

Haukar gerðu góða ferð til Ísafjarðar en liðið sótti tvö stig þangað í leik sínum við Hörð í 11. umferð Olísdeildar karla í handbolta í dag.
Íslands- og bikarmeistarar Vals unnu vægast sagt sannfærandi sigur er liðið heimsótti botnlið Harðar vestur á Ísafjörð í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 28-45.
Grótta tók á móti Herði í 11.umferð Olís-deildar karla. Hörður, er enn í leit að sínum fyrsta sigri í deildinni eftir jafntefli á móti Gróttu í æsisspennandi leik.
Toppbaráttulið Fram þurfti að hafa fyrir hlutunum er liðið heimsótti stigalausa Harðverja í Olís-deild karla í handbolta í dag. Gestirnir unnu þó að lokum nauman eins marks sigur, 31-32, og heldur sér því í öðru sæti deildarinnar.
Lið Harðar í Olís deild karla hefur fengið nóg af framkomu lettneska handknattleikssambandsins í sinn garð. Hefur Hörður lagt inn formlega kvörtun til Handknattleikssambands Evrópu, EHF. Frá þessu var greint á Facebook síðu Hattar.
Carlos Martin Santos, þjálfari Harðar, var ánægður eftir leik þeirra við FH í Olís-deildinni þrátt fyrir 36–31 tap. Fyrir leik bjuggust flestir við stórsigri heimamanna en gestirnir seldu sig mjög dýrt. Þrátt fyrir það var sigur FH-inga aldrei í hættu.
FH lyfti sér upp í fjórða sæti Olís-deildarinnar í handknattleik eftir fimm marka sigur á Herði frá Ísafirði í dag. Lokatölur 36-31 en sigurinn er sá fjórði í röð hjá FH-ingum.
Aganefnd HSÍ fundaði í gær og tók þá fyrir mál fjögurra leikmanna sem fengu rautt spjald í 7.umferð Olís-deildar karla um síðustu helgi. Rauða spjaldið sem FH-ingurinn Jóhann Birgir Ingvarsson fékk gegn ÍBV var dregið til baka.
Jóhann Gunnar Einarsson, sérfræðingur í Seinni bylgjunni, hafði áhyggjur af Harðarmönnum og að leikmenn liðsins skildu ekki ráðleggingarnar frá Seinni bylgju mönnum.
Afturelding fór á Ísafjörð og vann sjö marka sigur á Herði 29-36. Afturelding var yfir allan leikinn. Heimamenn minnkuðu forskot Aftureldingar niður í tvö mörk þegar sjö mínútur voru eftir en gestirnir svöruðu því og fögnuðu á endanum sjö marka sigri.
Þjálfari Harðar frá Ísafirði, Carlos Martin Santos, var heilt yfir ánægður með sitt lið eftir tap gegn Stjörnunni í dag í Garðabænum. Hörður leiddi leikinn fyrstu 40 mínúturnar en tapaði á endanum með þriggja marka mun, 28-25.
Stjarnan vann sterkan þriggja marka sigur er liðið tók á móti Herði frá Ísafirði í Olís-deild karla í handbolta í dag, 28-25. Stjörnumenn höfðu ekki unnið deildarleik frá því í fyrstu umferð og var sigurinn því langþráður.
Selfoss vann nauðsynlegan útisigur á Herði 32-35. Leikurinn var jafn framan af en undir lok síðari hálfleiks komst Selfoss fjórum mörkum yfir og var í bílstjórasætinu allan leikinn. Þrátt fyrir hetjulega baráttu Harðar vann Selfoss þriggja marka sigur.
Hörður frá Ísafirði, sem leikur í ár í fyrsta skipti í Olís-deild karla, mun láta gott af sér leiða og styrkja starfsemi Bleiku slaufunnar og Krabbameinsfélagið Sigurvon með framleiðslu bleikrar treyju. Málefnið stendur leikmönnum liðsins nærri.
Hörður frá Ísafirði er nýliði í Olís deildinni í handbolta og eru enn stigalausir eftir fyrstu þrjá leiki sína en það verður ekki annað sagt en að forráðamenn liðsins séu metnaðarfullir.
ÍBV og Hörður mættust í Vestmannaeyjum í Olís-deild karla í handbolta í dag. Aldrei í sögu deildarinnar hefur verið eins langt á milli heimabæja liðanna sem mætast. Það voru Eyjamenn sem unnu þægilegan átján marka sigur.
„Mér líður ekki vel. Ég held að við og ég segi það sama og ég sagði eftir síðasta leik, við verðum að vera betri. Frá byrjun vorum við að elta þá og það er svo erfitt að byrja leikinn á elta og það er erfitt í sextíu mínútur. Þeir voru betri en við og ég óska ÍR til hamingju, góður leikur hjá þeim,“ sagði Carlos Martin Santos, eftir tap á ÍR í kvöld. Lokatölur 35-34.
ÍR tók á móti Herði í fjórðu umferð Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Leikurinn fór hratt af stað og bæði lið ákveðin að sækja stig. ÍR hafði betur og sigraði með einu marki 35-34.
Ekkert gekk hjá Herði að fá íslenska leikmenn til liðsins og því var á leitað á erlend mið. Erlendir leikmenn eru mun ódýrari en Íslendingar að sögn formanns handknattleiksdeildar Harðar.
Ef allt gengur eftir teflir Hörður fram fjórum brasilískum leikmönnum í Olís-deild karla í vetur.
Hörður heldur áfram að safna liði og hefur samið við brasilískan miðjumann, Jhonatan Cristiano Ribeiro Dos Santos.
Hörður á Ísafirði spilaði sinn fyrsta heimaleik í efstu deild er KA mætti í heimsókn vestur á firði í kvöld. Gestirnir höfðu forystuna frá upphafi til enda og unnu að lokum fjögurra marka sigur, 27-31.
Óli Björn Vilhjálmsson, fyrirliði Harðar, segir að Ísfirðingar bíði í ofvæni eftir fyrsta heimaleik sínum í efstu deild. Þrátt fyrir að leikmenn Harðar komi víða að er leikmannahópurinn samheldinn sem sést best á búsetu erlendu leikmanna liðsins.
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var skiljanlega sáttur með fyrri hálfleikinn gegn Herði enda unnu meistararnir hann, 22-9.
Carlos Martin Santos, þjálfari Harðar, sagði að fyrri og seinni hálfleikurinn gegn Val hefði verið eins og svart og hvítt.
Valur vann stórsigur á Herði, 38-28 í Olís-deild karla í kvöld. Þetta var fyrsti leikur Ísfirðinga í efstu deild frá upphafi.
Það ríkti ekki mikil bjartsýni hjá Handkastinu fyrir leik Íslandsmeistara Vals og nýliða Harðar í Olís deild karla á föstudaginn kemur. Ástæðan er mannekla Ísfirðinga ásamt þeirri staðreynd að þeir eru að heimsækja Íslandsmeistarana.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Herði 11. sæti Olís-deildar karla í vetur.
Grunur leikur á um að Innheimtustofnun hafi greitt félagi í eigu forstöðumanns stofnunarinnar á Ísafirði í kringum fjörutíu milljónir króna í þóknanir vegna þjónustu, sem átti ekki að útvista yfirleitt. Félagið er síðan helsti styrktaraðili handknattleiksdeildar Harðar, sem hefur vaxið ævintýralega á örfáum árum.
Hörður frá Ísafirði tryggði sér sæti í Olís-deild karla í handbolta í kvöld með sex marka sigri gegn Þór Akureyri, 25-19. Þetta verður í fyrsta skipti í sögunni sem félagið mun leika í efstu deild í handbolta.