Mótmælaalda í Íran
1 2 3 ›
Börn og konur séu illa stödd á mótmælum í Íran Mótmæli hafa geisað í Íran í um það bil mánuð vegna dauða ungu konunnar, Mahsa Amini en hún lést í haldi írönsku siðgæðislögreglunnar. Ný skýrsla Amnesty International er sögð varpa ljósi á dauðsföll barna á meðan mótmælunum hefur staðið. Mannréttindasamtökin saki öryggissveitir um að hafa beitt sér sérstaklega gegn ungu fólki. Þá eru öryggissveitir sagðar beita mótmælendur og þá sérstaklega konur, mikilli hörku. Erlent 15.10.2022 16:40
Fjölskylda Amini fær líflátshótanir Hótunum hefur rignt yfir fjölskyldu Möhsu Amini, 22 ára gamallar konu sem lést í haldi siðgæðislögreglu Íran. Fjölskyldan segir að klerkastjórnin beiti hana þrýstingi að ræða ekki við mannréttindasamtök eða koma nálægt mótmælunum sem brutust út vegna dauða Amini. Erlent 10.10.2022 16:01
Neita því að öryggissveitir hafi drepið sextán ára mótmælanda Írönsk yfirvöld hafna því að öryggissveitir hafi drepið sextán ára gamla stúlku á mótmælum sem brutust út í kjölfar dauða ungrar konu í haldi siðgæðislögreglu. Þau halda því fram að stúlkan hafi svipt sig lífi með því að kasta sér fram af húsþaki. Erlent 7.10.2022 12:09
Skellir skuldinni á Bandaríkin og Ísrael Æjatolla Khamenei, æðsti leiðtogi Írans, kenndi Bandaríkjunum og Ísrael um mótmæli á götum landsins í fyrstu opinberu ummælum sínum um óróann í dag. Mótmælin brutust út eftir að ung kona lést í haldi siðgæðislögreglunnar. Erlent 3.10.2022 20:54
Skotið á stúdenta og setið um háskóla Íranskar óeirðasveitir hafa setið um háskólann Sharif í Tehran, höfuðborg Írans og skotið þar á háskólanema. Ekkert lát er á kröftugum mótmælum sem hafa sprottið á götum borga í Íran, síðan 22 ára gömul kona lést í haldi lögreglu fyrir að hafa höfuðklút sinn ekki nægilega þéttan á höfði sínu. Erlent 2.10.2022 22:28
Siðgæðislögreglan sögð horfin af strætum og torgum Ekkert hefur sést til fulltrúa siðgæðislögreglu sem á að fylgjast með klæðaburði kvenna á strætum Teheran í Íran undanfarna daga. Raddir um að slaka ætti á ströngum reglum um klæðaburð kvenna hafa orðið háværari eftir dauða ungrar konu í haldi siðgæðislögreglunnar fyrr í þessum mánuði. Erlent 28.9.2022 12:20
Tugir látnir og hundruð handtekin í mótmælunum Rúmlega 450 mótmælendur hafa verið handteknir í fjölmennum mótmælum í norðurhluta Íran. 41 hafa látið lífið og mannréttindasamtök segja að fjögur börn séu meðal látinna. Erlent 26.9.2022 19:45
Saka Bandaríkin um að reyna að veikja Íran í skugga mótmæla Yfirvöld í Íran hafa sakað bandarísk stjórnvöld um að nýta sér mótmælin sem nú standa yfir vegna dauða ungrar konu til að veikja Íran og segjast munu bregðast við. Ekkert lát er á mótmælunum sem hófust um þar síðustu helgi en á fimmta tug hafa látist samkvæmt opinberum tölum. Erlent 26.9.2022 12:36
Afboðuðu viðtal við forseta Íran vegna slæðukröfu Bandaríski fréttamiðillinn CNN afboðaði viðtal við Ebrahim Raisi, forseta Íran, eftir að hann krafðist þess að sjónvarpskonan Christiane Amanpour klæddist höfuðslæðu í viðtalinu. Erlent 23.9.2022 08:28
Raisi hætti við viðtalið eftir að Amanpour neitaði að bera höfuðklút Forseti Írans, Ebrahim Raisi neitaði að mæta í viðtal við fréttakonu CNN, Christiane Amanpour vegna þess að hún neitaði að bera höfuðklút á meðan á viðtalinu stæði. Erlent 22.9.2022 21:14
Að minnsta kosti níu látnir í mótmælunum í Íran Ekkert lát er á mótmælunum í Íran en mótmælendur kveiktu í lögreglustöðvum og bílum í höfuðborginni og öðrum borgum í dag. Minnst níu eru sagðir hafa látist eftir að mótmælin brutust út um helgina og hefur ríkisstjórnin lokað á samfélagsmiðla til að reyna að koma í veg fyrir að mótmælendur nái að tala sig saman. Erlent 22.9.2022 10:52
„Held að íbúar í Íran séu komnir með meira en nóg af ríkisstjórninni“ Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað í Íran undanfarna daga eftir að ung kúrdísk kona dó í haldi lögreglu. Hún hafði verið handtekin fyrir að vera ekki klædd samkvæmt ströngum reglum klerkastjórnar Írans og dó í síðustu viku. Erlent 21.9.2022 23:03
Konur brenna slæður sínar í Íran Íranskar konur hafa undanfarin fimm kvöld mótmælt hijab-lögum landsins eftir að 22 ára gömul kona lést í haldi lögreglu. Hún var handtekin fyrir að nota ekki hijab-slæðu á almannafæri en lést degi síðar. Erlent 21.9.2022 07:13
Andlát Amini „óheppilegt atvik“ Lögreglan í Íran segir að dauði 22 ára konu sem lést í haldi lögreglu sé „óheppilegt atvik“. Lögreglan neitar að hafa beitt hana ofbeldi er hún var í haldi og segist hafa gert allt sem hægt var til að bjarga lífi hennar. Erlent 20.9.2022 07:56