Mannslát til rannsóknar í Bátavogi
Dagbjört hafi leynt mikilvægum upplýsingum Tíu ára fangelsisdómur Héraðsdóms Reykjavíkur sem Dagbjört Guðrún Rúnarsdóttir hlaut í síðasta mánuði í Bátavogsmálinu svokallaða hefur verið birtur á vefsvæði dómstólana. Í honum segir að Dagbjört hafi frá því að málið kom upp leynt veigamiklum upplýsingum og reynt að koma í veg fyrir að hægt væri að varpa ljósi á málið. Innlent 8.8.2024 14:46
Dagbjört dæmd í tíu ára fangelsi fyrir líkamsárás Dagbjört Guðrún Rúnarsdóttir var dæmd í tíu ára fangelsi fyrir líkamsárás í Bátavogsmálinu svokallaða. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Innlent 25.7.2024 15:20
„Maður þurfti að vakta að hann myndi ekki kveikja í okkur“ Maður sem bjó í þrjá mánuði með Dagbjörtu og manninum sem hún er grunuð um að hafa orðið að bana sagði í dag fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að samskipti þeirra á milli hafi verið góð en að maðurinn hafi verið drykkfelldur ljúflingur. Innlent 28.6.2024 19:31
„Stökk upp í rúm og sparkaði ítrekað í höfuðið á honum“ Par sem var með Dagbjörtu Rúnarsdóttur og manninum sem hún er grunuð um að hafa orðið að bana sömu helgi og atvikið átti sér stað lýsti því fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þegar hún stökk upp í rúm og sparkaði í höfuð mannsins þar sem hann lá stuttu áður en að maðurinn lést. Innlent 28.6.2024 17:31
Fá svæði á líkama þar sem voru engir áverkar Út frá niðurstöðu krufningar í Bátavogsmálinu svokallaða lést brotaþoli vegna köfnunar sökum utanaðkomandi þrýstings á öndunarveg. Alvarlegir áverkar voru á hálsi en sem dæmi er hægt að nefna blæðingar í hálsvöðvanum, brot á tungubeini, hringbrjóskinu og öllum barkanum. Innlent 28.6.2024 16:00
Geðlæknar ósammála um ástand Dagbjartar Geðlæknir sem tók að sér að meta Dagbjörtu Rúnarsdóttur árið 2021 og geðlæknir sem sá um að meta Dagbjörtu vegna Bátavogsmálsins svokallaða eru í stórum dráttum ósammála um ástand og geðrænt mat hennar. Dagbjört er grunuð um að hafa orðið sextugum karlmanni að bana í september á síðasta ári á heimili þeirra í Bátavogi. Innlent 28.6.2024 13:22
Heimsóttu Dagbjörtu fyrir handtökuna: „Ég vildi óska þess að ég hefði ekki farið“ Tveir menn komu á vettvang Bátavogsmálsins svokallaða áður en Dagbjört Rúnarsdóttir var handtekin en eftir að hinn látni hafði verið fluttur á brott með sjúkrabíl. Dagbjört er grunuð um að hafa orðið tæplega sextugum karlmanni að bana á heimili sínu í Bátavogi í september í fyrra, Innlent 26.6.2024 15:51
Sló hinn látna eftir að viðbragðsaðilar voru komnir Viðbragðsaðilar sem komu á vettvang Bátavogsmálsins svokallaða sögðu Dagbjörtu Rúnarsdóttur, sem er grunuð í málinu um að hafa orðið tæplega sextugum karlmanni að bana á heimili sínu í Bátavogi í september síðastliðinu, hafa slegið manninn eftir að viðbragðsaðilar komu á vettvang. Innlent 26.6.2024 15:07
Segir Dagbjörtu ekki hafa sýnt iðrun Rannsóknarlögreglumaður sem fór með rannsókna á Bátavogsmálinu svokallaða segist ekki hafa orðið var við að Dagbjört Rúnarsdóttir, sem er grunuð um að hafa orðið tæplega sextugum manni að bana í Bátavogi í september í fyrra, hafi sýnt iðrun eða samúð vegna andláts mannsins Innlent 26.6.2024 14:11
„Ég myndi aldrei gera honum eitt eða neitt“ „Hundurinn minn er dáinn. Ég hef ekkert að gera en að vera leiðinleg við þig [...] þangað til þú ákveður að bæta ráð þitt,“ heyrist Dagbjört Rúnarsdóttir, sem er grunuð um að hafa orðið tæplega sextugum karlmanni að bana í Bátavogi í september síðastliðinum, segja við manninn skömmu áður en hann lést. Innlent 26.6.2024 11:13
Aðalmeðferð í Bátavogsmálinu hafin Aðalmeðferð í máli Dagbjartar Rúnarsdóttur, sem er ákærð fyrir að hafa orðið manni að bana í Bátavogi í september síðasta árs, hófst í dag. Gert er ráð fyrir því að aðalmeðferðin taki þrjá daga og meðal gagna í málinu eru myndskeið þar sem sjá má og heyra Dagbjörtu valda brotaþola ítrekuðum líkamsmeiðingum. Innlent 26.6.2024 09:15
