Rekstur hins opinbera

Fréttamynd

Fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur lagt fram fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í henni kemur fram að hallarekstur ríkissjóðs verði stöðvaður árið 2027 og skuldahlutfall hins opinbera lækkað markvisst á tímabilinu. Meðal hagræðingaraðgerða sem hann boðar er fækkun stöðugilda hjá ríkinu um eitt prósent. 

Innlent
Fréttamynd

Ingunn nýr innri endur­skoðandi borgarinnar

Borgarráð samþykkti í dag ráðningu Ingunnar Ólafsdóttur sem innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar. Í tilkynningu kemur fram að Ingunn hafi verið starfandi innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar í tæp tvö ár en þar áður var hún fagstjóri innri endurskoðunar og staðgengill innri endurskoðanda frá árinu 2021.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Að­för að opin­berum starfs­mönnum – burðarásum sam­fé­lagsins

Ríkisstjórnin hefur nú boðað frumvarp þar sem lagt er til að fella niður áminningarskyldu og veikja uppsagnarvernd opinberra starfsmanna. Þetta er sett fram sem tæknileg einföldun á „mannauðsstjórnun“ ríkisins, en í raun er hér um að ræða grundvallarbreytingu á réttindum stórs hóps launafólks.

Skoðun
Fréttamynd

„Trúi ekki öðru en að hún taki þetta til sín“

Formaður verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar kveðst vongóður um að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra muni beita sér gegn fyrirhuguðum breytingum Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra á réttindum og skyldum starfsmanna ríkisins. Tími sé kominn á að fingrafar Samfylkingarinnar sjáist á stjórnarsamstarfinu. Forsætisráðherra segir málið munu fá þinglega meðferð.

Innlent
Fréttamynd

Rekstur Hörpu stöðugur þrátt fyrir krefjandi að­stæður

Rekstur samstæðu tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu ohf. var stöðugur á árinu 2025 þrátt fyrir ýmsar krefjandi ytri aðstæður, þar á meðal aukinn kostnaðarþrýsting á flestum sviðum, segir í tilkynningu. Þar segir að á síðasta ári hafi verið um 1,6 milljónir heimsókna í Hörpu og haldnir 1.344 viðburðir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ráðherra­brölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var að fá svar frá forsætisráðherra um biðlaun ráðherra og hún rak upp stór augu. Á árinu 2025 greiddi ríkið rúmar níu milljónir króna vegna biðlauna fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, Ásthildar Lóu Þórsdóttur, og á yfirstandandi ári tæpar átta milljónir vegna Guðmundar Inga Kristinssonar, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Ís­land.is ekki full­nægjandi sem þjónustu­vefur

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA), hefur sendi frá sér í dag rökstutt álit þar sem Íslandi er gert að breyta miðlægri stafrænni upplýsinga- og þjónustumiðstöð sinni. Vefsíðan sem er sögð vera þjónustumiðstöð fyrir landið, island.is, uppfyllir ekki EES-reglur.

Innlent
Fréttamynd

Þjóðaröryggishætta Nýja Land­spítalans

Þann 16. júní 2023 birtist í Viðskiptablaðinu grein með fyrirsögninni: “Vitlausasta ríkisframkvæmd Íslandssögunnar”. Þar eru raktar dæmalausar hrakfarir í framkvæmdum hjá Nýjum Landspítala ohf (NLSH ohf).

Skoðun
Fréttamynd

Út­hlutaði 91 milljón til fé­laga­sam­taka

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 91 milljón króna í styrki til félagasamtaka sem vinna að mikilvægum verkefnum á sviði heilbrigðismála í þágu tiltekinna hópa. Alls hlutu 40 verkefni styrk og námu styrkfjárhæðir á bilinu 400.000 til 5.000.000 kr.

Innlent
Fréttamynd

Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golf­klúbbi

Áhugi á golfi virðist takmarkalaus með öllu. Golfforystan leggur allt í að draga alla og ömmu þeirra í golf og sú virðist nú raunin. Flestir golfklúbbar á höfuðborgarsvæðinu eru hvellsprungnir, þar er uppselt, langir biðlistar hafa myndast og verðið fylgir eftirspurninni.

