
Uppsögn sveitarstjóra Borgarbyggðar

Hæstiréttur hafnar beiðni Borgarbyggðar um að taka fyrir Gunnlaugsmál
Hæstiréttur hefur hafnað beiðni sveitarstjórnar Borgarbyggðar um áfrýjun eftir niðurstöðu Landsréttar í máli Gunnlaugs A. Júlíussonar, fyrrverandi sveitarstjóra, þar sem sveitarfélaginu var gert að greiða Gunnlaugi 3,7 milljónir króna vegna uppsagnar hans árið 2019.

Borgarbyggð sættir sig ekki við niðurstöðu í Gunnlaugsmáli
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hyggst leita eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar eftir niðurstöðu Landsréttar í máli Gunnlaugs A. Júlíussonar, fyrrverandi sveitarstjóra, þar sem sveitarfélaginu var gert að greiða Gunnlaugi 3,7 milljónir króna vegna uppsagnar hans árið 2019.

Gunnlaugur lagði Borgarbyggð í seinni glímunni fyrir Landsrétti
Sveitarfélagið Borgarbyggð var í Landsrétti í dag dæmt til þess að greiða fyrrverandi sveitarstjóra sínum tæpar 3,7 milljónir króna. Sveitarfélagið hafði áður verið sýknað fyrir héraðsdómi.

Borgarbyggð er sýkn af 60 milljóna króna kröfu brottrekins sveitarstjóra
Héraðsdómur Vesturlands kvað í dag upp dóm þess efnis að Borgarbyggð væri sýkn af öllum kröfum Gunnlaugs Auðuns Júlíussonar.

Gunnlaugur krefst 60 milljóna frá Borgarbyggð vegna uppsagnarinnar
Gunnlaugur A. Júlíusson, fyrrverandi sveitarstjóri Borgarbyggðar, hefur stefnt sveitarfélaginu og krafið það um 60 milljónir króna í bætur.

Gunnlaugur höfðar mál á hendur Borgarbyggð
Fyrrverandi sveitarstjóri Borgarbyggðar hefur höfðað mál á hendur sveitarfélaginu vegna uppgjörs á óteknu orlofi og launum samkvæmt ráðningarsamningi. Þar að auki verður krafist bóta vegna uppsagnar sem hann vill meina að hafi varið ólögleg.

Segir Gunnlaug og sveitarstjórn ekki hafa gengið í takt
Forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar segir að rekja megi uppsögn sveitarstjórans Gunnlaugs A. Júlíussonar til þess skortur hafi verið á sameiginlegri sýn á ákveðin mál sem snúa að stjórnun og framtíðarsýn sveitarfélagsins.

Gunnlaugi sagt upp störfum hjá Borgarbyggð
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur sagt Gunnlaugi A. Júlíussyni upp störfum.