Aðalmeðferð í Bátavogsmálinu fer fram í sumar Aðalmeðferð í máli Dagbjartar Rúnarsdóttur, sem er ákærð fyrir að hafa orðið manni að bana í Bátavogi í september í september, fer fram 26. til 28. júní. Dagbjört neitar sök í málinu en á meðal rannsóknargagna eru tveggja tíma mynd- og hljóðupptökur sem lögregla segir sýna hana pynta þann látna. Innlent 27.5.2024 12:42
Maðurinn í Bátavogi lést vegna köfnunar Dánarorsök mannsins sem lést í Bátavogi í september í fyrra liggur nú fyrir. Samkvæmt endanlegri niðurstöðu úr réttarkrufningu lést maðurinn af völdum köfnunar, og þá hafði innvortisblæðing spillandi áhrif á súrefnisnæringu til heilans sem var til þess fallið að stuðla enn frekar að köfnuninni. Innlent 23.1.2024 14:55
Dagbjört hafnar því að hafa orðið manninum að bana Dagbjört Guðrún Rúnarsdóttir, sem er ákærð fyrir að bana tæplega sextugum karlmanni á heimili sínu í Bátavogi í Reykjavík í september í fyrra, neitar sök í málinu. Innlent 19.1.2024 13:39
Margþætt ofbeldi yfir tvo daga leiddi manninn til dauða Dagbjört Guðrún Rúnarsdóttir er talin hafa banað tæplega sextugum karlmanni á heimili sínu í Bátavogi í Reykjavík með margþættu ofbeldi í september síðastliðnum. Ákæran hefur verið birt Dagbjörtu og fréttastofa hefur hana undir höndum. Innlent 15.1.2024 17:33
Tveggja daga líkamsmeiðingar til á upptöku Landsréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms þess efnis að Dagbjörtu Rúnarsdóttur, konu á fimmtugsaldri sem ákærð hefur verið fyrir manndráp í Bátavogi, verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi. Gæsluvarðhald yfir henni rennur nú út þann 11. janúar á næsta ári. Innlent 20.12.2023 10:16
Dagbjört ákærð fyrir manndráp í Bátavogi Héraðssaksóknari gaf í dag út ákæru á hendur Dagbjörtu Rúnarsdóttur, 42 ára gamalli konu, fyrir manndráp í Bátavogi í Reykjavík þann 23. september síðastliðinn. Innlent 15.12.2023 16:44
Áfram í gæsluvarðhaldi: Kryfja smáhund sem fannst í frysti Kona á fimmtugsaldri, sem grunuð er um að hafa orðið karlmanni að bana í íbúð í Bátavogi í Reykjavík, mun sæta gæsluvarðhaldi til 7. desember næstkomandi. Rannsókn lögreglu krefst þess að smáhundur sem fannst dauður í frysti á vettvangi verði krufinn. Innlent 17.11.2023 12:16
Úrskurðuð í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna andlátsins í Bátavogi Kona á 42. aldursári var í dag úrskurðuð í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur. Konan var handtekin 23. september síðastliðinn í tengslum við andlát karlmanns á sextugsaldri í Bátavogi sama dag. Innlent 25.10.2023 15:32
Fara fram á fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á að gæsluvarðhald yfir konu, sem handtekin var í tengslum við andlát karlmanns í Bátavogi í lok september, verði lengt um fjórar vikur. Gæsluvarðhaldskröfuna er nú verið að taka fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Innlent 25.10.2023 13:35
Áfram í gæslu eftir harmleikinn í Bátavogi Krufning á 58 ára karlmanni sem fannst meðvitundarlaus í félagsíbúð við Bátavog í Reykjavík laugardagskvöldið 23. september bendir til þess að honum hafi verið ráðinn bani að sögn lögreglu. Kona á 42. aldursári var í dag úrskurðuð í tveggja vikna áframhaldandi gæsluvarðhald en hún var á vettvangi þegar lögreglu bar að garði. Innlent 4.10.2023 13:22
Manninum sem fannst látinn í austurborginni virðist hafa verið ráðinn bani Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir allt benda til þess að manni, sem lést eftir að hafa fundist meðvitundarlaus um þarsíðustu helgi, hafi verið ráðinn bani. Innlent 3.10.2023 17:17
Kona í haldi lögreglu vegna andláts karlmanns Kona um fertugt var í gær úrskurðuð í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur til 27. september á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 25.9.2023 10:34
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti