
Ingólfur Steinsson

Um menntun barnanna á Gaza
Ég sendi hér þýðingu á bréfi frá Reham Khaled um átak í málefnum barna og kennslu þeirra. Hún er fyrrum barnskólakennari á Gaza. Nú er búið að eyðileggja skólann ásamt öllum öðrum innviðum á Gaza.

Landið helga?
Mikið hefur verið talað og enn meira þagað um fjöldamorð síonista á íbúum Gaza. Undarleg er sú hugsun að láta eins og það sé bara sjálfsagt að salla niður fólk sem hefur verið innilokað í áraraðir, sneytt aðgangi að vatni, rafmagni, eldsneyti; hersetna þjóð sem á allt undir kúgurum sínum sem stjórna aðgangi hennar að umheiminum, þjóð sem fær mestallan sinn matarforða með flutningabílum á degi hverjum sem kannski er hleypt inn í þessar útifangabúðir sem hafa ekkert efnahagslíf, enga flugvelli, flugvélar, lestir, hafnir eða undankomuleiðir yfirleitt; og svo geta kúgararnir fækkað flutningabílum og valdið hungursneyð í fangabúðunum þar sem skólplagnir eru löngu ónýtar og sorp hleðst upp.

Hinn langi USArmur Ísraels
Að þessu sinni hófst ófriðurinn með innrás Hamas í Ísrael 7. okt.´23. Þeir drepa þar meira en 1200 manns og taka yfir 200 gísla, segjast vera að minna á mál Palestínu sem þeim virtust gleymd.

Hryðjuverkaríkið
Síonistar hafa nú gereytt megninu af Gaza, drepið tugi þúsunda og sært yfir hundrað þúsund, þar af er meiri hlutinn konur og börn.

Sameinumst gegn þjóðarmorði
Síonistar ætla ekki að hætta fjöldamorðum sínum á Palestínumönnum. Þeir eru studdir til þessa morðæðis af Bandaríkjunum á leið í kosningar þar sem stuðningur innlendra gyðinga virðist geta ráðið úrslitum. Og síonistar ráða miklu í þeim samtökum.

Þjóðarmorð með vestrænum vopnum
Ég skrifaði nokkrar greinar eftir að geðveikin á Gaza hófst. Taldi mig hafa sagt mitt síðasta orð í byrjun ársins. Maður hélt e-n veginn að þessu myndi brátt ljúka. Annaðhvort að tekið yrði fyrir fjöldamorðin af viti bornum Vesturlöndum eða að stríðsaðilar sæju sóma sinn í því að gera vopnahlé og hætta fjöldamorðum á almenningi. Nú hefur komið í ljós að hvorugt er á döfinni.

Ísrael
Það orð vildi hann helst ekki taka sér í munn lengur;

Frelsisneistinn í brjósti hinna kúguðu verður ekki slökktur með ofbeldi
Hvað getur maður svo sem sagt um framgöngu Ísraels í Palestínu undanfarna mánuði? Þeir hafa þverbrotið allar reglur sem alþjóðasamfélagið hefur þó komið sér saman um þegar stríðsrekstur er annars vegar. Það hafa þeir gert í skjóli Bandaríkjanna, Bretlands og Þýskalands sem hafa öll átt sinn þátt í að koma á þessum reglum.

Hörmungarnar síðari
Það átti að heita vopnahlé á Gaza um daginn. Íbúar svæðisins heimsóttu byggðir sínar en fundu þar aðeins sprengjubrot og rusl. Heilu hverfin höfðu verið lögð í rúst og meira en 21 þúsund hafa nú í árslok verið drepin, aðallega börn og konur.

Það sem öll vopn risaveldisins fá ekki breytt
Þjóðarmorðið heldur áfram. Her Ísraels er kominn inn á Gaza og búinn að drepa þar yfir 11 þúsund manns, þar af á fimmta þúsund börn á rúmum mánuði fyrir utan þær þúsundir sem liggja undir rústunum. Mér skilst að þetta sé einhvers konar met í manndrápum.

Þjóðarmorðið á Gaza 2023
Svo lengi sem ég man hafa málefni Ísraels og Palestínu verið í fréttum. Ísraelsríki var stofnað vorið 1948 af Sameinuðu þjóðunum með fulltingi Breta sem höfðu stjórnað svæðinu eftir fyrri heimsstyrjöld. Þeir höfðu talað tungum tveim, fyrir þjóðarheimili gyðinga en leikið tveim skjöldum gagnvart aröbum.