Innlent
Fréttamynd

Brynjar ráðinn korter í kosningar

Brynjar Níelsson, sem skipar þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum hefur óvænt verið ráðinn starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Ráðningin er gerð tíu vikum fyrir kosningar í borginni þar sem telja má fullvíst að Brynjar nái kjöri sem borgarfulltrúi.

Innlent
Fréttamynd

Rósa vill leggja fjölmiðla­nefnd niður

Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins lagði það til í ræðu á þingi fyrr í dag að fjölmiðlanefnd verði lögð niður. Hún sagði löngu tímabært að Logi Einarsson nýsköpunar- og háskólaráðherra svari því hvers vegna brýnt þyki að ríkið haldi nefndinni úti.

Innlent
Fréttamynd

„Leigupennar“ eða ein­fald­lega fólk sem vill ræða málið?

Um fullveldi, ekki fylgispekt.Umræða um framtíð Íslands í Evrópu á að vera ein sú vandaðasta sem við tökum. Í nýlegri skoðanagrein á Vísi heldur Sverrir Páll Einarsson, forseti ungliðahreyfingar Viðreisnar, því fram að andstæðingar áframhaldandi aðildarviðræðna séu fyrst og fremst drifnir áfram af hræðslu og sérhagsmunum.

Skoðun
Fréttamynd

Krónunum kastað fyrir aurinn

Fréttir af því að Landspítalinn hafi skipt gamla góða smjörvanum út fyrir erlent jurtasmjörlíki hafa vakið töluverð viðbrögð og eflaust mun meiri viðbrögð en stjórnendur spítalans hafa búist við.

Skoðun
Fréttamynd

„Ég er ekki að úti­loka neitt, það er allt uppi á borðinu“

Innviðaráðherra útilokar ekki að tilboð Icelandair í áætlunarflug milli Ísafjarðar og Reykjavíkur verði samþykkt þrátt fyrir að vera langt yfir áætlun. Tilboðið er það eina sem barst og hljóðar upp á þrjá og hálfan milljarð króna, það er ríflega tveimur milljörðum yfir áætlun Vegagerðarinnar.

Innlent
Fréttamynd

„Það er ein­hvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“

Það eru gríðarleg vonbrigði að verðbólga mælist ekki á niðurleið og þrálát verðbólga til lengri tíma er óviðunandi að sögn fjármála- og efnahagsráðherra. Honum hugnast þó ekki hugmyndir um að breyta opinberum gjöldum í því skyni að lækka verðbólgu. Næsta vaxtaákvörðun Seðlabankans verður um miðjan mars, og nýjasta verðbólgumæling þykir ekki til marks um að líklegt sé að meginvextir bankans verði lækkaðir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Mikið í húfi ef ekki dregur úr verð­bólgu og vaxtalækkun ekki í sjón­máli

Það eru mikil vonbrigði að verðbólga hafi ekki lækkað í febrúar og viðbúið að stýrivextir haldist óbreyttir við næstu vaxtaákvörðun að sögn hagfræðings. Ekki sé ólíklegt að möguleg vaxtahækkun komi til umræðu fyrir næstu vaxtaákvörðun, og ef ekki takist að ná verðbólgu nær markmiði gæti virkjun forsenduákvæðis kjarasamninga verið í húfi í haust. Þá sé áhyggjuefni að verðbólguþrýstingur virðist vera á uppleið.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tólf sagt upp hjá Sjúkra­tryggingum

Nýtt skipurit hefur verið samþykkt hjá Sjúkratryggingum sem felur í sér fækkun skipulagseininga þar sem dregið er úr yfirbyggingu og stjórnendum fækkað. Samhliða breytingunum hefur verið ákveðið að leggja niður tólf störf hjá Sjúkratryggingum.

Innlent
Fréttamynd

„Ægi­lega hamingju­samur“ með milljarðana frá Kerecis

Það er gríðarlegt ánægjuefni að fjörutíu milljarða skattgreiðsla frá Kerecis komi að óbreyttu til með að snúa við rekstri ríkissjóðs á þessu ári, að sögn fjármálaráðherra. Ekki var gert ráð fyrir tekjunum í fjármálaáætlun en ráðherra gerir ráð fyrir að peningarnir nýtist til að ná betra jafnvægi í ríkisreksturinn.

Viðskipti innlent