kennt þessum 25 börnum“

Fyrstu skólavikurnar eru liðnar. Margsinnis hefur verið gengið í skrokk á starfsmönnum mínum á þessum dögum. Eftir örfáa daga í skólanum höfðu fjórir kennarar verið lamdir af sama nemanda. Kennararnir þurftu að stíga inn í og forða öðru barni frá því að verða lamið. Tveir þeirra þurftu að vera heima daginn eftir.

Skoðun
Fréttamynd

Ég er eins og ég er, hvernig á ég að vera eitt­hvað annað?

Nú er hinsegin dögum lokið þetta árið. Á hverju ári sameinast hinsegin fólk í ákalli um réttlátt, litríkt samfélag. Ég man fyrir nokkrum árum þar sem erlendar þjóðir öfunduðu okkur Íslendinga að vera komin svona langt í baráttu hinsegin fólks, eitthvað sem við vorum stolt af. Erum við á þeim stað í dag?

Skoðun
Fréttamynd

Nú hefst sam­ræmt próf í stærð­fræði

Kaldur sviti, hraður hjartsláttur og þvalir lófar. Einbeitingin það mikil að hún reyndi að yfirtaka stressið. „Nú hefst samræmt próf í stærðfræði.“ Svona er minning mín eftir að hafa upplifað að taka samræmt próf sem nemandi.

Skoðun
Fréttamynd

Ormagryfjan í ís­lenskum skólum – þegar kerfið bregst

Blaðagrein mín Agaleysi í íslenskum skólum – kennarar þurfa valdið til baka vakti mikil viðbrögð í samfélaginu. Ég fékk skilaboð og tölvupósta alls staðar að. Frá foreldrum, kennurum og stjórnendum. Allir þökkuðu mér fyrir hugrekkið og að þora að segja frá, eins og hlutirnir eru.

Skoðun
Fréttamynd

Aga­leysi í ís­lenskum skólum - Kennarar þurfa valdið til baka

Árið 2020 hóf ég störf í nýjum skóla, skólanum sem ég starfa við í dag. Þegar ég kom til starfa var ljótt orðbragð og ofbeldi mikið. Ég var í fæðingarorlofi þegar covid byrjaði og missti svolítið af því sem gerðist í skólastarfinu frá árinu 2019 þar til ég mætti til starfa aftur haustið 2020.

Skoðun